Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2012, Page 194
193NÝ LÖG UM MINJAVERND
mun hærri upphæð en hér er nefnd vegna Stangar sé markvisst og vel unnið
að verkefninu.
Mjög takmörkuðu fjármagni er veitt beint til stjórnsýslustofnunar
málaflokksins sé tekið mið af þörfum hennar og áætlunum sem stjórnvöldum
hafa verið kynntar á undanförnum árum. Við sameiningu Fornleifaverndar
ríkisins og Húsafriðunarnefndar ríkisins í Minjastofnun Íslands áramótin
2012-2013 urðu starfsmenn Minjastofnunar Íslands 12. Í byrjun árs 2013
voru ráðnir til viðbótar tveir arkitektar sem gegna saman 150% stöðu og
fjármálastjóri í fullt starf. Núverandi starfsmenn eru því 15. Samkvæmt
áætlun sem gerð var árið 2011 var talið að lágmark stöðugilda til að sinna
fornleifaþættinum eingöngu væri 23 og rekstarfjármagnið til að sinna þeim
þætti þyrfti að vera tæpar 300 m. kr. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2014
fær stofnunin einungis 127,7 m. kr.41
Eitt hlutverka Minjastofnunar Íslands er stjórnsýsla tveggja menningar-
minjasjóða, fornminjasjóðs og húsafriðunarsjóðs. Fornminjasjóður styrkti
samkvæmt eldri lögum fyrst og fremst fornleifarannsóknir og forvörsluverkefni.
Í 42. gr. laga nr. 80/2012 er ákvæði um að fornminjasjóði sé heimilt að veita
einnig styrki til viðhalds skipa, báta og annarra samgöngutækja, en í eldri
lögum hafði sjóðurinn ekki það hlutverk. Hér er verið að víkka hlutverk
sjóðsins á sama tíma og gert er ráð fyrir að framlag til hans lækki um 25%
árið 2014. Sama gildir um húsafriðunarsjóð sem verður skertur verulega árið
2014 samkvæmt frumvarpinu frá því sem var í fjárlögum 2013.
Í lögunum eru ný ákvæði varðandi gjaldtöku Minjastofnunar Íslands
og viðurlög og dagsektir. Þar er m.a. að finna heimildir til gjaldtöku fyrir
leyfisveitingar, ráðgjöf, sérfræðiþjónustu, afritun gagna og námskeiðahald.42
Viðurlög og dagsektir eru ný ákvæði í íslenskum minjaverndarlögum.
Minjastofnun Íslands getur lagt allt að 300.000 kr. dagsekt, fyrir hvern
byrjaðan dag, á framkvæmdaaðila sem vanrækir að skila öllum gögnum sem
varða skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja til stofnunarinnar; vanrækir
að verða við áskorun stofnunarinnar um að stöðva framkvæmdir í allt að
fimm virka daga vegna fundar áður ókunnra fornminja; vanrækir að viðhalda
friðlýstu húsi eða mannvirki eins og stofnunin hefur lagt fyrir eiganda að
gera; vanrækir að skila gripum sem finnast við fornleifarannsóknir eða skila
öllum gögnum og birta skýrslu um niðurstöður fornleifarannsókna.
Samkvæmt lögum eru ákvarðanir Minjastofnunar Íslands um dagsektir
aðfararhæfar.43