Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 43
KYNNING
Skrifstofuvörur.is er nýr vefur sem býður fyrirtækjum jafnt sem einstaklingum ýmsar
skrifstofu- og skólavörur á góðu verði.
Vefverslunin býður upp á þekktar
vörur eins og Leitz, Bic, Pentel, 3M
og fleiri en einnig er hægt að kaupa
minna þekktar vörur sem eru jafn-
framt nokkuð ódýrari.
Markmiðið: lækka verð
„Markmiðið með opnun vefverslun-
arinnar er að lækka verð á skrifstofu-
og skólavörum hér á landi. Með því
að nýta okkur samkeyrslu upplýsinga
getum við leyft okkur að hámarka
veltuhraða og minnka rekstrarkostn-
að,“ segir Jón Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri. Öll virðiskeðjan er svo
að segja sjálfvirk, allt frá því að við-
skiptavinurinn pantar þar til hann fær
vörurnar í hendurnar. „Skrifstofu- og
skólavörur eru hlutir sem okkur vantar
iðulega aldrei strax í gær, þetta eru
vörur sem við getum skipulagt inn-
kaup á,“ segir Jón. „Þegar við seljend-
ur fáum svigrúm náum við að skipu-
leggja innkaupin betur og getum þar
af leiðandi boðið betra verð.“
Engir afsláttarleikir, engir VIP-
kúnnar bara gott verð
Þegar þetta er skrifað þá kostar
kassi (50 stk.) af bláa Bic-pennanum
8.450 kr. í A4 á meðan sami
kassi kostar 5.513 kr. hjá
Skrifstofuvörum eða er um
35% ódýrari. Kassi (12 stk.) af
græna Pentel-kúlutússpenn-
anum kostar hjá Pennanum
4.668 en 2.655 hjá Skrif-
stofuvörum eða er um 43%
ódýrari.
Vöruheiti og lýsingar eru á
ensku
„Við völdum þá leið að nýta
vöruheiti og vörulýsingar
sem eru á ensku beint frá
framleiðendum og birta þær
þannig á vefverslun-
inni. Alþjóð-
legar keðjur
á Íslandi eins
og Bauhaus
og Costco eru
með vöruheiti
og lýsingar á
þýsku og ensku,
til að geta keppt
við þessa aðila og
erlendar vefversl-
anir getum við ekki
eytt stórum fjárhæðum í
þýðingar á vöruheitum og vörulýsing-
um. Við elskum íslensku en þetta er
einfaldlega hluti af hnattvæðingunni,“
segir Jón.
Yfir 2.000
vörur
„Í dag er hægt
að velja um rúm-
lega 2.000 vörur
á www. skriftofu-
vorur.is, við komum
til með að bæta reglulega
við okkur nýjum vörum og
vöruflokkum þannig að það
er mikilvægt fyrir viðskiptavini
okkar að tengja sig inn á Face-
book-síðuna okkar en þar munum
birta ýmsan fróðleik og tilkynningar,“
segir Jón enn fremur.
Flutningskostnaður
innanlands uppi á borðinu
Jón telur að flutningskostnaður hjá
Skrifstofuvörum.is sé sanngjarn og
að fyrirtækið vilji ekki fara þá leið
að fela flutningskostnað í vöruverði:
„Allur flutningskostnaður innan-
lands er uppi á borðinu hjá okkur,
við hækkum ekki vöruverðið til að
bjóða ókeypis sendingar. Þyngd
allra vara sem við seljum er þekkt
og reiknar vefverslunin sendingar-
kostnað í samræmi við
verðlista Íslandspósts
hverju sinni. Viðskipta-
vinir geta valið hvort
þeir vilji vörurnar alla
leið heim eða á næsta
pósthús en við lítum á
allt landið sem sama
póstsvæði, þannig að
það er sama verð á
sendingum hvar sem
viðskiptavinurinn býr
á landinu.“
Öllum pöntunum
fylgir svo veglegur
nammiglaðning-
ur óháð upphæð.
„Svartur föstu-
dagur er á næsta leiti og
þá eigum við eftir að gera eitthvað
rosalega skemmtilegt,“ segir Jón að
lokum.
Betra verð á skrif-
stofu- og skólavörum
PrentVÖrur ehF. oPnAr nýJA VeFVerSLun: SKriFStoFuVorur.iS
Möppur í
miklu úrvali
á góðu verði
Geymslubox
í úrvali –
gott verð
Jón Sigurðsson