Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Page 37
Betri borgarar 5Helgarblað 10. nóvember 2017 KYNNINGARBLAÐ Ferskleiki sem stendur undir nafni Þegar við byrjuðum með Íslenska barinn var ekki pælingin að vera hamborgarastaður en ham- borgararnir urðu bara strax svo vinsælir hjá okkur og það varð til þess að við stækkuð- um hamborgaramatseðilinn og núna bjóðum við upp á sex ólíka hamborgararétti ásamt borgara dagsins,“ segir Veronika á Íslenska barnum, Ingólfsstræti 1a. Staðurinn er rómaður fyrir bæði frábæran mat og góða kráarstemningu og úrvalið á barnum er frábært. Veronika segir að ein af ástæðum vinsælda ham- borgaranna í byrjun hafi verið sú að Íslenski barinn varð einna fyrstur til að bjóða upp á vöfflufranskar kartöflur með borgurunum, sem þótti afar spennandi nýjung á sínum tíma en núna eru þær orðnar útbreiddar. „Við erum með ferska nautaborgara frá Kjötsmiðj- unni. Það er mikilvægt nota einungis ferskt gæðakjöt. Hamborgari er ekki bara hamborgari og almennilegt hráefni gerir þetta að allt annarri máltíð en það sem við köllum vanalega skyndi- bita. Alvörukjöt, fitubætt, og engin aukaefni,“ segir Veron- ika. Ljúffengur frumleiki einkennir vinsælustu ham- borgara Íslenska barsins og Veronika tekur sem dæmi Sigguborgarann: „Sagan á bak við Sigguborgarann er sú að hún Sigga mamma mín bakar pönnukökurnar okkar og okkur langaði til að gera eitthvað meira við þær, þannig að við ákváðum að leggja efra brauðinu og erum með pönnuköku fyllta með osti og beikoni í staðinn. Þetta gerðum við að borgara dagsins einu sinni en hann varð svo rosalega vinsæll að það var ekki annað í boði en að setja hann á matseðilinn.“ Annað dæmi um frumleika og vinsældir er lambaham- borgarinn: „Það varð verkfall hér um árið og það var ekki til nautakjöt í landinu og þá byrjuðum við með lamba- borgarann. Íslendingar voru ekki mjög spenntir fyrir honum í byrjun en erlendu ferðamennirnir tóku honum fagnandi. Núna er hann hins vegar orðinn mjög vinsæll hjá Íslendingum líka. Segja má að verkfallið hafi kennt fleiri Íslendingum að meta lamba- borgara.“ Bæði Sigguborgarinn og lambaborgarinn eru mjög vinsælir réttir og seljast í miklu magni á hverjum degi. Íslenski barinn býður líka upp á hefðbundinn hamborgara og hreindýraborgara sem er algjört lostæti. Einnig eru kjúklingaborgari og Haf og hagi sem er nautaborgari með djúpsteiktum íslenskum humri. Eins og áður segir er Íslenski bar- inn bæði vinsæll veitingastaður og skemmtistaður. Opið er virka daga frá 11.30 til eitt um nóttina og um helg- ar er opið til þrjú að nóttu. Bjórúrvalið á barnum er magnað en í boði eru allir íslenskir bjórar sem fáanlegir eru í flösku og dós. Eingöngu er íslenskur bjór í boði en úrvalið af íslensk- um bjór er líklega eitt það mesta í heiminum, tegund- irnar í augnablikinu eru um 60. Fólk hefur tekið ástfóstri við hamborgarana á Íslenska barnum HráEfNIð SKIptIr SKöpum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.