Morgunblaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2017 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum EM 2017 Hvað veist þú um stelpurnar okkar? Alla vikuna verður spennandi spurningakeppni á K100 þar sem allar spurningarnar tengjast stelpunum okkar sem eru á leiðinni á EM. Fylgstu með á K100 og taktu þátt! Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Hátíðin er byggð á annarri hátíð sem haldin var á Stöðvarfirði og hét Maður er manns gaman þar sem fólk skemmti sér án þess að eyða pen- ingum,“ segir Gígja Sara Björnsson sem ásamt Hauki Björgvinssyni og Viktori Pétri Hannessyni stendur að hátíðinni Pólar Festival sem fram fer á Stöðvarfirði um helgina. Hún seg- ir upphaflegu pælinguna hafa verið svipaða en að þau vildu líka bjóði fólki annars staðar að. Sam- kvæmt tilkynn- ingu byggist há- tíðin á hugmynd- inni um hæfileika- samfélagið og er markmiðið að kynna fólk fyrir Stöðvarfirði og Stöðvarfjörð fyrir fólki. Ekki stærri en hún á að vera Meðal þess sem í boði verður á há- tíðinni er fiskflökun, rabarbara- veisla, leiksýningar, uppistand, tón- leikar, brúðuleikhús og gjörningar. Eru allir þessir viðburðir í boði þorpsbúa eða gesta annars staðar að sem koma á hátíðina. „Svo verðum við með sögulegan ratleik fyrir krakkana.. Í botni Stöðvarfjarðar er verið að grafa upp merkar forn- minjar frá forstigi landnámsins svo saga staðarins er mjög gömul,“ segir Gígja. Hátíðin var fyrst haldin árið 2013 og er haldin á tveggja ára fresti svo þetta verður í þriðja sinn sem hún er haldin. Gígja segir virka þátttak- endur yfirleitt vera á bilinu 20 til 50 manns en að á tónleikunum í fyrra hafi mætt hátt í 250 manns. „Við reynum ekkert að hafa hátíðina stærri en hún á að vera. Fólk kemur sem vill koma.“ Ættarmót með ókunnugum Ljósmyndir/Gígja Björnsson Samvinna „Matinn fáum við annað hvort gefins, mat sem annars hefði endað í ruslinu, eða við öflum hans sjálf.“ Í tilkynningu kemur einnig fram að á hátíðinni leiki peningar eins lítið hlutverk og mögulegt sé. „Allir eru velkomnir og þetta er alveg ókeypis. Þá eru allir hvattir til þess að taka þátt í öllu með okkur, þetta er svolít- ið eins og ættarmót með fólki sem þú þekkir ekki. Allir eru tilbúnir að elda saman og troða upp,“ segir Gígja. Veiða fisk og tína jurtir Hún segir hátíðina fá styrki frá Uppbyggingarsjóði Austurlands. Styrkina segir hún fara í að koma til móts við bensínkostnað fólks sem ferðast langt að, sem og til þess að kaupa það sem þarf fyrir hátíðina eins og partítjald og kamra. „Matinn fáum við annað hvort gefins, mat sem annars hefði endað í ruslinu, eða við öflum hans sjálf. Sumir hátíð- argestir veiða fisk í matinn á meðan aðrir fara upp í fjall að tína jurtir til þess að krydda fiskinn með. Pen- ingar verða mjög afstæðir við það að vera í svona „micro“-samfélagi í smá tíma,“ segir Gígja. Hún vonar líka að Stöðfirðingar bjóði öðrum gestum hátíðarinnar í matarboð, það sé ein- staklega góð leið til að kynnast. „Við tókum líka eftir því þegar hátíðin var haldin í fyrst sinn þegar fólk var að elda saman þá kynntist það allt öðru- vísi. Við erum oft að finna einhverjar einfaldar lausnir að láta þetta virka og láta fólk kynnast.“ Í samhengi við það nefnir hún líka að þau hafi stofn- að Facebook-hóp sem nefnist Sam- ferða á Pólar (Carpoólar) þar sem fólk er hvatt til að vera samferða á hátíðina. Þannig kynnist fólk líka vel. Að lokum segir Gígja að hátíðin sé alltaf haldin helgina fyrir LungA vegna þess að þau langi líka að fara þangað. Hún segir þetta vera tilvalið stopp á leiðinni á LungA. „Á sunnu- deginum hjá okkur er mjög róleg dagskrá, við borðum pönnukökur og drekkum kaffi í gömlu kirkjunni og svo halda flestir áfram á LungA á Seyðisfirði.“  Pólar-hátíðin haldin í þriðja sinn á Stöðvarfirði  Fólk skemmtir sér án þess að eyða peningum Gígja Björnsson Hjálplegir Eitthvað er í boði fyrir alla aldurshópa á Pólar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.