Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2012, Síða 87
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS86
blandað uppmoksturslag, með dökkri og ljósri mold, ljósum gjóskuflekkjum
(H3/H4), torfsneplum, og gráleitri fíngerðri möl. Í torfinu vottaði fyrir svartri
og dökkgrænni gjósku sem gæti verið úr landnámslaginu. Skurðurinn var
mjög óreglulegur, um 190 cm langur, og um 90 cm breiður. Þegar fyllingin
var fjarlægð úr skurðinum sást að hann hefur verið grafinn ofan í mannsgröf
sem hefur verið ögn minni um sig. Upphaflegur grafarbotn hefur líklega verið
um 125 cm NNA-SSV, og 60 cm breiður. Ómögulegt er að segja um hve djúp
gröfin hefur verið, þar eð upphaflegar grafarbrúnir höfðu verið stungnar burtu
við síðari skurðgröft svo að aðeins var hægt að koma auga á 3-5 cm háa brún
niður við grafarbotn á stöku stað. Grafarbotninn var fremur sléttur og nam
við gráa malarlagið sem liggur undir moldinni, um 60 cm undir yfirborði.
Utan grafar voru jarðlög á sama veg og við 1. kuml: undir gjóskulagi V~1477
var óhreyft, ljósleitt moldarlag sem náði niður (20 cm) að forsögulegri gjósku
(H3) um fjögurra cm þykkri, þar undir meiri mold og loks gjóskulagið H4.
Undir henni var ljós mold og þá grá, fín möl og smáar steinvölur.
Gröfin liggur eins og í 1. kumli, þ.e. í N-S, og öll ummerki hin sömu,
nema að engin hrossgröf fylgdi þessu kumli. Engir gripir fundust í kumlinu,
en í fyllingunni í botni grafarinnar lágu fáein illa farin bein úr manni: hluti af
höfuðskel og kjálka og lærleggur við suðurenda, beinbrot sunnan við miðju
og í vesturbrún grafarinnar norðan við miðja gröf. Beinin eru úr fullorðnum
manni, líklega karlmanni, samkvæmt greiningu Hildar Gestsdóttur9.
Steinar úr kumlinu lágu hér og þar í fyllingunni og höfðu nokkrir verið
lagðir í hrúgu norðaustan við brún þess. Sennilega hafa þessir steinar hulið
kumlið áður. Eru þetta hnefastórir steinar, flestir um 10-15 cm í þvermál.
Niðurstöður og umræða
Rannsóknin á hólnum í landi Saltvíkur leiddi í ljós greftrunarstað sem
vafalaust er frá heiðni. Fundust þar tvö kuml. Eystra kumlið (kuml 1) hefur
eflaust verið mannsgröf, með hest eða hrosshluta í sérgröf við norðurenda.
Vestara kumlið var stakt. Ljóst er að kumlunum hafði verið verulega raskað og
hefur það gerst skömmu áður en V~1477 lagið féll. Gjóskulag úr Heklugosi
frá 1300 hefur fundist í nágrenninu10, en var ekki sýnilegt hjá kumlunum.
Ekki virðast fleiri grafir hafa verið á þessum hól. Á tveimur til þremur
stöðum eru dældir í hólinn og efst á honum er ásetuþúfa. Í kringum hana er
lítilsháttar upphækkun. Nokkru neðar og vestar eru tvær til þrjár aðrar lágar
upphækkanir. Allar virtust þessar þústir liggja nokkurn veginn eins við áttum
og kumlin. Var því leitað frekari ummerkja með litlum kjarnabor og borað