Morgunblaðið - 13.07.2017, Side 22

Morgunblaðið - 13.07.2017, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2017 ✝ Þórir Jónssonfæddist í Reykjavík 22. ágúst 1926. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 1. júlí 2017. Foreldrar hans voru Jón Ragnar Jónsson, skipa- smiður, f. 23. ágúst 1903, d. 30. september 1983, og Sigríður Hannesdóttir, verkakona, f. 14. júní 1905 í Stykkishólmi, d. 29. desember 1987. Systir Þóris er Hafdís Björk Hannesdóttir, f. 12. júlí 1943. Þórir var tvígiftur. Fyrri kona Þóris er Hanna Björg Felixdóttir og eru börn þeirra fjögur; Sigríður, Birgir, Guð- munda og Heba. Auk þeirra á Þórir dótturina Sigfríði. 1) Sigríður Jóna er gift Sigurjóni Sighvatssyni og eiga þau sam- an tvö börn og eitt barnabarn. 2) Birgir Hannes lést 2014. Eftirlifandi eiginkona hans er Anna Laufey Sigurðardóttir íþróttum. Þórir stofnaði, 20 ára gamall, og rak vélaverk- stæðið Þ. Jónsson og Co. Hann rak um margra ára skeið Fordumboðið, Svein Egilsson, og var einn helsti bar- áttumaður stofnunar skipa- félagsins Bifrastar, sem ger- breytti bílainnflutningi til Íslands. Þá sat hann í stjórn Reykjaprents sem stóð að út- gáfu Vísis og DV um árabil. Þórir keppti fyrir Íslands hönd í svigi og bruni á vetr- arólympíuleikunum í St. Mo- ritz árið 1948. Hann var virkur baráttumaður framþróunar á aðbúnaði og umgjörð til skíða- iðkunar. Einnig gegndi Þórir ýmsum félagsstörfum; var for- maður Bílgreinasambandsins, formaður skíðadeildar KR, formaður Skíðasambands Ís- lands og félagi í Rótarýklúbbi Reykjavíkur. Þá var hann sæmdur heiðursstjörnu Skíða- sambands Íslands og gullmerki KR með lárviðarsveig, sem einungis 20 KR-ingar mega bera á hverjum tíma, fyrir störf sín í þágu skíðaíþrótt- arinnar. Útför Þóris fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 13. júlí 2017, klukkan 15. og eiga þau saman þrjú börn og eitt barnabarn. Áður átti Birgir tvö börn og eru barna- börnin tvö. 2) Guð- munda Helen er gift Sigurði Gísla Pálmasyni og eiga þau tvo syni og eitt barnabarn. 4) Heba er gift Shep- herd Stevenson og á hún tvo syni. 5) Sigfríð á einn son. Eftirlifandi kona Þóris er Jósefína Lára Lárusdóttir og á hún þrjá syni; Guðjón, Bjarna og Lárus. 1) Guðjón Pedersen er giftur Katrínu Hall og eiga þau tvö börn. 2) Bjarni Hall- dórsson á tvær dætur og eitt barnabarn. 3) Lárus Hall- dórsson er giftur Láru Kemp og eiga þau tvö börn. Áður átti Lárus eitt barn og er barna- barnið eitt. Þórir lauk námi í bifvéla- virkjun frá Ræsi 1946. Þórir var umsvifamikill meðal ann- ars í iðnaði, viðskiptum og Það var óvenju stillt veður og sólin skein á svartan sandinn. Litl- ir fingur að tína skeljar. Ég var nokkurra ára gömul að elta pabba um strendur Íslands í hans vikulegu sunnudagsgöngum með Matthíasi Johannessen. Enn skín sólin en nú er sand- urinn orðinn hvítur eins og hárið á mér. Ég er enn að tína skeljar og elta pabba um strendur en nú er- um við í Sarasota. Hann var 40 árum eldri en ég þegar hann byrjaði fyrst að taka mig í göngutúrana en hann var ennþá þráðbeinn og stæltur og gekk enn hröðum og ákveðnum skrefum fram á við. Pabbi var mjög framsýnn og það var alveg sama hvort ég var hlaupandi á eftir honum eða skíðandi, hann var alltaf á undan bæði mér og samtíðinni. Hann bjó til fyrstu skíðalyftu landsins, við skála ÍR í Hverdöl- um. Var einn af stofnendum fyrstu Skautahallarinnar, skyndibita- staðar sem hét Sælkerinn og seinna Óðal, fyrsta diskótek Ís- lands og hann keyrði fyrstur manna yfir Siglufjarðarskarðið, áður en hann var kominn með bíl- próf! Sjóskíði og veiðar, lestur og ljóð voru áhugamál. Hann stofnaði Þ. Jónsson og co og var með Ford- umboðið og seinna Suzuki en var einnig áhugasamur um arkitektúr og mikill listunnandi. Auk þess að hafa verið í hópi fyrstu Íslendinganna sem kepptu á Vetrarólympíuleikunum, þá skíðaði hann þangað til hann var 88 ára og spilaði líka badminton af kappi lengi vel. Á veturna tók hann mig og hverjar þær vinkonur mínar sem vildu fara á skíði upp í Skálafell um hverja helgi – sama þó það væri ófært! Það er ekki til það ljóð eftir Tómas Guðmundsson sem hann gat ekki farið með og hann kunni nöfn og sögur um hvern stokk og stein og ekki bara á Íslandi. En eins og á ströndinni forðum daga, þá leit hann ekki til baka og hélt ótrauður fram á við til hinsta dags. Pabbi kenndi mér að meta nátt- úruna, dýr, sólsetur, ferðalög og listir. Það er aldrei að ég sjái ekki stórbrotið sólsetur og hugsa til pabba upp á þaki í Arnarnesinu með super 8 myndavélina. Nú skilja leiðir og pabbi heldur göngu sinni áfram um nýjar strendur og ég er eftir og tíni skeljar og minningarbrot. Engum er ljóst, hvaðan lagt var af stað, né hver lestinni miklu ræður. Við sláumst í förina fyrir það, jafnt fúsir sem nauðugir, bræður! Og hægt hún fer, en hún færist um set, þessi fylgd yfir veginn auðan, kynslóð af kynslóð og fet fyrir fet. Og ferðinni er heitið í dauðann. (Tómas Guðmundsson.) Þín Heba. Það voru forréttindi að vera tengdadóttir Þóris Jónssonar. Fyrir 30 árum fylgdi ég Bigga mínum í heimsókn til föður hans og Láru. Mér var tekið opnum örmum frá fyrstu stundu í Mosó innan um geltandi smáhunda og kærleiksríkar manneskjur. Þessi fyrstu kynni voru yndisleg. Þórir var alltaf kallaður afi á okkar heimili. Hann var hafsjór af fróðleik, sögumaður og minnið óþrjótandi. Þannig gat hann farið með heilu kvæðabálkana, vers eft- ir vers, 17 vísur sem runnu lauflétt í réttri röð. Og afi var alla tíð öfl- ugur skíðamaður, langflottastur í brekkunum í Aspen. Þar áttum við fjölskyldan margar ljúfar stundir saman, útiþreytt og alsæl í fannhvítri veröld. Þannig leið hon- um best. Myndin er falleg af þeim Þóri og Láru á ströndinni í Sarasota fyrir skömmu. Sólhlíf, bók á nefi og samtölin innihaldsrík og dýr- mæt. Dag hvern á sama tíma tók Þórir sundsprettinn sinn og gönguferðina – spengilegur öld- ungur sem vissi hve sálin er heil- brigð í hraustum líkama. Það var kærkomin heimsókn þegar Þórir kom við á skrifstofunni okkar Bigga á Suðurlandsbraut. Stund- um bað hann mig að slá inn texta, jafnvel minningargreinar sem hann samdi blaðlaust á staðnum, úthugsaðar og meitlaðar. Þórir hafði alltaf stóra sýn. Hann var bjartsýnn að eðlisfari og mótaði sér hugsjónir. Þannig gaf hann hljómfagran tón inn í fundi skíðadeildar KR og kom af mikl- um myndarskap og dugnaði að uppbyggingu skíðastarfs í Skála- felli, sem fljótt varð sameiginlegt áhugamál okkar. Það var ekki síst fyrir hans frumkvæði, hvatningu og eljusemi að við KR-ingar hóf- um baráttu fyrir opnun Skálafells á ný og það tókst. Dugnaður og þor einkenndi hans störf, hvort heldur í vinnu eða áhugamálum. Þeir eiginleikar urðu svo sterkir og áhrifaríkir í bland við hógværð og lítillæti sem einkenndi hans persónu. Markmiðið var alltaf að láta verkin tala og ánægjan fólst í því að líta gott dagsverk, fremur en að fá hrós og upphafningu. Þann einstaka eiginleika erfði son- ur hans líka, Biggi minn, sem féll frá svo alltof snemma. Við bjugg- um til ótal fallegar minningar með Þóri og Láru. Þannig spann vin- átta sig áfram á milli feðga þegar uppeldishlutverkinu var löngu lokið. Við deildum ýmsum áhuga- málum en þar var ástríðan á íþróttum hvað sterkust. Og þótt hann stundaði ekki golf þá kenndi hann mér gagnlegar kúnstir sem hann lærði af golfþáttum í sjón- varpinu. Þórir skilur mig eftir með góð- ar gjafir. Stærsta gjöfin er hann Biggi og ættleggurinn okkar sem heldur áfram. Afi var og verður alltaf sterk fyrirmynd barna okk- ar. Lífsgleði, eljusemi, kraftur og sýn eru gjafirnar hans til þeirra. Yfir þetta stráir hann svo æðru- leysi og lítillæti. Við erum rík að hafa átt Þóri Jónsson. Þegar reið- arslag dundi yfir og eiginmaður minn og einkasonur Þóris féll frá, þá hrundu himnarnir yfir okkur. Þórir stóð þá eins og klettur við hlið mína og barnanna. Hann og Lára slógu um okkur skjaldborg sem stendur alltaf. Þakklæti er orð dagsins. Þakk- læti fyrir dug og þor, kærleikann og styrkinn sem við eigum áfram – og gleðina alla eftir ljúfu samferð- ina. Anna Laufey Sigurðardóttir. Þórir Jónsson er allur. Hann var ótrúlegur maður. Það er ekki oft sem það á við, en hann var kominn yfir nírætt og var frá unga aldri allt til síðasta dags sí- virkur, vakandi og alltaf að. Kom víða við. Fá orð lýsa honum betur. Síðustu mánuði trúi ég hann hafi undirbúið fráfall sitt, vitandi að endalokin væru nærri. Hann tók þeirri áskorun af karl- mennsku. Tólf stundum eftir komu á líknardeildina skildi hann við þennan heim, þá búinn að kveðja alla þá sem næst honum stóðu, búinn að tryggja að öllum æviatriðum væri til haga haldið, svona ef einhver vildi minnast hans. Hvernig Þórir tókst á við loka- stundir sínar er okkur lærdóms- ríkt, svo margt mátti af honum læra, þó kraftur hans og drift verði ekki kennd. Besta lexían sem hann kenndi mér var að gef- ast aldrei upp, líta aldrei til baka, takast á við mótlætið sem mætir okkur öllum fyrr eða síðar, láta ekki bugast heldur takast á við andstreymi og læra af því. Hann ástundaði núvitund áður en hugtakið varð til. Og tíu þúsund skref, sem hollt er að ganga dag- lega, gekk hann dag hvern í nær 40 ár, löngu fyrr en læknar og heilsugúrúar fóru að kenna þá lífs- nauðsyn. Í huga Þóris var ekkert sem hét eftirlaun eða starfslok. Hann var alltaf að, það var tilgangur hans: Að lifa lífinu. Þórir var framtakssamur, framsýnn og forsjáll. Fram- kvæmdaskáld, eins og Matthías Johannessen páraði í bók til Þóris og tileinkaði með þessu heiti. Í raun tók Þórir sér fátt fyrir hend- ur til að auðgast. Hann skipti öllu máli að koma hugmynd í fram- kvæmd, gera hana að veruleika. Hann var frumkvöðull, aftur löngu fyrr en hugtakið varð á allra vörum. Nýjungarnar sem hann flutti til landsins voru óteljandi. Flestar stórar og stórhuga en sumar smærri. Ávallt eitthvað sem honum þótti vanta og ætti er- indi við þjóðina. Þórir var meira og minna sjálf- menntaður. Hann hóf nám í menntaskóla en bóknámið þótti honum of hægfara. Hann brá sér í myndlistarnám en þótti listagyðj- an hægfara líka. Í staðinn tók hann iðnskólann og lauk þar námi í vélvirkjun. Hann lærði erlend tungumál, fleiri en tvö. Einar Ben og Stein kunni hann utanað og Íslendinga- sögurnar voru sem meitlaðar í stein í huga hans. Og allar nútíma- bókmenntir voru til á heimili hans í Blikanesi. Snemma fór Þórir að kaupa myndlist. Og ekki fór hann troðn- ar slóðir. Allir keyptu Kjarval og Jón Stefánsson, en Kristján Dav- íðsson var maður Þóris. Ekki þekkti ég meiri hægrimann en Þóri, þó dró hann listamenn ekki í dilka eftir stjórnmálaskoðunum. „Kommissioneraði“ Kristján til að mála portrett af Nóbelsskáldinu, sínum uppáhaldsrithöfundi, sem er dýrgripur. En mest bar á Þóri í verslun og viðskiptum. Fyrir honum voru peningar hreyfiafl til að „skapa“ – velta þeim áfram, búa til eitthvað nýtt. Það er eftirsjá að Þóri Jóns- syni, enda er saga hans heil öld í atvinnusögu Íslendinga: hann ruddi ekki bara skíðabrautir held- ur opnaði svo marga vegi að marg- ir fara í hans spor. Fæddur til for- ustu, ávallt hreinn og beinn, kom til dyranna eins og hann var klæddur. Blessuð sé minning hans. Meira: mbl.is/minningar Sigurjón Sighvatsson. Elsku afi, Ég veit ekki hvernig ég get þakkað þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þú hefur elskað mig, fætt og klætt, kennt mér og stutt mig. Ég hef alltaf verið mikið hjá þér og ömmu. Þú tókst mér opnum örmum og varst afi minn, þrátt fyrir að við séum ekki blóð- skyld. Þú vaknaðir með mér snemma á morgnana og gafst mér Kellogg’s Frosted Flakes eða harða kringlu og heitt kakó, síðan kúrðum við yfir barnatímanum þar til amma vaknaði rétt fyrir há- degi. Þú settir upp róló í gróður- húsinu og smíðaðir dúkkuhús. Þú leyfðir ömmu að dekra við mig umfram það sem góðu hófi gegnir og tókst þátt í því með henni. Þú kenndir mér ljóð og um bók- menntir. Þú kenndir mér að skíða og tókst mig með í ófáar skíðaferð- ir til Aspen. Þið amma komuð til móts við mig þegar mest hefur á reynt og hafið stutt dyggilega við bakið á mér. Fyrir það og svo miklu meira er ég gríðarlega þakklát. Takk fyrir samveruna, elsku afi, það verður tómlegt án þín. Þín Stefanía Lára. Ég kveð frænda minn, Þóri Jónsson, en við vorum góðir vinir frá unga aldri. Mæður okkar frá Stykkishólmi fluttu til Reykjavík- ur sem kornungar konur eftir að faðir þeirra dó. Þau systkinin höfðu misst móður sína nokkrum árum fyrr. Faðir þeirra var far- sæll skipsstjóri, en eftir andlát hans leystist heimilið upp og þær þurftu að sjá fyrir sér. Nokkrum árum síðar flutti Ásta, yngsta systirin, einnig til Reykjavíkur og voru þær systur mjög samheldnar og fjölskyldur þeirra tengdust sterkum böndum. Fyrstu árin í Reykjavik voru ekki auðveld, en þegar við Hannes bróðir og Þórir frændi vorum ung- lingar fluttum við öll í Meðalholt 9. Þar höfðu Sigga frænka og mamma ásamt fjölskyldum eign- ast nýjar íbúðir sín á hvorri hæð- inni. Fjölskyldutengslin voru ræktuð þegar afkomendur Siggu „uppi á lofti“ og Mæju móður minnar hittust í Meðalholtinu og þar var oft glatt á hjalla. Þórir var mikill skíðamaður. Eftir að hann eignaðist bíl bauð hann mér oft með sér á skíði gegn því að ég tæki til nesti fyrir okkur bæði. Hann var sannur KR ingur og þótti miður að ég væri í ÍR. Þórir var frekar dulur, en á fjöll- um var hann alsæll og ræðinn og þar styrktust vináttubönd okkar. Þórir var góður tæknimaður og átti farsælan rekstur um áratuga skeið. Hann gaf syni mínum og tengdasyni góð ráð þegar þeir hugðust hefja nám í tæknifræði í Noregi og hvatti þá til dáða. Við Þórir hittumst reglulega þar til aldur og heilsa hömluðu för. Ég er einlæglega þakklát fyrir vináttu okkar og frændrækni, hann var drengur góður og ég kveð hann með söknuði. Ég og fjölskylda mín sendum fjölskyldu Þóris og aðstandendum innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi allt gott styrkja ykkur. Herdís Jónsdóttir. Kveðja frá Skíðadeild KR Við kveðjum í dag góðan félaga, Þóri Jónsson, sem látinn er á 91. aldursári. Þórir gekk ungur að ár- um í raðir skíðamanna í KR og keppti fyrir hönd félagsins með góðum árangri. Hápunktur keppnisferilsins var þegar hann keppti á Vetrarólympíuleikunum í St. Moritz árið 1948. Þórir lýsti þeirri ferð nýlega á félagsfundi skíðadeildarinnar og var hún greinilega mikið ævintýri. Þóri var alla tíð mjög umhugað um vöxt og viðgang skíðaíþróttar- innar og ekki síst uppbyggingu skíðasvæðis KR-inga í Skálafelli. Hann varð fyrst formaður Skíða- deildar KR starfsárið 1949-1950, ári eftir St. Moritz-förina, og aftur árin 1951-1961. Síðan varð hann formaður Skíðasambands Íslands árin 1969-1974 og sat í stjórn sam- bandsins í 19 ár. Formannsár Þóris hjá skíða- deildinni voru mikill umbyltinga- tími. Fyrst brann skíðaskáli sem KR átti í Hveradölum og skömmu síðar aðalskáli félagsins víð Grens- gil í Skálafelli árið 1955. Þá var ákveðið að reisa nýjan við Beinagil, vestar í Skálafelli, eftir miklar umræður um snjóalög og brattar brekkur. Þórir var í bygginganefnd ásamt fleiri vösk- um mönnum og árið 1959 var nýr og glæsilegur skáli vígður. Fátt var til sparað og m.a. leitt rafmagn í Skálafell um langan veg. Ekki var þó látið þar við sitja, heldur var vígð ný fullkomin skíðalyfta við skálann árið 1961, fyrsta Doppelmayr-lyfta norðan Alpa- fjalla segja fróðir menn. Þessi tog- lyfta var fyrsta varanlega skíða- lyftan á Íslandi og mikil lyftistöng fyrir skíðaíþróttina. Eftir því sem skíðaiðkun varð vinsælli og höfðaði meira til al- mennings sem fjölskylduíþrótt þurfti frekari uppbyggingar við. Þórir hvatti menn og örvaði og stóð sjálfur í stafni ef með þurfti. Árangurinn lét ekki á sér standa frekar en áður. Á árunum 1974- 1982 risu tvær nýjar toglyftur austar í Skálafelli þar sem brekk- ur höfðuðu meira til hins almenna skíðamanns og loks 1200 metra löng stólalyfta sem enn er lengsta stólalyfta á Íslandi. Auk þess voru keyptir snjó- troðarar frá Austurríki fyrir milli- göngu Doppelmayr-fyrirtækisins en þar áttu KR-ingar góða að alla tíð fyrir tilstuðlan Þóris. Þrátt fyrir annasamt starf sem forstjóri stórs bílaumboðs gaf Þórir sér alltaf tíma fyrir KR og tók virkan þátt í öllum þessum verkefnum. Síðustu árin hafði hann mikinn áhuga á nýtingu norðurhluta Skálafells en þau áform bíða nú um sinn. Fyrir sitt óeigingjarna starf var hann sæmdur Heiðursstjörnu KR, sem er æðsta heiðursmerki félagsins, en aldrei mega fleiri en 20 félagar bera þetta merki. Þórir var vörpulegur maður, hávaxinn, grannur og hærður vel. Eins og áður sagði var hann skíða- maður góður og renndu margir öf- undaraugum til hans, er hann sveif fyrirhafnarlaust niður brekkurnar með skíðin klemmd saman, með bros á vör. Þar var okkar maður í essinu sínu. Að leiðarlokum kveðja skíða- menn í KR Þóri Jónsson með þökk og virðingu og þakka ára- tuga samfylgd. Við sendum Láru, konu hans, og öðrum aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur. Þeirra missir er mikill. Guð geymi góðan dreng. Fyrir hönd Skíðadeildar KR, Guðmundur Guðjónsson, formaður. Þórir Jónsson ✝ SigurbjarniKristinsson fæddist í Reykjavík 26. september 1928. Hann lést á heimili sínu, 4 Glenwood Road, Toms River, New Jersey, USA, 1. janúar 2017. Foreldrar hans voru Kristinn Hall- dórsson og Margrét Þórdís Víglundsdóttir. Hinn 29. apríl 1950 giftist Sigurbjarni, Ás- laugu Bjarneyju Matthíasdóttur. For- eldrar hennar voru Matthías Matthías- son og Kristín Krist- jánsdóttir. Þau eign- uðust þrjú börn: Margréti, f. 12. júlí 1950, Kristin Ragn- ar, f. 8. maí 1952, og Bjarna, f. 19. októ- ber 1957. Barnabörn eru þrjú og þrjú barnabarnabörn. Jarðsetning duftkers verður í Gufuneskirkjugarði í dag, 13. júlí 2017, klukkan 14. Í dag fylgi ég föðurbróður mínum, Bjarna, síðasta spölinn. Þegar ég fyrst man eftir mér bjuggu þeir bræður, faðir minn og Bjarni, í tvíbýlishúsi í Kópa- vogi. Árið 1960 tók Bjarni sig upp með fjölskyldu sína og fluttist til Bandaríkjanna í leit að betra lífi. Þau settust að í Toms River í New Jersey. Þeim vegnaði vel, börnin komust til mennta og sjálf áttu þau gott og hamingjuríkt líf. Rúmlega sextug gátu þau hjón hætt að vinna, notið lífsins og lagst í ferðalög. Þau ferðuðust mikið um Evrópu en einnig víðar, t.d. um Suður-Ameríku. Stuttu eftir 65 ára hjúskaparafmæli lést Biddý eftir stutta sjúkdómslegu. Þau höfðu sterkar taugar til átt- haganna og höfðu ákveðið að á Ís- landi vildu þau vera lögð til hinstu hvílu. Eftir jarðsetningu Biddýjar í Gufuneskirkjugarði átti Bjarni fá erindi í lífinu önnur en að vitja hennar þar. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir ánægjulegar samveru- stundir og góðar móttökur í öll- um ferðum okkar hjóna til Toms River. Sigurður Konráðsson. Sigurbjarni Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.