Morgunblaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2017 SCREEN- OG RÚLLUGARDÍNUR Henta vel þar sem sól er mikil en þú vilt geta séð út Láttu sólina ekki trufla þig Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Frá því var greint í gær að ífjármálaráðuneytinu væri unnið að því að lagfæra þau mistök sem vinstri stjórnin gerði í skatt- lagningu á eldsneyti.    Vinstri stjórninhækkaði skatta á bensín langt um- fram skattana á díselolíuna í þeim tilgangi að þvinga fólk til að kaupa díselbíla.    Jafnframt var gjöldum á bílabreytt díselbílum í vil og af- leiðingin varð sú að díselbílum fjölgaði á kostnað bensínbíla.    Síðan hefur komið í ljós aðmengunin frá díselbílunum er síst skaðminni en sú frá bensínbíl- unum og því vilja núverandi stjórn- völd snúa við blaðinu og vinna að því að draga úr notkun díselolíu.    Til þess eru í meginatriðumtvær leiðir. Annars vegar er hægt að lækka gjöld á bensín þannig að það verði aftur hag- kvæmur kostur í samanburði við díselolíuna.    Hins vegar er hægt að hækkagjöldin á díselolíuna þannig að hún verði óhagkvæmari kostur í samanburði við bensínið.    Og þá er það stóra spurningin:Hvora leiðina ætli Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra hyggist fara, skattalækkun eða skattahækkun?    Það þarf svo sem ekki að spyrjaað því, að sjálfsögðu velur hann að hækka skatta. Að öðrum kosti væri hætta á að almenningur héldi meiru eftir í buddunni. Benedikt Jóhannesson Það þarf ekki að spyrja STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 skýjað Bolungarvík 11 rigning Akureyri 14 alskýjað Nuuk 8 heiðskírt Þórshöfn 13 skýjað Ósló 13 léttskýjað Kaupmannahöfn 16 rigning Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 18 skýjað Brussel 18 léttskýjað Dublin 19 skýjað Glasgow 18 heiðskírt London 19 heiðskírt París 21 súld Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 15 rigning Berlín 18 rigning Vín 26 skýjað Moskva 17 skúrir Algarve 29 heiðskírt Madríd 36 heiðskírt Barcelona 29 léttskýjað Mallorca 31 heiðskírt Róm 31 heiðskírt Aþena 33 heiðskírt Winnipeg 15 rigning Montreal 17 alskýjað New York 29 heiðskírt Chicago 24 þrumuveður Orlando 31 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:37 23:31 ÍSAFJÖRÐUR 2:59 24:18 SIGLUFJÖRÐUR 2:41 24:03 DJÚPIVOGUR 2:57 23:10 Meirihluti Íslend- inga er andvígur inngöngu í Evr- ópusambandið (ESB) sam- kvæmt nýrri könnun MMR á afstöðu Íslend- inga til aðildar að sambandinu. Alls sögðust 47,9 pró- sent vera andvíg inngöngu í ESB en 29 prósent hlynnt. Andstaðan mælist 67,5 pró- sent meðal þeirra sem styðja ríkis- stjórnina en er minni meðal þeirra sem styðja stjórnarandstöðuna eða 36,2 prósent. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru hlynntari inngöngu í ESB eða 34,3 prósent meðan eingöngu 19,8 pró- sent íbúa landsbyggðarinnar eru hlynnt inngöngu. Andstaða mældist almennt minni nú en árin 2012 og 2013 en vikmörk könnunarinnar eru 3,1 prósent. Könnunin var framkvæmd dagana 15. til 21. júní 2017 og var heildar- fjöldi svarenda 1.017 einstaklingar 18 ára og eldri. Þjóðin vill ekki inn í ESB  Tæpur helmingur andvígur inngöngu Andstaða við ESB- aðild er enn mikil. Sveitarfélagið Vogar veitti á dög- unum styrki úr mennta- og afreks- sjóði sínum. Öll ungmenni sveitarfé- lagsins sem ljúka framhaldsskóla- námi á tilskildum tíma, innan fjögurra ára frá útskrift úr grunn- skóla, eiga rétt á styrknum. Auk þess voru þrír nemendur úr 10. bekk Stóru-Vogaskóla verðlaunaðir fyrir góðan námsárangur. Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar bæj- arstjóra er styrkurinn hugsaður til að hvetja nemendur til dáða og minnka brottfall úr skólum. Styrkurinn nam í ár 40 þúsund krónum á mann en Ásgeir segir upp- hæðina ekki aðalatriði heldur það að nemendum sé sýndur stuðningur og þeir hvattir til dáða. Þá sé það von manna að svona megi minnka brott- fall úr skólum. Honum er ekki kunn- ugt um að önnur sveitarfélög á land- inu styrki framhaldsskólanema með sama hætti. Sjóðurinn varð til við sölu á eign- arhlut sveitarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja árið 2010. Ákveðið var að leggja um tíu milljónir króna til hliðar í menntasjóðinn og eru vaxta- tekjur nýttar til úthlutunar. Um 15-20 börn eru í hverjum ár- gangi innan sveitarfélagsins og segir Ásgeir um helming nemenda ljúka námi á tilskildum tíma og þiggja styrkinn. Er það svipað hlutfall og á landsvísu. alexander@mbl.is Ungmenni í Vogum hvött til dáða  Veita þeim sem ljúka námi á tilskildum tíma 40 þúsund króna styrk Styrkur Nemendur voru heiðraðir á síðasta fundi bæjarstjórnar í júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.