Morgunblaðið - 13.07.2017, Síða 20

Morgunblaðið - 13.07.2017, Síða 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2017 ✝ Guðmar Guð-jónsson fæddist að Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi 6. júní 1937. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans í Reykja- vík 4. júlí 2017. Foreldrar hans voru Guðjón Ólafs- son, f. á Bark- arstöðum í Fljóts- hlíð 1903, d. 1985, og Björg Árnadóttir, f. að Hrjóti í N-Múlasýslu 1906, d. 1988. Guðmar var þriðji í röðinni í hópi fimm systkina, elst var Sig- urbjörg Ólöf, sem er látin, næst- ur kom Hreiðar Ólafur og yngri eru Árni Björn og Sólrún. Guðmar kvæntist Kolbrúnu Jennýju Sigurjónsdóttur frá Eyrarbakka þann 31. desember 1965, þau skildu 1987. Guðmar og Kolbrún eignuðust fjögur börn. Elstur er Sigurjón Krist- inn, f. 1970, sambýliskona hans er Monica Sørlie, barn hans af fyrra hjónabandi er Jana Sif, f. árið 2000. Annar í röð barna Guðmars var drengur, f. 1971, lést sama dag. Þriðja er Guðný Jóna, f. 1972, eiginmaður hennar er Aðalsteinn Símonarson. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru Alexandrea Rán, f. 1999, og Daniel Victor, f. 2001. Yngstur er Ólafur Hlynur, f. 1978, sam- býliskona hans er Hanna Sigga Unnarsdóttir. Dótt- ir þeirra er Ísabella Eva, f. 2016, fyrir á Hanna Sigga dótt- urina Hafdísi Öldu, f. 2004. Guðmar stundaði lengst af búskap á Stóra-Hofi en vann oft samhliða ýmsa vinnu í nágranna- sveitunum, einkum sem vörubifreiðar- stjóri, m.a. við byggingu Búr- fellsvirkjunar. Eftir að hann flutti til Reykjavíkur um 1990 vann hann lengst af hjá Myllunni og lauk þar starfsævinni. Hann var alla tíð virkur í fé- lagsmálum, starfaði t.d. ungur í Framsóknarfélagi Árnessýslu og var formaður þess um tíma og þá var hann um skeið fréttaritari fyrir Tímann. Guðmar var mikill náttúruunandi og hafði ferðast mikið um landið. Þá var hann einnig listhneigður, spilaði í lúðrasveitum, starfaði í ljós- myndaklúbbum og lærði mynd- list. Hann málaði mikið í seinni tíð og hélt fjölmargar sýningar, bæði einn og með öðrum. Síð- ustu æviárin var hann virkur í félagsstarfi aldraðra í Graf- arvogi og voru Korpúlfar honum afar kærir. Útför Guðmars fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 13. júlí 2017, klukkan 13. Það er mér þungt að setjast niður og skrifa um föður minn en svona vill maður nú að gangur lífsins sé að börnin skrifi um for- eldra sína en ekki öfugt. Vinskapur okkar pabba byrj- aði fyrir alvöru þegar ég var níu ára og mamma flutti með mig úr sveitinni. Pabbahelgar voru dek- urhelgar. Mikið var brallað og nánast alltaf allt eftir mínu höfði. Pabbi reyndar dró mig líka með í útivist hingað og þangað um landið, eitthvað sem ég barnið og svo unglingurinn var nú ekki al- veg að nenna en það er eitthvað sem ég met mikils eftir að ég lærði að elska landið okkar. Nú á síðustu árum fórum við alla Aust- firðina og svo í fyrra keyrði ég hann til að vera viðstaddur flug- eldasýninguna á Jökulsárlóni þannig að okkar ferðalögum lauk aldrei. Pabbi hélt líka mikið upp á handbolta og fór ég ósjaldan með honum á landsleiki og man ég eitt skiptið sem við mættum aðeins of seint og ekkert var um sæti. Pabbi ætlaði nú ekki að láta litla strákinn sinn standa og fann hann sæti á endanum á vara- mannabekknum. Skildi ég ekkert í því að tveimur sætum frá mér sátu Kristján Arason og allar hin- ar stjörnurnar. Sennilega hafa þeir heldur ekkert skilið hvað við vorum að gera þarna á endanum á bekknum. Það var nú líka svo- lítið spennandi að sjá sig í sjón- varpinu svo í fréttunum. Þegar ég varð eldri og fór að búa þurfti ég nú oft að leita til pabba með hitt og þetta og ekki man ég eftir því að pabbi hafi sagt nei við mig hvort sem það þurfti að skipta um rafmagnskló, mála eða jafnvel skutla mér á djammið Pabbi kom til mín til Dan- merkur þegar ég bjó þar og var það dálítið skemmtilegt því ég ætlaði að sýna honum Himmel- bjerget en endaði á að keyra yfir það og endaði í Silkeborg. Við pabbi urðum nú líka ósátt- ir eins og gengur og gerist og hafði hann einstakt lag á að ná mér upp með því að halda alltaf með því liði sem spilaði á móti Arsenal, sama í hvaða keppni það var. En ósáttir vorum við ekki lengi og er það sennilega besta merkið um góðan vinskap. Fyrir tveimur árum byrjuðum við Hanna mín svo á sumarbú- stað uppi á Skammbeinsstöðum, hluta úr jörðinni sem hann hafði haldið eftir þegar hann seldi á sínum tíma. Pabbi var fullur af orku og alltaf tilbúinn að hjálpa. Ég gleymi svo aldrei þegar við sátum saman tveir í pottinum með kaldan og hann sagði: „Aldr- ei hefði ég trúað því að ég ætti eftir að sitja í heitum potti á Skammbeinsstöðum.“ Því miður verða ferðirnar okk- ar ekki fleiri þangað. Pabbi flutti inn til okkar í byrj- un ársins 2017 og bjó hjá okkur í tvo mánuði. Hann fékk því tæki- færi til að umgangast nokkurra mánaða gamla dóttur mína á hverjum degi og var hann varla kominn á fætur þegar hann bað um að fá hana í fangið. Ég veit að hann á eftir að vaka yfir henni ásamt hinum barnabörnunum. Það verður tómlegt án þín og ég kveð þig með söknuði, faðir minn. Ég kveð þig með tárum, vinur minn. Guð einn veit, hvert leið mín liggur, lífið svo flókið er. Oft ég er í hjarta hryggur en ég harka samt af mér. Eitt lítið knús, elsku mamma, áður en ég fer. Nú er ég kominn til að kveðja, ég kem aldrei framar hér. Ólafur Hlynur Guðmarsson, Hanna Sigga og stelpurnar. Guðmar Guðjónsson Maí 2017: WannaCry- vírusinn, stærsta netárás sög- unnar, lamar heiminn og tekur tölvur í gagna- gíslatöku í yfir 150 löndum. Ís- land sleppur med skrekkinn. Júní 2017: Spilliforritið Petya byrjar að herja. Sleppur Ísland eins vel núna? Við þurfum ekki að horfa lengra aftur í tímann en nokkra mánuði þegar það kemur að sögulegum við- burðum varðandi netöryggi. Global Cybersecurity Index Í sínum árlega lista yfir stöðu landa varðandi net- öryggi hefur International Telecommunication Union (ITU), stofnun á vegum Sameinu þjóðanna (SÞ), veg- ið Ísland mjög neðarlega. Global Cybersecurity Index (GCI) 2017 gefur Íslandi svipaða einkunn og Laó, Perú, Venesúela og Síle. Einkunnin er gefin eftir mörgum viðmiðunum og seg- ir að Ísland skuldbindi sig aðeins í kringum 38,4% varð- andi netöryggi. Í mínum gamla menntaskóla var þetta falleinkunn. Okkur, sem vinnum með netöryggi, kem- ur þetta ekkert á óvart. Það eru þó nokkrir flokkar sem Ísland fær falleinkunn í, og að neðan má sjá nokkra málaflokka sem ég ráðlegg íslenskum stjórnvöldum að bæta sig í: Aukin fjár- lög til CERT- ÍS. Samtökin Computer Emergency Response Teams (CERT) eru ekki til þess fallin að sjá um netöryggi þjóðarinnar. Hlut- verk þeirra er að geta sam- einað átök og varnir þegar árásir standa yfir. Það eru almenningur, fyrirtæki og opinberar stofnanir sem bera ábyrgð á sínum kerfum. En það er mikilvægt að geta sameinað verklag þegar á dynur. Samtökin CERT-ÍS eru undirmönnuð og hafa mikla þörf fyrir uppbygg- ingu. Auknar rannsóknir. Rannsóknir á netöryggi eru grundvöllurinn fyrir ný- væðingu og auknum skiln- ingi hjá fyrirtækjum og op- inberum stofnunum. Svokallað „contractual Pu- blic Private Partnership (cPPP)“ er eitt aðaláherslu- atriðið hjá öðrum þjóðum og Evrópusambandinu í dag. Fyrirtæki og stofnanir standa saman með háskólum og knýja fram rannsóknir í netöryggi innan áherslusviðs viðeigandi fyrirtækis/ stofnunar. Auka þarf menntun á öll- um stigum. Ísland stendur nágrannalöndum sínum langt að baki þegar kemur að menntun í netöryggi. Það verður að bæta við námi í netöryggi í öll stig mennta- kerfisins; allt frá grunnskóla til PhD-náms. Það þarf sér- staklega að mennta fleiri sérfræðinga á MSc- og PhD- stigi innan netöryggis á Ís- landi. Aukin almenningsvitund. Ísland ætti að horfa til Nor- egs, og þá sérstaklega til „Norsk senter for inform- asjonssikring (NorSIS)“, þegar kemur að almennings- vitund varðandi netöryggi. NorSIS er eigin stofnun („non profit“) sem hefur það að markmiði að auka al- menningsvitund og hjálpa smáum og meðalstórum fyr- irtækjum með viðhorf til net- öryggis. Þeir reka til dæmis síðuna „slettmeg.no“ sem er til þess gerð að hjálpa fólki við að láta fjarlægja af net- inu myndir og upplýsingar sem settar hafa verið inn um viðkomandi í leyfisleysi. Samanburður við ná- grannalöndin Sem Íslendingur hef ég mikið þjóðarstolt og finnst gaman að tala við útlendinga um árangur Íslendinga í íþróttum og uppbygginguna eftir hrun. En þegar það kemur að netöryggi held ég mig til hlés. Í Evrópu er Ís- land í 33. sæti af 43 og á heimsmælikvarða endum við í 78. sæti af 165. Nágranna- lönd okkar standa okkur mun framar og ættu að geta gefið okkur góða hjálp á leið- inni. Ísland fær reyndar hrós í skýrslunni fyrir að hafa tekið upp samstarf við ná- grannalöndin, en það er langt í land. Ég óska eftir metn- aðarfyllri framtíðarsýn frá stjórnvöldum og meiri fjár- veitingum í netöryggi á Ís- landi. Netöryggi – Ísland með falleinkunn Eftir Hilmar Pál Haraldsson Hilmar Páll Haraldsson » Ísland fær fall- einkunn í nýj- ustu skýrslu Int- ernational Telecommunication Union varðandi netöryggi. Í Evr- ópu er Ísland í 33. sæti af 43. Höfundur er aðalráðgjafi í Center for Cyber and Inform- ation Security (CCIS) við Norges teknisk-naturvi- tenskapelige universitet (NTNU). hilmar.haraldsson@ccis.no Er í lagi að skerða lífeyri aldraðra frá al- mannatrygg- ingum vegna þess að viðkom- andi eldri borg- ari fær lífeyri úr lífeyrissjóði? Nei, það er ekki í lagi. Það er sambærilegt og ef stjórnvöld færu beint inn í lífeyrissjóðina og tækju hluta þeirra traustataki. Sjóðfé- lagar, eldri borgarar, eiga líf- eyrinn í lífeyrissjóðunum. Ekki má skerða hann, hvorki beint né óbeint. Lífeyrissjóð- irnir áttu að vera viðbót við almannatryggingar. Það var grundvöllur stofnunar lífeyr- issjóðanna að svo yrði. Það var óskráð samkomulag um það. Stjórnvöld hafa rofið þetta samkomulag. Það er því engan veginn öruggt, að launafólk haldi áfram að greiða í lífeyrissjóð 15,5%. Það er há upp- hæð. Ef launa- fólk á að halda áfram að greiða i lífeyr- issjóði verður að hætta skerð- ingum. Það verður að hætta þeim strax. Eiga inni tugi milljarða hjá ríkinu Búið er að stefna ríkinu vegna þess, að í janúar og febrúar á þessu ári skerti Tryggingastofnun í heimild- arleysi lífeyri eldri borgara hjá almannatryggingum, ef þeir höfðu lífeyri úr lífeyr- issjóði. Þarna tók ríkisvaldið 5 milljarða af öldruðum ófrjálsri hendi. Ég tel, að þetta sé gjörunnið mál. Síðan þarf einnig að stefna ríkinu vegna skerðinga trygginga- lífeyris á undanförnum ára- tugum. Þar er ekki um að ræða eins gjörunnið mál, þar sem lítið finnst af skriflegum gögnum um það hvaða áhrif lífeyrissjóðirnir ættu að hafa á réttindi aldraðra þar. Það er um tugi milljarða að ræða. Það eru gífurlega háar fjár- hæðir, sem eldri borgarar telja sig eiga inni hjá ríkinu. Fyrri ríkisstjórn bauð 185 þús. á mánuði Þegar nýtt frumvarp um almannatryggingar var lagt fram 2016 var ekki gert ráð fyrr neinni hækkun lífeyris til þeirra, sem voru á „stríp- uðum“ lífeyri. Þeir áttu áfram að hafa 185 þúsund kr. á mánuði eftir skatta, ef þeir voru í hjónabandi eða sam- búð og 207 þúsund á mánuði eftir skatt, ef þeir voru ein- hleypir. Allar „kjarabæt- urnar“, sem fyrri ríkisstjórn bauð upp á, voru í formi minni skerðinga tryggingalíf- eyris vegna greiðslna úr líf- eyrissjóði. En það voru ekki kjarabætur. Ef þú tekur fjármuni af eldri borgara og skilar síðan hluta þess til baka ertu ekki að veita hon- um kjarabætur. Það er lík- ara því, að verið sé að skila hluta af þýfi! Eitt þúsund manna baráttufundur Félags eldri borgara í Reykjavík í Háskólabíói knúði fyrri rík- isstjórn til þess að breyta frumvarpinu og setja inn ör- litlar kjarabætur til lægst launuðu lífeyrisþeganna. Skerðing verði stöðvuð strax Krafa mín er þessi: Skerð- ing á lífeyri aldraðra hjá al- mannatryggingum verði strax stöðvuð og leiðrétt- ingar veittar aftur í tímann. Ríkisvaldið er orðið vant því að veita afturvirkar launa- uppbætur. Það getur því eins veitt öldruðum þær. Mér er ljóst, að þessi leiðrétting kostar talsverða fjármuni. En það er ekki fyrirstaða. Það eru nægir peningar til í þjóðfélaginu. Og ríkið hefur sparað sér gífurlega fjár- muni með því að skerða líf- eyri aldraðra frá almanna- tryggingum áratugum saman. Lífeyrissjóðir séu hrein viðbót við almannatryggingar Eftir Björgvin Guðmundsson Björgvin Guðmundsson »Ef launafólk á að halda áfram að greiða í lífeyr- issjóði verður að hætta skerðingum. Höfundur er fyrrverandi borgarfulltrúi. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.