Morgunblaðið - 13.07.2017, Síða 24

Morgunblaðið - 13.07.2017, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2017 ✝ Jón TorfasonÁgústsson fæddist í Reykja- vík 25. apríl 1936. Hann lést á gjör- gæslu Landspít- alans 5. júlí 2017. Faðir hans var Ágúst Jónsson, fæddur í Há- konarbæ 1896, dá- inn 1969. Móðir hans var Magda María Balzeit Jónsson, fædd í Þýskalandi 1910, dáin 1966. Systkini Jóns eru: Theodór Helgi, Hans, látinn, Guðríður, Ágústa, Torfi Halldór og Geir. Jón giftist Huldu Jósefsdóttur, þau skildu. Saman eiga þau fimm börn: 1) Ágúst Jósef, f. 1959, maki Laufey K. Bernd- sen. Börn þeirra eru: Mikael Karl, f. 1982, dóttir Izabella. Jón Ernst, f. 1986, börn: Ágúst Breki og Elma Karitas. Fríða Mónika, f. 1993, barn: óskírð stúlka. Fyrir átti Ágúst Heru, f. 1980, börn: Stefán Svanberg, Jökull Þór, Þórunn Sif og Svanborg Ósk. 2) Bára, f. 1961, maki Gunnar Hafsteinsson. Börn: Alfreð Hrafn, f. 1980, Hulda María, f. 1988, Guðrún Anna, f. 1991, Berglind Rún, f. 1995. 3) María, f. 1964. Börn: Bjarni f. 1985, og Magda kvæmdastjórn Sumargleðinnar í um áratug. Sá um keyrslu hljómsveita sem spiluðu í Klúbbnum og keyrði börn úr sendiráðum í skóla á Keflavík- urflugvelli. Hann var einn af stofnendum Hópferðamið- stöðvarinnar og hóf keyrslu ferðamanna. Hann var víðför- ull og hafði yfirgripsmikla þekkingu á landinu og auð- æfum þess. Hann hætti með rútur og stofnaði Guesthouse Duna ásamt Dúnu eiginkonu sinni og þau ráku það í nokkur ár. Síðar tók við leigubílaakst- ur hjá Hreyfli og þar lauk hann starfsferli sínum. Hann var mikill frumkvöðull og dugnaðarforkur, fékk við- urnefnið Gusturinn snemma þar sem gustaði af honum þar sem hann fór. Hann byggði hús fyrir fjölskylduna á Stað- arbakka 30 í Breiðholti 1969 og var síðar frumbyggi í Graf- arvogi 1984. Hann heillaðist af Heilsuhælinu í Hveragerði og keypti sér þar raðhús og bjó til æviloka. Hann var mikill nátt- úruunnandi og ferðaðist víða hér heima og erlendis. Hann var mikið snyrtimenni og báru bílarnir og umhverfi hans þess merki og seinni ár fékk hann mikinn áhuga á garðrækt. Eft- ir starfslok fór hann að grúska í ættfræði og útbjó möppu með upplýsingum og sögum Hákonarbæjarættarinnar og gaf fjölskyldunni. Jón verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 13. júlí 2017, klukkan 13. María, f. 1999. 4) Marta, f. 1966, maki Ragnar Magnússon. Börn: Hjalti Freyr, f. 1991, Hafþór Ingi, f. 1995, Eva María, f. 2000. 5) Dórót- hea, f. 1973, maki Helgi Schiöth. Börn: Ólafur Már, f. 2000, Hákon Arnar, f. 2002, og Lilja Björt, f. 2012. Fyrir átti Helgi: Brynjar, Hafstein og Þorvald. Jón giftist Dúnu Bjarnadóttur 1989, þau skildu. Góð vinkona hans síðustu ár var Guðlaug Bjarnadóttir. Jón var fæddur og uppalinn í Grjótaþorpinu. Hann bjó í Mjó- stræti 10 „Hákonarbæ“ þar sem forfeður hans höfðu byggt upp ættaróðal. Hann var snemma kraftmikill og fór ung- ur í sveit á Bala í Þykkvabæ. Síðan fór hann að sendast á sendlahjóli í Kiddabúð í Garða- stræti og 17 ára eignaðist hann sinn fyrsta bíl og þá varð ekki aftur snúið, bílstjóri varð ævi- starfið, fyrst á Nýju sendibíla- stöðinni. Síðar keypti hann rútu og keyrði m.a. hljóm- sveitir Svavars Gests á héraðs- mótum um land allt. Síðan sá hann um keyrslu og fram- Elsku pabbi. Hefst þá fyrsta samtal af mörgum sem við munum eiga á þessari rás. Þetta er pínu skrýtið. Nú þegar þú ert kominn á nýjan stað þá er æfing að nýta þennan samskiptamáta og stilla sending- ar frá Gustinum en ég er þess fullviss að við reddum okkur. Amma og afi og Hansi tóku vel á móti þér og nú líður þér vel. Jarð- nesk einkenni fara að hverfa og brátt geturðu risið úr rúmi og lit- ið augum þessa ólýsanlegu lita- dýrð sem fylgir heiminum þarna hinum megin. Þú átt líka eftir að leita uppi gömlu félagana. Ég er hins vegar ekki viss um að þú finnir þér rútu eða leigubíl til að burra á en það verður pottþétt fullt af fólki og mikið fjör í kring- um þig og eitthvað verður nú djókað! Verkefni þín á þessari jarðarkúlu voru ærin og við vor- um sammála um það að Bakkus var þér óþarflega oft fjötur um fót. Ég verð einhvern tíma að jafna mig á þessum breytingum, sakna þín þó við hefðum ekki tal- að saman á hverjum degi en minnist allra símtalanna þar sem orðaflaumurinn var slíkur að þú varst í miðri setningu í upphafi símtals, rétt eins og þú værir að halda áfram símtali síðasta mán- aðar. Þér lá oft mikið á þínu stóra hjarta og ansi skrautleg umræða oft á tíðum kryddaði líf mitt og markaði spor í mína verund. Ég er afar þakklát fyrir það. Bless í bili, pabbi minn, við hugsumst! Þín Dóróthea. Að setjast niður og skrifa minningargrein um föður sinn er eitthvað svo óraunverulegt, kipp- ir manni inn í aðstæður sem mað- ur vill ekki vera í, en þetta er samt það eina sem víst er í lífinu, við deyjum öll. Pabbi veiktist hastarlega á mánudegi og hélt í sitt síðasta ferðalag á miðviku- deginum. Hann hefur frá unga aldri haft viðurnefnið Gusturinn, þar sem engin lognmolla var í kringum hann, og því í hans stíl að enda langt ævistarf á svo snöggan hátt. Við pabbi vorum góðir vinir þó við værum ekki í miklu sambandi. Ég á eftir að sakna símtalanna hans sem byrjuðu alltaf eins „Sæl elskan“… Við vorum stundum upp á kant hvort við annað, en alltaf jafnaði það sig. Hann hafði gaman af því að segja sögur, komst stundum á mikið flug og þótti mér gaman að hlusta á sög- ur um gömlu góðu dagana. Hann lifði hálf ævintýralegu lífi og heimilið okkar var stundum eins og félagsmiðstöð tónlistarfólks þess tíma, mikið líf og fjör. En hann hafði ekki mikið um uppeldi okkar barnanna að segja eins og vant var um hans kynslóð. Hann vann mikið og var sjaldan heima og mamma sá um heimilið og börnin fimm að mestu leyti. En nokkrum sinnum fórum við með í ferðalögin sem hann elskaði, inn- an lands og utan. Honum þótti sopinn góður og það var stundum að þvælast fyrir honum en hann var mjög góður maður og lán- samur í lífinu. Eignaðist fimm börn, 16 barnabörn og átta barnabarnabörn. Eftir að hann og mamma skildu giftist hann yndislegri konu, henni Dúnu, og þau bjuggu sér fallegt heimili í Grafarvoginum. Hjónabandið entist ekki en pabbi var heppinn og hitti hana Guðlaugu og þau áttu góð ár saman, hann tengdist börnum hennar og barnabörnum sterkum böndum. Drottinn gaf og drottinn tók og eftir sitjum við með minninga- banka sem enginn getur frá okk- ur tekið. Pabbi er lagður af stað í sitt síðasta ferðalag og viss er ég um að Hansi bróðir hans sem lést ungur í flugslysi, leiði stóra bróð- ur inn á nýjar slóðir. Ég kveð hann pabba minn með söknuði og sting í hjarta. Og finn sterkt fyrir því að blóð er þykkara en vatn. Við ástvinir hans sem fylgdum honum síðasta spölinn á gjör- gæslu Landspítalans viljum þakka þeim yndislegu starfs- mönnum sem þar eru, fyrir dásamlegt utanumhald og um- hyggju fyrir okkur á þeim erfiða tíma. Góða ferð, elsku pabbi minn. Bára Jóns. Elsku Nonni, eða afi Nonni eins og þú varst kallaður á okkar heimili. Það er skrítið að setjast niður og skrifa kveðju til þín. Mig langar til að þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman og þó sérstaklega hversu góður þú varst við Hlyn Snæ, það eru ófá prakkarastrikin sem þið brölluð- uð saman í Hveragerði, en ég ætla ekki að fara nánar út í þau hér heldur munum við rifja þau upp saman og minnast þín þann- ig, með gleði í hjarta. Hvíl í friði, elsku Nonni. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi (23. Davíðssálmur.) Guðlaug Rún Gísladóttir. Kæri Nonni, Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Takk fyrir góðar samveru- stundir og vináttu. Þín vinkona, Guðlaug (LauLau). Á fyrstu áratugum bílaaldar- innar hér á landi var mikill æv- intýraljómi yfir þekktustu bíl- stjórunum, einkum rútubílstjórum og fjallabílstjór- um á borð við Guðmund Jónas- son, Pál Arason og fleiri. Vinsæl- Jón Torfason Ágústsson✝ Magnús Jón-asson, skrúðgarðyrkju- fræðingur, fæddist 15. júlí 1944 í Reykjavík. Hann lést í faðmi fjöl- skyldunnar á heimili sínu, Engjavöllum 5, laugardaginn 8. júlí 2017. Foreldrar Magnúsar: Jónas Sigurður Jónsson, garðyrkjufræðingur, f. 9. júlí 1917, d. 30. maí 1987, og Kristín Halldóra Kristjáns- dóttir, verslunarkona, f. 8. jan- úar 1922. Bræður Magnúsar; Kristján, f. 4. maí 1947, prent- ari, Ásmundur, f. 21. desember 1948, blómaskreytingameistari, Jón Ingvar, f. 25. júlí 1958, framt gaf hann út tvær bækur um sín helstu áhugamál, garð- yrkju og matreiðslu. Magnús var virkur í félagsmálum. Á sínum yngri árum sýndi hann glímu víða um land. Hann starfaði lengi fyrir JC, Kiwanis og Knattspyrnufélagið Hauka. Hann var formaður JC Hafnar- fjarðar, formaður og stofn- félagi Kiwanis-félagsins Hraunborgar og formaður Knattspyrnudeildar Hauka. Hann var duglegur að halda námskeið í ræðumennsku og framsögu, jafnframt því sem hann kenndi skák og frí- merkjasöfnun í grunnskólum. Magnús hafði yndi af ættfræði og eyddi löngum stundum í ættfræðigrúsk og skráningar á ættartölum. Eftir hann liggur ómetanlegt safn ættfræðiupp- lýsinga. Jarðarför Magnúsar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 13. júlí 2017, klukkan 15. skrúðgarð- yrkjumeistari. Börn Magnúsar; Jónas Trausti, f. 1964, Anton, f. 1966, Jónas, f. 1968, Kristján, f. 1971, Rut, f. 1972, Styrmir, f. 1975, Ingvar, f. 1980. Barnabörnin eru 14 talsins. Magnús ólst upp við garðyrkju og gróðurstörf, en lærði framreiðslu og var þjónn og yfirþjónn til nokkurra ára. Um 35 ára aldur kallaði garðyrkjan á hann aftur og fór hann í Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Hann vann við garðyrkju, rak gróðr- arstöð, ritaði greinar og rit- stýrði garðyrkjutímariti; jafn- Góður félagi minn og vinur, Magnús Jónasson, er fallinn frá eftir erfiða sjúkdómslegu. Maggi Jónasar, eins og hann var ætíð kallaður, var einn af stofn- endum Kiwanisklúbbsins Hraunborgar árið 1985 og var hann forseti klúbbsins fyrstu tvö árin. Maggi markaði vissulega sín spor í starf klúbbsins, t.d. var hann upphafsmaður að villi- bráðardegi sem alla tíð hefur verið aðalfjáröflunarverkefni Hraunborgar og þannig styrkt bæði félagasamtök og einstak- linga. Maggi var svæðisstjóri Ægissvæðis árið 1991-1992 og einnig lét hann vel til sín taka innan Kiwanisumdæmisins Ís- land – Færeyjar. Maggi var fastur á sínum skoðunum og óhræddur við að kynna þær bæði í ræðu og riti, því að þótt Maggi hafi ekki verið hár í loftinu var hann stórhuga. Undanfarin ár hefur Maggi ver- ið skjalavörður klúbbsins og vann að því að skrásetja sögu hans. Ég varð þeirrar gæfu að- njótandi að kynnast Magga á fyrstu árum Hraunborgar og hans elskulegu konu, henni Sig- urbjörgu. Áttum við margar góðar stundir saman bæði í leik og starfi. Maggi átti við heilsu- leysi að stríða mörg undanfarin ár en alltaf var hann þó jákvæð- ur og kappsfullur í þeim verk- efnum sem unnið var að. Nú undir lokin, þegar Maggi var orðinn fársjúkur, var hann enn að skipuleggja starf Hraunborg- ar til framtíðar. Þvílíkur hugur. Þótt Maggi hafi verið ötull kiw- anisfélagi lét hann til sín taka á öðrum vettvangi í öðrum fé- lögum, því að umfram allt var Maggi góður félagi og mikill leiðtogi sem við lærðum mikið af. Ég vil fyrir hönd Kiwanis- klúbbsins Hraunborgar votta fjölskyldu Magnúsar okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minn- ing Magnúsar Jónassonar. Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Hraunborgar, Egill Jónsson. Um hásumar þegar ilmur blómanna berst að vitum okkar, garðar landsmanna skarta sínu fegursta og allur gróður nýtir dagana til hins ýtrasta og minnir á hvað lífið getur verið litskrúð- ugt og yndislegt. Það var því þversögn við þetta þegar okkur bárust fregnir af andláti Magn- úsar Jónassonar garðyrkjufræð- ings og okkar góða JC félaga. Leiðir okkar Magnúsar lágu saman þegar við ungir menn gengum til liðs við JC Hafnar- fjörð. Magnús var einn af þeim sem unnu hvert verkefni af áhuga og fylgdu eftir ákvörðun- um af fullum krafti. Magnús vildi sjá árangur af þeim verkefnum sem hann tók sér fyrir hendur, ekki bara inn- an JC hreyfingarinnar heldur líka hjá Kiwanis og Haukunum, en með þessum félögum starfaði Magnús vel og lengi eftir að JC aldurinn var liðinn. Magnús var mikill vinur vina sinna, því var það alveg í hans anda þegar við boðuðum saman gamla JC fé- laga fyrir nokkrum árum sem margir höfðu þá ekki átt saman kvöldstund í 30 ár; eins og Magnús orðaði það við þetta tækifæri „að ófært væri að við hittumst bara í jarðarförum“. Þetta varð til þess að við þessir gömlu félagar höfum komið saman tvisvar á ári síðan og end- urnýjað samverustundir og minnst þess samstarfs sem að- ilar áttu á árunum 1978-1995. Magnús gegndi ýmsum ábyrgð- arstörfum innan JC hreyfingar- innar, var m.a. forseti JC Hafn- arfjarðar og svæðisstjóri Reykjanesfélaganna. Fyrir störf sín með og fyrir JC hreyfinguna var Magnús útnefndur „Sena- tor“ sem er viðurkenning sem þeir einir hljóta sem unnið hafa af metnaði og heilindum fyrir hreyfinguna. Einhverra hluta vegna varð það þannig að við Magnús unn- um saman að hinum ýmsu verk- efnum og áttum góðar stundir saman þó JC árin væru liðin. Það var gaman að fylgjast með Magnúsi sem nýtti kunnáttu sína til að gefa út tvær bækur um gróður, önnur þeirra er um blóm og garða og hin um rækt- um jurta sem nýta má til mat- seldar, bæði þessi rit fróðleg og einstaklega vel unnin. Magnús hafði í nokkuð mörg ár barist við illvígan sjúkdóm og var aðdáunarvert að verða vitni að því aftur og aftur að sjá hann og heyra hvernig hann tók lífinu alltaf af jákvæðni sama hvað á bjátaði. Það var mér dýrmætt að fá að heimsækja Magnús þremur dög- um áður en hann kvaddi, eiga með honum stund sem ég mun geyma um þennan góða félaga minn, en þar kom greinilega fram mikil kunnátta hans og áhugi á sumarblómum og sýndi hann mér litla garðinn sinn og fræddi mig um blómin og jurt- irnar þar. Þegar við kvöddumst gaf hann mér seinni bókina sína og áritaði hana fyrir mig. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum saman, hvort heldur það var í góðu spjalli eða þeim verkefnum sem við tókum okkur fyrir hend- ur innan JC og utan. Ég veit að ég tala fyrir hönd okkar gömlu samstarfsfélaga JC þegar við þökkum Magnúsi hans hvatningu og elju í gegnum leik og starf sem við öll nutum á þeim tíma. Um leið og ég færi Sigurbjörgu, börnum og barna- börnum innilegar samúðar- kveðjur þakka ég þeim þá ást og umhyggju sem þau sýndu Magn- úsi á síðustu árum í veikindum hans. Hafsteinn Þórðarson. Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Haukum Fyrir um 30 árum kom til starfa í félaginu hress og kraft- mikill maður, Magnús Jónasson, og fór mikinn. Knattspyrnudeild félagsins hafði um nokkurt skeið verið í djúpum öldudal og meist- araflokkur karla í 4. deild og ein- ungis þrír yngri flokkar starf- andi. Það var eins og stormsveipur færi um félagið við komu Magnúsar. Ný deildar- stjórn kosin og Magnús þar for- maður. Og ekki var setið við orð- in tóm, nú skyldu verkin tala. Starfsnefndir voru skipaðar, allt starf knattspyrnudeildar endur- skipulagt og árangurinn lét ekki á sér standa. Strax haustið 1989 vinnur meistaraflokkur karla Ís- landsmeistaratitilinn í 4. deild með fullu húsi stiga og yngri- flokkastarfið efldist að mun. Ár- ið eftir vannst 3. deildin og yngri flokkarnir orðnir 14. Algjör um- skipti höfðu orðið í starfsemi deildarinnar bæði hvað varðar fjölda iðkenda og árangur. Segja má um Magnús eins og sagt var um ágætan leiðtoga, „hann kom, hann sá og sigraði“. Nú að leiðarlokum vill félagið þakka Magnúsi góð störf í þess þágu og sendir eiginkonu og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Megi minning Magnúsar Jón- assonar lifa. Fyrir hönd aðalstjórnar Hauka, Bjarni Hafsteinn Geirsson. Magnús Jónasson Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, SIGRÍÐUR INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 5. júlí á líknardeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. júlí klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans. Ólafur J. Kolbeins Ósk Laufdal Sjöfn S. Kolbeins Sigurður Jensson Guðborg H. Kolbeins Tómas Sveinbjörnsson Júlíus Kolbeins tengdabörn, barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.