Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2012, Page 225
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS224
AÐALFUNDUR
Hins íslenzka fornleifafélags 2012
Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags árið 2012 var haldinn í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands, fimmtudaginn 13. desember kl. 16:00. Fundinn sóttu
36 félagsmenn.
Formaður félagsins, Ragnheiður Traustadóttir setti fundinn og greindi frá
starfsemi félagsins á árinu og útgáfu Árbókar 2011, sem dróst fram á þetta ár
vegna óviðráðanlegra orsaka. Svavar Sigmundsson lét af störfum sem ritstjóri
Árbókar og þökkuðu fundarmenn honum með lófaklappi fyrir gott starf.
Þá minntist formaður eftirtalinna félaga sem vitað er að látist hafa frá
síðasta aðalfundi. Þeir eru: Sr. Björn Jónsson frá Akranesi, Baldur Ingólfsson,
Guðmundur Páll Ólafsson, Jóhannes H. Proppé, Ingólfur Einarsson og
Magnús Bjarnfreðarson. Risu fundarmenn úr sætum til virðingar við hina
látnu félaga.
Þá las formaður upp reikninga félagsins í fjarveru féhirðis. Einnig kom
fram að fækkun félagsmanna væri mikið áhyggjuefni.
Birna Lárusdóttir, nýr ritstjóri Árbókar greindi frá nýjungum í sambandi
við útgáfuna. Helst má nefna samræmdar ritreglur fyrir höfunda, nýja
heimasíðu félagsins (hif.is), nýtt netfang o.fl. Þá hefur verið ákveðið að
Árbókin verði ritrýnd framvegis og hafa nokkrar greinar í næstu árbók þegar
farið til ritrýna.
Síðan flutti Guðmundur Stefán Sigurðarson fornleifafræðingur hjá
Byggðasafni Skagfirðinga, erindi sem hann nefndi: Stóriðja á miðöldum.
Rannsókn járnvinnsluminja á Skógum í Fnjóskadal. Sýndi hann margar
myndir til skýringar.
Svaraði hann fyrirspurnum bæði á meðan erindi stóð og á eftir og tóku
eftirfarandi fundarmenn þátt í umræðum: Bjarni F. Einarsson, Kristín Huld
Sigurðardóttir, Bjarni Þór Kristjánsson, Vala Garðarsdóttir, Árni Einarsson og
Ragnheiður Traustadóttir. Þökkuðu fundarmenn erindið með lófataki.
Fleira gerðist ekki og var fundi slitið kl. 17:40.
Guðmundur Ólafsson skrifari