Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 10. nóvember 2017fréttir
Spurning vikunnar Ertu byrjuð/byrjaður á jólainnkaupunum?
Já, ég byrjaði núna á miðnætursprengjunni í Kringlunni.
Ég er búin að kaupa þrjár gjafir.
Margrét Guðrúnardóttir
Já, en er ekki búin að kaupa mikið.
Jóna Sigurðardóttir
Nei.
Jón Ágúst Jónsson
Nei.
Bjarki Stefánsson
V
iðtökurnar hafa verið afar
góðar en ég veit ekki hvort
framhald verði á. Fram-
leiðsluferlið í litlu eldhúsi
er einfaldlega það mikil þolraun.
Ef einhver aðili með atvinnueld-
hús stingur upp á samstarfi þá
er ég meira en til. Íslendingar
eiga skilið að fá innlenda logandi
sterka sósu,“ segir Björn Teitsson
chili-unnandi í samtali við DV.
Björn stofnaði til Facebook-
hópsins vinsæla, „Ég ann chili“
ásamt olíuhagfræðingnum Þórði
Gunnarssyni. Þar hefur áhugafólk
um ávöxtinn vettvang til að ræða
úrval sterkra rétta á matsölustöð-
um borgarinnar, fengið góð ráð
um ræktun á chili-pipar og bent
á sterkar sósur sem eru fáanlegar
hverju sinni. Um þessar mundir
er úrvalið takmarkað og hóf Björn
því framleiðslu á sinni eigin sósu,
„ Habanero-draumur“. Nafnið er til-
vísun í meginuppistöðu sósunnar,
Habanero-chili, sem er ein heitasta
tegund ávaxtarins. Þá notaði Björn
einnig eigin uppskeru af thai-chili
sem chili-plantan hans, Jónína að
nafni, gaf af sér.
Strangt gæðaeftirlit
„Habanero er eitt eftirlætis afbrigð-
ið mitt af chili. Hann er afar sterkur
en mjög ávaxtaríkur og bjartur.
Hann hentar því vel í sósur að
mínu mati,“ segir Björn. Sósan ríf-
ur því vel í og hefur Björn leyft öðr-
um ástríðufullum áhugamönnum
um chili að njóta með sér, þó innan
ramma strangs gæðaeftirlits. „Ég
hef farið í nokkrar framleiðslulotur
sem seldust upp innan nokkurra
mínútna. Um síðustu helgi ætlaði
ég að framleiða í um 30 pantanir.
Fyrstu lotan var frábær en hinar
tvær voru því miður ekki í gæða-
flokknum sem ég vil halda mig við
– þess vegna komu bara 10 flöskur í
það skiptið,“ segir Björn.
Tuttugu sósuunnendur sem
vilja að bragðlaukarnir brenni
þurfa því að bíða enn um sinn og
treysta á takmarkað úrval stór-
markaða. „Úrvalið er ekki mikið
hérlendis en það sveiflast mikið.
IKEA seldi sterkar sósur um tíma
og Hagkaup pantar eitthvað inn af
og til. Þeir sem eru djúpt sokknir í
chili-sósuástríðuna eru að panta
sósur erlendis frá og það er dýrt
spaug,“ segir Björn.
Hann er afar ánægður með ís-
lenska chili-samfélagið sem hefur
myndast á síðunni. „Það eru
undantekningarlaust mjög nett-
ar týpur sem kunna að meta chili.
Það er ávanabindandi að borða
mikið af ávextinum og fólk kemst
í eins konar endorfínvímu við
neysluna. Sem er mjög holl víma,
held ég.“ n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Nettar týpur
kunna að meta chili
Björn Teitsson hefur framleitt logandi sterkar
chili-sósur sem njóta vinsælda hjá „chili-nördum“
Þetta helSt
ÞEssar fréttir bar hæst í vikunni
Barnavernd hrifsaði nýfætt barn úr
höndum móður sinnar
DV greindi frá því að nýfætt barn hjónanna Arleta
og Adam Kilichowska hefði verið tekið frá þeim
á fæðingardeild Landspítalans að kröfu Barnaverndarnefndar
Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Fólkið er búsett á Hellu en
áður hafði tveggja og hálfs árs gömul dóttir hjónanna verið tekin
af þeim. Lögmaður fólksins, Leifur Runólfsson, telur aðgerðir yfir-
valdsins vera of harkalegar og að beita mætti öðrum aðferðum til
að tryggja velferð barnanna. Fjölmiðlar í Póllandi hafa fjallað um
málið og hefur það vakið nokkra athygli þar ytra.
Sólrún: „Búin að gráta mjög mikið“
Einn vinsæl-
asti snappari
landsins, Sólrún
Diego, fékk yfir
sig holskeflu af gagnrýni í vikunni. Var hún
sökuð um að að neita að auglýsa styrktar-
reikning fyrir aðstandendur fjölskyldu frá
Hrísey sem lést í hræðilegu slysi föstudaginn
2. nóvember. Var Sólrún, sem um 20 þús-
und manns fylgjast með daglega á samfé-
lagsmiðlinum, einnig sökuð um að hafa viljað greiðslu fyrir aug-
lýsinguna. Sólrúnu var brugðið yfir ásökununum og sagði þær úr
lausu lofti gripnar. „Fyrir mér er þetta ekki einu sinni orðrómur
heldur aðför að minni persónu,“ sagði Sólrún í viðtali við Pressuna.
egill: að halda vinstri árunni hreinni
Egill Helgason fór yfir
refskákina sem er í gangi
í stjórnarmyndunarvið-
ræðum. Að hans mati
er stór hluti baklands
Vinstri grænna á móti
þeirri hugmynd að fara í
stjórn með Sjálfstæðis-
flokki. Því væri mik-
ilvægt fyrir Katrínu Jakobsdóttur, formann
flokksins, að fá Samfylkinguna með í stjórn
og gera flokkinn þannig „meðsekan“. Það vilji
Samfylkingin ekki. Þá telur hann að yfirlýs-
ingar Bjarna Benediktssonar um tvo stjórnarmyndunarkosti, ann-
an án Vinstri grænna, vera skilaboð til VG um að ef flokkurinn hiki
of lengi þá missi hann af tækifærinu.
Björn Teitsson Er ástríðufullur
áhugamaður um chili og allt sem
ávextinum tengist. Mynd Brynja