Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 72
Helgarblað 10. nóvember 2017
61. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Auðvelt að versla á byko.is
Jól í BYKO
NÝTT BLAÐ
Stútfullt af jóla- og g jafavöru
ásamt frábærum tilboðum
HARÐPARKET
Sea Breeze
1.195kr./m2
0113456
Almennt verð 1.698 kr./m2
Tilboð!
Frábært
verð á
gæðavöru
25%
AFSLÁTTUR
af glösum
Skoðaðu
tilboðin á
byko.is
Jólaljós í öllum
stærðum og gerðum
KOMDU OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ
Ö
ll v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g/
eð
a m
yn
da
br
en
gl.
Ve
rð
gi
ld
a t
il o
g m
eð
15
. n
óv
em
be
r 2
01
7 e
ða
á
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
DJÚPSTEIKIR
með AirFryer, 2l.
hitatæki.
7.995kr.
65103471
Sjáðu
verðið!
Gerðu frábær
kaup!
„Low-fat“
steiking
Tilboð!
RAFHLÖÐUBORVÉL
PSR 18 LI-2. Snúningshraði
0-400/1340 sn/mín, hersla
46 Nm, 10 herslustillingar,
10mm patróna, skrúfar allt
að 10mm skrúfur, borar allt
að 10mm í stál og 35mm
í tré. Kemur með 2x2,5Ah
rafhlöðum og hleðslutæki.
25.995kr.
74864131
Almennt verð: 29.995 kr.
Tvær
rafhlöður
fylg ja!
LED BORÐI
1m, má vera úti IP65,
hægt að stilla á tónlistar-
stillingu, stýrt með
fjarstýringu.
2.995kr.
52269444
Almennt verð: 4.995 kr.
Tilboð!
1m
40%
AFSLÁTTUR
BONO!
Raftittlingur
Bubba
n Í vikunni fjallaði útvarps-
þátturinn Lestin á Rás 1 um
sögu hins umdeilda vélræna
hljóms „auto-tune“ sem tón-
listarframleiðendur hafa not-
að til þess að lagfæra falskar
nótur söngvara. Hljómurinn
verður sífellt meira áberandi í
tónlistar sköpun samtímans og
það er einn reynslumesti tón-
listarmaður þjóðarinnar, Bubbi
Morthens, ekki ánægður með.
„Auto-tune í söng er svipað
og að geldingur fái sér raftitt-
ling,“ sagði Bubbi á Twitter-síðu
sinni við litla hrifningu yngri
tónlistar manna sem vörðu
auto-tune-ið með kjafti og klóm.
Rapparinn Þórður Ingi Jónsson,
sem gengur undir nafninu Lord-
Pusswhip, minnti
Bubba á uppruna
hans og sagði:
„Pönk er að gera
það sem maður
vill, ekki það sem
afi segir.
Friður.“
Konan er brjáluð
n Illugi Jökulsson rithöfundur
lenti í uppákomu í rútu fyrir
skemmstu. Illugi var eini far-
þeginn og sat nálægt bílstjóran-
um sem er Pólverji. Áður en rút-
an lagði af stað átti bílstjórinn í
tilfinningaþrungnu símtali við
konu. „Hann hrópaði, skamm-
aði, emjaði og var loks farinn
að gráta,“ segir Illugi í færslu á
Facebook. Eftir símtalið grunaði
bílstjórann að Illugi hefði tekið
upp það sem fram fór og fékk að
skoða símann hans. Þegar hann
sá að svo var ekki róaðist hann,
bað Illuga afsök-
unar og sagði
svo: „Woman
is crazy“.
„Í 38 ár hefur fólk haldið að ég sé Bono“
Þ
að var ekki ætlunin mín
að blekkja neinn. Ég reyni
bara að dreifa gleði og gera
lífið skemmtilegt. Ef fólk
dregur þá ályktun að ég sé Bono
þá spila ég bara með,“ segir hinn
serbneski Pavel Sfera í samtali
við DV. Sfera er sláandi líkur írsku
goðsögninni og hefur lifibrauð sitt
af því að koma fram sem stjarnan
við hin ýmsu tilefni.
„Þetta hefur verið minn
veruleiki frá því að ég var 14 ára
gamall. Í 38 ár hefur fólk haldið
að ég sé Bono og það þrátt fyrir
að ég sé ekki að líkja eftir honum
í klæðaburði,“ segir Sfera. Hann
segist fljótlega hafa komist upp
á lag með að spila með og gleðja
fólk. „Ég segi aldrei að fyrra bragði
að ég sé Bono. Fólk hrapar að
ályktunum og þá leik ég með.
Mörgum finnst gaman að taka af
mér myndir og finnst þetta mikil
upplifun. Ég passa mig samt á því
að valda aldrei neinum skaða með
því að gefa eiginhandaráritanir á
einhverja safngripi og slíkt né nýta
mér líkindin til þess að komast í
kynni við kvenfólk,“ segir Sfera.
Talar ekki með írskum hreim
Óhætt er að segja að Sfera hafi
valdið usla á Íslandi því í heila viku
hafa fjölmiðlar fjall-
að um veru Bono á Ís-
landi. Átti tónlistar-
maðurinn heimsfrægi
að hafa keypt sér
brauð í sælkerabúð-
inni Frú Laugu við
Laugalæk, skoðað
fiskabúr í Fiskó í
Kauptúni, skellt sér í
Bónus og fengið sér
í glas á Prikinu. Í öll-
um þessum tilvikum
var Sfera á ferðinni
ásamt íslenskum vini
sínum og bitu fjölmiðlar á agnið.
„Þegar ég var á Prikinu var ég
ekki einu sinni með gleraugun á
mér en samt var einhver handviss
um að ég væri Bono,“ segir
Sfera. Hann segist stundum
vera þreyttur á athyglinni en
þó að hann reyni að útskýra
mál sitt reynist það oft ekki
auðvelt. „Ég tala ekki með
írskum hreim en það virðist
engu máli skipta. Þá hef ég
dregið upp vegabréfið mitt til
að sýna fólki en samt heldur
það að ég sé að ljúga.“
Sfera heldur af landi
brott í dag, föstudag, eftir vel
heppnaða ferð. „Þetta er stór-
kostlegt land sem þið eigið, en
núna þarf ég fá hita í kropp-
inn.“ n bjornth@dv.is
Pavel Sfera Óhætt er að segja að serbneska eftirherman sé lík írsku stjörnunni. Hann hefur sést vappa um borgina ásamt íslenskum vitorðsmanni, Þórarni.