Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Blaðsíða 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 10. nóvember 2017
við betri sýn yfir reksturinn, en
það eru um 200 manns á launa-
skrá hjá okkur í dag.“
Styður lífræna framleiðslu
Að hráefnið sé heilnæmt, líf-
rænt og íslenskt hefur ávallt skipt
Hrefnu miklu máli og hún hef-
ur lagt sig fram um að hafa ís-
lenskt hráefni á boðstólum á
veitingastöðum sínum, því ís-
lenskar landbúnaðarvörur séu
framúrskarandi. „Við leggjum
mikla vinnu í að finna rétta kjöt-
ið og grænmetið, sem getur ver-
ið erfitt. Það er auðvelt að finna
sumar vörur, til dæmis gúrkur
og tómata, en annað getur klár-
ast. Við keyptum hunang af ein-
um íslenskum býflugnabónda og
allar afurðirnar hans kláruðust
á þremur vikum.“ Hún segir það
sama gilda um kjötið. „Kjöt á Ís-
landi er ekki ótæmandi auðlind
og það er mun einfaldara að fá
erlent kjöt frá heildsala.“
Hinn lífræni iðnaður á hins
vegar undir högg að sækja að mati
Hrefnu og skrifaði hún færslu á
Facebook nýverið vegna lokun-
ar lítillar búðar sem seldi lífræn-
ar matvörur. „Allir vilja matar-
markað. Allir vilja kaupmanninn
á horninu. Allir vilja beint frá
bónda og býli. Allir vilja lífrænt.
Allir vilja sniðganga plast og aðr-
ar óþarfa umbúðir. Svo fara bara
allir í Costco. Það þarf að mæta
í þessar verslanir og versla svo
þær lifi þetta af. Ekki bara finnast
krúttlegt að hafa þær fyrir augun-
um.“
Sem dæmi um erfiðleika fram-
leiðenda nefnir hún Höllu á Ytri-
Fagradal sem ræktar hvanna-
lamb. „Hún lagði sig fram um að
fá lífrænan stimpil en þá hækk-
aði kjötið í verði og hún átti í erf-
iðleikum með að selja afurðirn-
ar. Við ákváðum að kaupa alla
hryggina og flest lærin af henni
því okkur finnst nauðsynlegt að
styðja við slíka starfsemi og mun-
um halda því áfram.“
Hún segir komu Costco fyrst
og fremst hafa áhrif á verslun en
ekki veitingarekstur. Veitinga-
staðaeigendur versli ekki mikið í
Costco vegna þess að þjónustan
sé svo góð hjá birgjunum. „Ef ég
keypti af Costco þyrfti ég að fara
þangað og vera með sendiferða-
bíl og manneskju í fullri vinnu við
að sækja allar vörurnar.“ Sjálf seg-
ist hún ekkert hafa á móti því að
kaupa ýmsar vörur í Costco fyr-
ir sig persónulega en segist ekki
enn hafa gerst svo fræg að fara
þangað. „En ég myndi aldrei fara
og kaupa allt í matinn þar. Það
er mikilvægt að styðja við minni
verslanir.“
Nýr veitingastaður í sumar
Hrefna segir aukinn ferðamanna-
straum hafa gert mikið fyrir
veitingastaðina, sérstaklega Fisk-
markaðinn, en Íslendingar borði
frekar á Grillmarkaðinum. „Áður
en ferðamannastraumurinn
byrjaði fyrir alvöru sá maður oft
galtóma veitingastaði í Miðbæn-
um. Nú eru yfirleitt allir staðir
fullir nema á vissum tímum þegar
ferðamönnum fækkar.“ Hún tel-
ur að þetta sé ekki bóla heldur
séu ferðamennirnir komnir til
að vera. „Reyndar er krónan ekki
sérlega hagstæð fyrir þennan
bransa og hún hefur augljóslega
áhrif nú. Ferðamannastraumur-
inn mun ábyggilega halda áfram
en koma í bylgjum.“
Vegna velgengninnar hefur
Hrefna fært út kvíarnar en rólega
þó. Hún og félagar hennar hjá
Grillmarkaðinum keyptu sig inn í
Skúla Craft Bar og opnuðu asísk-
an matarvagn fyrir framan hann.
„Við vorum mikið á þessum stað
og okkur langaði til að eiga bar.“
Sjálf segist hún áhugamaður um
craft-bjór og hafi byrjaði í því
áhugamáli með manninum sín-
um. „Hann er hins vegar kom-
inn langt fram úr mér. Það hefur
orðið alger sprenging hjá minni
bjórframleiðendum á Íslandi og
margt skemmtilegt að gerast.“
Hrefna og meðeigendur henn-
ar hafa hins vegar ekki opnað nýj-
an veitingastað síðan 2011 en á
næsta ári verður breyting þar á.
„Við höfum verið að vinna að opn-
un nýs staðar í þrjú ár og stefnum
á að opna næsta sumar. Við höf-
um ekki enn skrifað undir leigu-
samning en það mun líklega ger-
ast á næstunni.“ Mikil leynd hvílir
yfir verkefninu en Hrefna staðfestir
að staðurinn verði í Reykjavík. „Við
höfum skoðað þann möguleika að
opna stað erlendis, og fórum út til
New York til að hitta fólk. En þá rák-
umst við á veggi vegna gjaldeyris-
haftanna. Við fáum reglulega sím-
töl frá húseigendum úti um allt
land og í úthverfum höfuðborgar-
svæðisins þar sem okkur er boðið
að opna nýja staði. En við erum að-
eins að hugsa um þetta nýja verk-
efni núna og viljum ekki fara of
geyst í hlutina.“
Erfið fæðing
Þó að matur sé stór hluti af lífi
Hrefnu þá er hún líka eigin-
kona og móðir með mörg önn-
ur áhugamál og skoðanir. Hún
kynntist Birni ung í gegnum
sameiginlega vini og þau hófu
sambúð fyrir um níu árum. „Eitt
kvöldið var ég að velta því fyrir
mér af hverju ég hefði aldrei
farið út að borða á stefnumót.
Seinna það kvöld hitti ég Bjössa
og fann að eitthvað var pínulítið
öðruvísi en vanalega. Ég bauð
honum út að borða og fljótlega
eftir það byrjuðum við að hittast.
Við bjuggum rétt hjá hvort öðru, í
Garðastræti og Ægisgötu. Köttur-
inn hans, Mía, flutti fyrst inn til
mín og síðan hann.“
Haustið 2011 eignuðust þau
son sinn, Bertram Skugga, en
sú fæðing gekk hægt og endaði
í bráðakeisaraskurði. „Þetta var
látið ganga of lengi og á einum
tímapunkti sagði læknirinn að
barnið þyrfti að koma í heiminn
núna strax og ég var þá svæfð.“
Mátti ekki miklu muna því að
drengurinn fékk einungis einn í
einkunn af tíu mögulegum strax
eftir fæðingu, þar sem mældur
er hjartsláttur, öndun, húðlitur
og fleira. „Það er alltaf verið
að þrýsta á konur að fara ekki
keisaraskurð en til dæmis í mínu
tilfelli var ekki annað hægt. Ég
hefði aldrei getað fætt.“ Hrefna
segist þó ekki reið heilbrigðis-
starfsfólkinu og bendir á að sum-
ir hafi verið nemar. „Þetta var
okkar fyrsta barn og við höfðum
engan samanburð. En eftir á að
hyggja fannst okkur skrítið að ýtt
hafi verið á okkur að halda áfram
svona lengi.“
Vorið 2013 eignuðust þau
dótturina Hrafnhildi Skuggu
og þá tóku þau ákvörðun um
keisaraskurð fyrirfram. „Ég sagð-
ist ekki þora að ganga í gegnum
þetta aftur.“ Eftir að stúlkan kom
í heiminn fór Björn á skeljarnar
og bað Hrefnu á spítalanum. Ári
síðar giftust þau að ásatrúarsið í
Hvalfirðinum en hvorugt kennir
sig þó við þau trúarbrögð. „Bjössi
er trúlaus en ég aðhyllist hug-
myndafræði búddisma að ein-
hverju leyti. Ég er ekki iðkandi
búddisti en stunda jóga, hugleiði
og er með styttu hérna heima.
Ásatrúarvígsla var lending sem
við náðum saman og athöfnin
var mjög skemmtileg. Við erum
líka hrifin af sögunum og börnin
voru nefnd í ásatrúarsið.“
Falinn hæfileiki
Fyrir utan dans og jóga fer Hrefna
mikið á tónleika og aðra listvið-
burði. Fyrir um sex árum byrjaði
hún að stunda laxveiðar. „Um
70 prósent af ánægjunni við lax-
veiðar eru útiveran. Strákarnir í
vinnunni voru allir að veiða og
þá fór ég að hugsa af hverju ég
gerði það ekki líka. Ég fór að prófa
þetta og maðurinn minn fylgdi
á eftir.“ Þrátt fyrir að vera bæði
kokkur og laxveiðiáhugamaður
er Hrefna mikill dýravinur og
fékk tár í augun í fyrsta skipti sem
hún hamfletti rjúpu. Hún segir þó
mikilvægt að aftengja þessar tilf-
inningar því þetta sé gangur lífs-
ins. „Hérna heima borðum við
meira af grænmeti. Hvorki er
gott fyrir líkamann né jörðina að
borða kjöt alla daga.“
Hrefna hefur einn leyndan
hæfileika sem er kickbox. Hún
hefur stundað þjálfun í kickbox,
hnefaleikum og líkamsrækt hjá
Mjölni og það fyrstnefnda heill-
aði hana mest. „Ég fór með vin-
konu minni út í þetta og barðist
við hana. Mér fannst þetta mjög
skemmtilegt og stóð mig ágæt-
lega.“ Hún er þó ekki hætt að
bæta á sig áhugamálum því á
næsta ári stefnir hún að því að
sinna útiverunni betur og byrja
að ganga á fjöll. n
„Þegar ég
var að
byrja í þessu voru
enn þá einhverjir
kokkar inni á
milli að sparka í
sköflunga, öskra
á undirmenn sína
og niðurlægja þá
og jafnvel brenna
með heitum
áhöldum.
Hugarfarsbreyting „Þetta
viðgekkst og fólk vissi hvað það var
að fara út í og kvartaði því ekki undan
líkamlegu ofbeldi eða öðru“ MyNd BryNja