Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Síða 8
8 Helgarblað 10. nóvember 2017fréttir
Góðar
sængur
sem má
þvo við
95° hita
Teygjulök, í öllum stærðum á góðu verði.
100% cotton satin með 300TH. 60/60µ.
Dýnuhlífar,
rakaheldnar, þola þvott við 95°
Rúmfatnaður, vandaður,
100% cotton satin með 300TH. 60/60µ.
Handklæði,
gæðavara, 500 gsm. 100% cotton.
Frábærar vörur fyrir hótel, og bændagistingu
og sjúkrastofnanir
Stórhöfði 17 • 110 Reykjavík • Sími 5877685 • Netfang: elias@egheild.is • www.egheild.is
HEILD EHF
Opið frá
kl. 13 til 18
virka daga.
Vinsamlegast
sendið net-
skilaboð.
M
egn ólykt hefur lagst yfir
íbúðabyggðina á Völl
unum í Hafnarfirði við
og við í nokkurn tíma.
Margir íbúarnir gera sér ekki grein
fyrir af hverju hún stafar en hún
kemur frá moltugerð Gámaþjón
ustunnar sem staðsett er nokkuð
fyrir utan bæinn. Í vikunni kúguð
ust íbúar hverfisins út af óþefnum
og skólabörn í Hraunavallaskóla
þurftu að fá klemmur á nefið til að
verjast óþefnum. Einar Bárðarson,
samskiptastjóri Hafnarfjarðar
bæjar, segir að ástandið sé ekki
ásættanlegt.
Eins og gramsað sé í rotþró
Íris Líndal Sigurðardóttir hefur
verið búsett í Vallahverfinu síð
an árið 2014 og segist hafa fund
ið þessa lykt allar götur síðan
þá, en aldrei eins sterka og nú
á þriðjudaginn. Hún segir: „Ég
opnaði svaladyrnar og kúgaðist.
Ég þurfti að loka dyrunum strax
og öllum gluggum.“ Lyktin var
megn og lagðist yfir íbúðasvæð
ið, atvinnusvæðið og skólana.
Hún hefur heyrt ýmsar skýringar
á þessu í gegnum tíðina eins og
að lyktin komi frá Sorpu, Gáma
þjónustunni eða myndist við
skreiðarþurrkun. „En við höfum
aldrei fengið nein almennileg
svör.“
Íris lýsir lyktinni svo: „Þetta
er eins og það sé rotþró fyrir
neðan svalirnar mínar, full af því
sem kemur úr klósettum lands
manna, og einhver sé að gramsa
í henni. Þetta er ekki sorplykt,
þetta er skítafýla. Hún smýg
ur inn og maður er hræddur
um að fá hana í fötin sín. Þetta
er ógeðslegt.“ Margir aðrir íbúar
hafa talað um þessa lykt á spjall
svæði Vallabúa á Facebook.
Fæstir virðast gera sér grein fyrir
hvaðan lyktin kemur.
Sonur Írisar stundar nám við
Hraunavallaskóla og þar var lykt
in einnig mjög stæk. „Börnunum
var ekki líft þarna inni. Lyktin var
svo megn að þau fengu klemm
ur til að setja á nefið.“ Starfsfólk
skólans vissi heldur ekki hvaðan
lyktin kom. Lars Imsland skóla
stjóri segir að lyktin hafi verið
mjög sterk og upphaflega talið að
hún væri tilkomin vegna sorps.
Vindátt breytist
Lyktarskýið kom frá moltugerð
Gámaþjónustunnar undir Stór
höfða í upplandi Hafnarfjarðar.
Molta er áburður sem unninn er úr
lífrænum úrgangi og í framleiðslu
ferlinu myndast sterk lykt. Ingþór
Guðmundsson stöðvarstjóri segir:
„Þetta er venjulegt niðurbrot sem
á sér stað stað þegar verið að að
snúa múgunum og hleypa út
þessari lykt. Þetta er óhjákvæmi
legur hluti af þessu ferli.“
Moltuvinnslan hófst árið 1993
en að sögn Ingþórs var hún flutt
á þennan stað fyrir tveimur eða
þremur árum. „Við reynum að
passa okkur á því að vera ekki að
snúa þessum múgum þegar er
suðaustan átt. Því þá tekur vindur
inn lyktina að byggðinni. Við
athugum alltaf veðurspár áður
en við ákveðum að snúa, sem við
þurfum að gera um einu sinni til
tvisvar í viku. Það sem gerðist í
gærmorgun (þriðjudag) var að
vindurinn snerist og það var eig
inlega enginn vindur, heldur logn
eða hæg norðanátt. Áttin átti ekk
ert að snúast í suðaustur fyrr en
um kvöldið en gerði það um ellefu
leytið um morguninn.“
Ingþór segir sárt að heyra af því
þegar lyktin berst yfir íbúðabyggð
ina. „Við getum ekki brugðist við
því sem búið er að gerast á annan
hátt en að snúa ekki þegar vindátt
er að byggð. Það er það eina sem
við getum gert.“
Fundur með bæjarstjórn
Vegna kvartananna mun bæjar
stjórn Hafnarfjarðar hafa afskipti
af málinu. Einar Bárðarson, sam
skiptastjóri bæjarins, segir: „Það
er búið að kalla til fundar með
bæjarstjórn, fulltrúum heilbrigðis
eftirlitsins og Gámaþjónustunnar
því þetta er ekki ásættanlegt. Þetta
er bara grjóthart.“ Hann segir að
samkvæmt starfsleyfinu sé ekki
heimilt að snúa múgunum þegar
vindar séu óhagstæðir. „Það getur
ýmislegt gerst í íslenskri veðráttu
en vindáttir eru nú með því stöð
ugra. Þeir eiga ekki að taka neina
áhættu með þetta.“
Kemur til greina að svipta
Gámaþjónustuna starfsleyfinu?
„Ef það er vísvitandi verið að gera
þetta í bága við starfsleyfið þá er
ég hræddur um að það hefjist ferli
sem endar með því, já. Þetta er
stórt íbúðahverfi og við viljum að
fólk geti búið þar og leikið án þess
að þurfa að kljást við þessar að
stæður og það á ekki að vera neitt
mál fyrir Gámaþjónustuna að
vinna eftir starfsleyfinu.“n
Lyktin svo slæm að skóla-
börn fengu klemmur á nefið
n Íbúar á Völlunum ósáttir n Óvissa með starfsleyfi Gámaþjónustunnar
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Höfuðstöðvar Gámaþjónustunnar
„Þetta er ekki ásættanlegt. Þetta er bara
grjóthart,“ segir samskiptastjóri Hafnar-
fjarðar.
Íris Líndal Sigurðardóttir
Einar Bárðarson