Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 10
10 Helgarblað 10. nóvember 2017fréttir A ð missa ástvin er áfall í sjálfu sér en ofan á það leggst fjárhagslegt púsluspil. Ef um eldri manneskju með nægar eignir í dánarbúi og um út­ listaðar dánaróskir er að ræða er auðveldara um vik en það er ekki alltaf raunin. Oft getur þessi kostn­ aður komið aðstandendum í opna skjöldu. Útförum í kyrrþey hef­ ur fjölgað mjög undanfarin ár en kostnaður við þær er yfirleitt um 300 þúsund krónur. Ef um hefð­ bundna útför er að ræða er heildar­ kostnaður yfirleitt á bilinu 700 til 1.500 þúsund. Þá eru erfidrykkjur orðnar mun hóflegri en áður. Ís­ lenskir ríkisborgarar þurfa ekki að greiða fyrir legstæði sín en erlendir ríkisborgarar þurfa að borga um 66 þúsund krónur fyrir stæðið. Útförum í kyrrþey fjölgað mikið Útförum í kyrrþey hefur fjölgað mjög á undanförnum árum að sögn Elínar Sigrúnar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Útfararstofu kirkjugarðanna. „Árið 2010 voru 43 útfarir í kyrrþey á öllu landinu, eða um 2 prósent. En árið 2016 voru þær orðnar 210 og það sem af er árs 2017 eru þær orðnar 218 eða tæp 12 prósent. Þetta er sexföldun á aðeins sjö árum,“ segir Elín. Hún segir þessa fjölgun ekki til­ komna vegna breytinga á þjóðfé­ lagsgerðinni heldur vegna hugar­ farsbreytinga og kostnaður skiptir þar mestu máli. „Eitt er hógværð hins látna. Margt fullorðið fólk óskar eftir því að hafa ekkert tilstand í kringum sína útför. En einnig heyr­ um við að margt fullorðið fólk hafi áhyggjur af erfidrykkjunni. Hérna bjóðum við upp á samtal um útför­ ina og spyrjum fólk hvernig útför­ in eigi að fara fram. Þar getum við rætt um hvort þessi ótti sé ástæðu­ laus. Kannski vilja börnin og barna­ börnin leggja saman á borð því erfi­ drykkjan er fólkinu mikilvæg.“ Elín er nýkomin af málþingi um þessi mál og segir nauðsynlegt að ræða kostnaðinn. „Við getum spurt okkur hvort við viljum hafa þetta svona. Þegar komið er að undirbún­ ingi útfarar segja ættingjar gjarnan að þeir sjálfir myndu frekar vilja að útförin væri opinber en nauðsyn­ legt sé að virða vilja hins látna.“ Kistan einn stærsti kostnaðarliðurinn Elín segir að kostnaður við út­ förina sjálfa sé yfirleitt í kringum 500 þúsund krónur. Stærstur hluti kostnaðarins er kistan sjálf sem kostar á bilinu 115 til 325 þúsund hjá útfararstofum. Bálfararkistur eru íburðarminni og kosta 95 þús­ und krónur og sumar útfararstof­ ur bjóða upp á margnota kistur sem er smeygt innan í íburðar­ meira hylki. Kostar hún vanalega um 70 þúsund og má bæði brenna og grafa. Margar útfararstofur rukka ekki fyrir líkkistur barna. Næststærsti kostnaðarliðurinn er útfararþjónustan sjálf við kistu­ lagningu og útför. Hún getur verið á bilinu 75 til 150 þúsund krónur. Prestþjónustan er greidd af ríkinu en sums staðar þarf að greiða fyrir kirkjuvörslu, á bilinu 5 til 15 þús­ und krónur. Elín segir algengasta fjölda gesta í kringum 150 manns og sálmaskrár fyrir þann fjölda kosta um 59 þúsund. Tónlistaratriðin eru nokkuð kostnaðarsöm og velur fólk yfir leitt kór eða einsöngvara. Elín segir: „Sex manna kór er lang algengastur og þá syngur oft einn úr kórnum einsöng.“ Miðað við taxta Félags ís­ lenskra hljómlistarmanna kostar sex manna kór 109.500 krónur en tíu manna 158.500. Ef einsöngvari er valinn í stað kórs kostar hann yfirleitt um 50 þúsund krónur. Al­ gengt er að fá organista til að spila bæði við kistulagningu og útför og samanlagt gerir það um 50 þúsund krónur. Við tónlistaratriðin bætist 5 prósent stefgjald og 10 prósent umsjónargjald. Tónlistaratriðin kosta því yfirleitt á bilinu 115 til 187 þúsund krónur. Við þetta bætast líkklæði, sæng og ýmsar skreytingar. Ef hinn látni er ekki í eigin klæðum og sæng kostar það á bilinu 10 til 15 þúsund krónur. Verð á skreytingum er mjög mismunandi. Hjá Útfararstofu kirkjugarðanna kosta altarisblóm 9 þúsund, kransar 25 til 38 þúsund og kistuskreyting 20 til 32 þúsund. Erfidrykkja Erfidrykkjur hafa breyst mjög mik­ ið á undanförnum árum og eru orðnar íburðarminni. Elín segir: „Það er orðið mjög vinsælt að fólk leggi saman á borð pönnukökur, kleinur, flatkökur og svoleiðis.“ Þá kosta veitingarnar lítið og eftir fá­ mennari jarðarfarir eru erfidrykkj­ ur stundum haldnar á heimilum. Algengara er þó að leigður sé salur, annaðhvort hjá safnaðarheimili eða félagasamtökum. Sem dæmi má nefna að salur safnaðarheim­ ilis Háteigskirkju kostar 62 þúsund krónur án starfsfólks. Tímakaup starfsfólks er yfirleitt á bilinu 2.500 til 3.000 krónur. Elín segir að ef veitingarn­ ar séu keyptar af veitingastað sé verðið á bilinu 1.750 til 2.490 krón­ ur á hvern gest. Ef erfidrykkjan er haldin á veitingastaðnum sé ekki rukkað sérstaklega fyrir afnot af staðnum. Tilkynningar Algengt er að fólk tilkynni andlát og auglýsi útfarir bæði í dagblöð­ um og í útvarpi. Misjafnt er hversu umfangsmiklar slíkar auglýsingar eru og hversu oft þær eru lesnar upp en oft er um þrjár birtingar að ræða, andlátstilkynningu, tilkynn­ ingu um útför og loks þakkir. Hjá Morgunblaðinu kostar dánartilkynning í ramma 19.390 krónur og minningargreinar eru ókeypis. Hjá Fréttablaðinu kostar dánartilkynning í ramma 18.912 krónur og tveggja dálka minning kostar 953 krónur. Hjá Ríkisútvarp­ inu kostar hvert upplesið orð 277 krónur. Dæmigerð dánartilkynn­ ing er 22 orð og 4.994 krónur en útfarartilkynning 34 orð og 9.418 krónur. Áætla má að auglýsinga­ kostnaður vegna dauðsfalls sé því í kringum 135 til 140 þúsund krónur. Leiði Íslenskir ríkisborgarar greiða ekk­ ert fyrir legstæði og jarðsetningu í íslenskum kirkjugörðum. Við erum búin að greiða það í gegn­ um skattana okkar. Ef um erlend­ an einstakling er að ræða kostar legstæðið 66.400 krónur og 39.200 krónur fyrir duftkersleiði. Kirkjugarðarnir sjá um alla al­ menna umhirðu (slátt, tyrfingu, moldarvinnu og fleira) án kostnaðar fyrir leiðishafa. Ef eitthvað sérstakt kemur upp á er tekið gjald fyrir það, til dæmis fjarlæging runna 4.000 og fjarlægingu trés 5 til 15 þúsund. Vegna niðurskurðar hefur þjónusta garðanna dregist saman en enn er hægt að fá sumarblómaþjón­ ustu og kostar hún á bilinu 7.411 til 9.761 hjá Kirkjugörðum Reykjavík­ ur. Verktakar sinna öðrum verkum, til dæmis jólaljósaþjónustu. Algengast er að kross sé settur á leiði í kringum útförina. Verð á krossum er á bilinu 11 til 17 þús­ und og áletrað skilti kostar um 7 til 10 þúsund krónur. Legsteinar eru oftast lagðir nokkru eftir andlát, til dæmis sam­ eiginlegan stein þegar bæði hjón eru látin. Þeir geta verið kostnaðar­ samasti einstaki hluti andlátsins og er verðið yfirleitt á bilinu 120 til 145 þúsund krónur fyrir minni steina á duftkersleiði og frá 180 til 700 þúsund fyrir stærri. Algengt verð legsteins fyrir eina manneskju er um 250 þúsund krónur og fyrir tvær eða fleiri 350 þúsund. Oft eru áletranir og uppsetn­ ingar innifaldar í verði steinanna. En ef þær eru það ekki er annað­ hvort rukkað fyrir hvert orð eða sem eina heild. Slíkur kostnaður er þá að minnsta kosti 20 þúsund krónur og enn meiri ef steinarnir eru skreyttir með myndum eða skrauti. Séu valdar luktir eða vasar á legsteininn kostar það yfirleitt á bilinu 30 til 50 þúsund krónur. Hægt að sækja um styrk Af öllu þessu er augljóst að það er ákaflega dýrt að kveðja þennan heim. Jarðarfarir í kyrrþey eru ódýrastar og hægt er að komast af með í kringum 300 þúsund krón­ ur. Ef hin hefðbundna leið með opinni útför, erfidrykkju, tilkynn­ ingum og jafnvel legsteini er valin er kostnaður á bilinu 750 til 1.200 þúsund. Elín segir að oftast nær séu til fjármunir í dánarbúum fyrir andlátskostnaðinum. „En auðvitað koma upp aðstæður þar sem enginn peningur er til. Þá get­ ur fólk leitað til sveitarfélaga eða stéttarfélaga eftir styrkjum. Þessir styrkir eru hins vegar mjög breyti­ legir eftir sveitarfélögum.“ n Heildarkostnaður við andlát Kistur: 115.000–325.000 kr. Útfararþjónusta: 75.000–150.000 kr. Kirkjuvarsla: 5.000–15.000 kr. Sálmaskrár: 59.000 kr. (150 manns) Tónlistaratriði: 115.000–187.000 kr. Líkklæði og sæng: 10.000–15.000 kr. Altarisblóm: 9.000 kr. Kransar: 25.000–38.000 kr. Kistuskreyting: 20.000–32.000 kr. Leiga á sal: 60.000 kr. Auglýsingakostnaður vegna andláts: 135.000–140.000 kr. Kross/Legsteinn: 18.000–250.000 kr. Erfidrykkja: 100.000–300.000 kr.. Lægri mörk: 686.000 kr. Efri mörk: 1.520.000 kr. *Verðdæmin miða við hefðbundnar útfarir. Að sjálfsögðu er hægt að lækka kostnað með því að sleppa einhverjum liðum. DAuðinn er Dýr n Kostnaðurinn allt að 1,5 milljónir n Gríðarleg fjölgun á útförum í kyrrþey Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Elín Sigrún Jónsdóttir „Erfidrykkjan er fólkinu mikilvæg.“ Útför Kostar um hálfa milljón króna. „Auðvitað koma upp aðstæður þar sem enginn peningur er til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.