Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Qupperneq 10
10 Helgarblað 10. nóvember 2017fréttir
A
ð missa ástvin er áfall í sjálfu
sér en ofan á það leggst
fjárhagslegt púsluspil. Ef
um eldri manneskju með
nægar eignir í dánarbúi og um út
listaðar dánaróskir er að ræða er
auðveldara um vik en það er ekki
alltaf raunin. Oft getur þessi kostn
aður komið aðstandendum í opna
skjöldu. Útförum í kyrrþey hef
ur fjölgað mjög undanfarin ár en
kostnaður við þær er yfirleitt um
300 þúsund krónur. Ef um hefð
bundna útför er að ræða er heildar
kostnaður yfirleitt á bilinu 700 til
1.500 þúsund. Þá eru erfidrykkjur
orðnar mun hóflegri en áður. Ís
lenskir ríkisborgarar þurfa ekki að
greiða fyrir legstæði sín en erlendir
ríkisborgarar þurfa að borga um 66
þúsund krónur fyrir stæðið.
Útförum í kyrrþey fjölgað mikið
Útförum í kyrrþey hefur fjölgað
mjög á undanförnum árum að
sögn Elínar Sigrúnar Jónsdóttur,
framkvæmdastjóra Útfararstofu
kirkjugarðanna. „Árið 2010 voru
43 útfarir í kyrrþey á öllu landinu,
eða um 2 prósent. En árið 2016
voru þær orðnar 210 og það sem af
er árs 2017 eru þær orðnar 218 eða
tæp 12 prósent. Þetta er sexföldun
á aðeins sjö árum,“ segir Elín.
Hún segir þessa fjölgun ekki til
komna vegna breytinga á þjóðfé
lagsgerðinni heldur vegna hugar
farsbreytinga og kostnaður skiptir
þar mestu máli. „Eitt er hógværð
hins látna. Margt fullorðið fólk óskar
eftir því að hafa ekkert tilstand í
kringum sína útför. En einnig heyr
um við að margt fullorðið fólk hafi
áhyggjur af erfidrykkjunni. Hérna
bjóðum við upp á samtal um útför
ina og spyrjum fólk hvernig útför
in eigi að fara fram. Þar getum við
rætt um hvort þessi ótti sé ástæðu
laus. Kannski vilja börnin og barna
börnin leggja saman á borð því erfi
drykkjan er fólkinu mikilvæg.“
Elín er nýkomin af málþingi um
þessi mál og segir nauðsynlegt að
ræða kostnaðinn. „Við getum spurt
okkur hvort við viljum hafa þetta
svona. Þegar komið er að undirbún
ingi útfarar segja ættingjar gjarnan
að þeir sjálfir myndu frekar vilja að
útförin væri opinber en nauðsyn
legt sé að virða vilja hins látna.“
Kistan einn stærsti
kostnaðarliðurinn
Elín segir að kostnaður við út
förina sjálfa sé yfirleitt í kringum
500 þúsund krónur. Stærstur hluti
kostnaðarins er kistan sjálf sem
kostar á bilinu 115 til 325 þúsund
hjá útfararstofum. Bálfararkistur
eru íburðarminni og kosta 95 þús
und krónur og sumar útfararstof
ur bjóða upp á margnota kistur
sem er smeygt innan í íburðar
meira hylki. Kostar hún vanalega
um 70 þúsund og má bæði brenna
og grafa. Margar útfararstofur
rukka ekki fyrir líkkistur barna.
Næststærsti kostnaðarliðurinn er
útfararþjónustan sjálf við kistu
lagningu og útför. Hún getur verið
á bilinu 75 til 150 þúsund krónur.
Prestþjónustan er greidd af ríkinu
en sums staðar þarf að greiða fyrir
kirkjuvörslu, á bilinu 5 til 15 þús
und krónur. Elín segir algengasta
fjölda gesta í kringum 150 manns
og sálmaskrár fyrir þann fjölda
kosta um 59 þúsund.
Tónlistaratriðin eru nokkuð
kostnaðarsöm og velur fólk yfir leitt
kór eða einsöngvara. Elín segir:
„Sex manna kór er lang algengastur
og þá syngur oft einn úr kórnum
einsöng.“ Miðað við taxta Félags ís
lenskra hljómlistarmanna kostar
sex manna kór 109.500 krónur en
tíu manna 158.500. Ef einsöngvari
er valinn í stað kórs kostar hann
yfirleitt um 50 þúsund krónur. Al
gengt er að fá organista til að spila
bæði við kistulagningu og útför og
samanlagt gerir það um 50 þúsund
krónur. Við tónlistaratriðin bætist
5 prósent stefgjald og 10 prósent
umsjónargjald. Tónlistaratriðin
kosta því yfirleitt á bilinu 115 til 187
þúsund krónur.
Við þetta bætast líkklæði, sæng
og ýmsar skreytingar. Ef hinn látni
er ekki í eigin klæðum og sæng
kostar það á bilinu 10 til 15 þúsund
krónur. Verð á skreytingum er mjög
mismunandi. Hjá Útfararstofu
kirkjugarðanna kosta altarisblóm
9 þúsund, kransar 25 til 38 þúsund
og kistuskreyting 20 til 32 þúsund.
Erfidrykkja
Erfidrykkjur hafa breyst mjög mik
ið á undanförnum árum og eru
orðnar íburðarminni. Elín segir:
„Það er orðið mjög vinsælt að fólk
leggi saman á borð pönnukökur,
kleinur, flatkökur og svoleiðis.“ Þá
kosta veitingarnar lítið og eftir fá
mennari jarðarfarir eru erfidrykkj
ur stundum haldnar á heimilum.
Algengara er þó að leigður sé salur,
annaðhvort hjá safnaðarheimili
eða félagasamtökum. Sem dæmi
má nefna að salur safnaðarheim
ilis Háteigskirkju kostar 62 þúsund
krónur án starfsfólks. Tímakaup
starfsfólks er yfirleitt á bilinu 2.500
til 3.000 krónur.
Elín segir að ef veitingarn
ar séu keyptar af veitingastað sé
verðið á bilinu 1.750 til 2.490 krón
ur á hvern gest. Ef erfidrykkjan er
haldin á veitingastaðnum sé ekki
rukkað sérstaklega fyrir afnot af
staðnum.
Tilkynningar
Algengt er að fólk tilkynni andlát
og auglýsi útfarir bæði í dagblöð
um og í útvarpi. Misjafnt er hversu
umfangsmiklar slíkar auglýsingar
eru og hversu oft þær eru lesnar
upp en oft er um þrjár birtingar að
ræða, andlátstilkynningu, tilkynn
ingu um útför og loks þakkir.
Hjá Morgunblaðinu kostar
dánartilkynning í ramma 19.390
krónur og minningargreinar eru
ókeypis. Hjá Fréttablaðinu kostar
dánartilkynning í ramma 18.912
krónur og tveggja dálka minning
kostar 953 krónur. Hjá Ríkisútvarp
inu kostar hvert upplesið orð 277
krónur. Dæmigerð dánartilkynn
ing er 22 orð og 4.994 krónur en
útfarartilkynning 34 orð og 9.418
krónur. Áætla má að auglýsinga
kostnaður vegna dauðsfalls sé því í
kringum 135 til 140 þúsund krónur.
Leiði
Íslenskir ríkisborgarar greiða ekk
ert fyrir legstæði og jarðsetningu
í íslenskum kirkjugörðum. Við
erum búin að greiða það í gegn
um skattana okkar. Ef um erlend
an einstakling er að ræða kostar
legstæðið 66.400 krónur og 39.200
krónur fyrir duftkersleiði.
Kirkjugarðarnir sjá um alla al
menna umhirðu (slátt, tyrfingu,
moldarvinnu og fleira) án kostnaðar
fyrir leiðishafa. Ef eitthvað sérstakt
kemur upp á er tekið gjald fyrir það,
til dæmis fjarlæging runna 4.000
og fjarlægingu trés 5 til 15 þúsund.
Vegna niðurskurðar hefur þjónusta
garðanna dregist saman en enn
er hægt að fá sumarblómaþjón
ustu og kostar hún á bilinu 7.411 til
9.761 hjá Kirkjugörðum Reykjavík
ur. Verktakar sinna öðrum verkum,
til dæmis jólaljósaþjónustu.
Algengast er að kross sé settur
á leiði í kringum útförina. Verð á
krossum er á bilinu 11 til 17 þús
und og áletrað skilti kostar um 7 til
10 þúsund krónur.
Legsteinar eru oftast lagðir
nokkru eftir andlát, til dæmis sam
eiginlegan stein þegar bæði hjón
eru látin. Þeir geta verið kostnaðar
samasti einstaki hluti andlátsins
og er verðið yfirleitt á bilinu 120
til 145 þúsund krónur fyrir minni
steina á duftkersleiði og frá 180 til
700 þúsund fyrir stærri. Algengt
verð legsteins fyrir eina manneskju
er um 250 þúsund krónur og fyrir
tvær eða fleiri 350 þúsund.
Oft eru áletranir og uppsetn
ingar innifaldar í verði steinanna.
En ef þær eru það ekki er annað
hvort rukkað fyrir hvert orð eða
sem eina heild. Slíkur kostnaður
er þá að minnsta kosti 20 þúsund
krónur og enn meiri ef steinarnir
eru skreyttir með myndum eða
skrauti. Séu valdar luktir eða vasar
á legsteininn kostar það yfirleitt á
bilinu 30 til 50 þúsund krónur.
Hægt að sækja um styrk
Af öllu þessu er augljóst að það er
ákaflega dýrt að kveðja þennan
heim. Jarðarfarir í kyrrþey eru
ódýrastar og hægt er að komast af
með í kringum 300 þúsund krón
ur. Ef hin hefðbundna leið með
opinni útför, erfidrykkju, tilkynn
ingum og jafnvel legsteini er valin
er kostnaður á bilinu 750 til 1.200
þúsund. Elín segir að oftast nær
séu til fjármunir í dánarbúum
fyrir andlátskostnaðinum. „En
auðvitað koma upp aðstæður þar
sem enginn peningur er til. Þá get
ur fólk leitað til sveitarfélaga eða
stéttarfélaga eftir styrkjum. Þessir
styrkir eru hins vegar mjög breyti
legir eftir sveitarfélögum.“ n
Heildarkostnaður
við andlát
Kistur: 115.000–325.000 kr.
Útfararþjónusta: 75.000–150.000 kr.
Kirkjuvarsla: 5.000–15.000 kr.
Sálmaskrár: 59.000 kr. (150 manns)
Tónlistaratriði: 115.000–187.000 kr.
Líkklæði og sæng: 10.000–15.000 kr.
Altarisblóm: 9.000 kr.
Kransar: 25.000–38.000 kr.
Kistuskreyting: 20.000–32.000 kr.
Leiga á sal: 60.000 kr.
Auglýsingakostnaður vegna andláts:
135.000–140.000 kr.
Kross/Legsteinn: 18.000–250.000 kr.
Erfidrykkja: 100.000–300.000 kr..
Lægri mörk: 686.000 kr.
Efri mörk: 1.520.000 kr.
*Verðdæmin miða við hefðbundnar útfarir.
Að sjálfsögðu er hægt að lækka kostnað
með því að sleppa einhverjum liðum.
DAuðinn er Dýr
n Kostnaðurinn allt að 1,5 milljónir n Gríðarleg fjölgun á útförum í kyrrþey
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Elín Sigrún Jónsdóttir „Erfidrykkjan er
fólkinu mikilvæg.“
Útför
Kostar
um hálfa
milljón
króna.
„Auðvitað
koma upp
aðstæður þar
sem enginn
peningur er til