Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Side 28
Helgarblað 5. janúar 2018KYNNINGARBLAÐHollari lífsstíll
NAT.KiTcheN
Þar sem draumurinn um
heilsusamlegan lífsstíl rætist
Fyrir tæpum tveimur árum opn-aði Karitas María Lárusdóttir heilsuveitingastaðinn NAT.
Kitchen að Laugavegi 85. Karitas,
sem að auki starfar sem líkamsrækt-
arþjálfari og flugfreyja, átti sér draum
um að útbreiða heilsusamlegan lífsstíl
og er óhætt að segja að sá draumur
hafi ræst því NAT.Kitchen nýtur mikilla
vinsælda.
„Stór hluti af okkar viðskiptavin-
um er vissulega erlendir ferðamenn
vegna staðsetningarinnar. en hingað
koma líka margir Íslendingar og við
eigum marga fastakúnna sem vinna
hérna í nágrenninu,“ segir Karitas.
enn fremur er NAT.Kitchen vinsælt
meðal hlaupara og annars íþrótta-
fólks.
Áherslan er á ferskan og heilsu-
samlegan mat: „hér er flest allt
gert alveg frá grunni nema nokkrar
samlokur og hveitihorn sem við tókum
inn aðallega vegna eftirspurnar frá
túristunum,“ segir Karitas.
Vinsælustu réttirnir á NAT.Kitchen
eru kjúklingarétturinn crispy chicken
og grænmetisborgarar sem eru bæði
vegan og vegetarian. einnig eru réttir
dagsins, fiskur, súpa og kjötréttur,
mjög vinsælir líka. Veganréttum hefur
verið fjölgað á matseðlinum til að
svara aukinni eftirspurn enda fjölgar
sífellt þeim sem eru vegan.
eitt einkenni á matnum á NAT.
Kitchen er það að hægt er að borða
sig saddan án þess að innbyrða of
margar hitaeiningar, maturinn er vel
útilátinn og næringarríkur en ekki
hitaeiningaríkur.
NAT.Kitchen hefur gengið svo vel
að Karitas hugleiðir að opna fleiri
staði þegar um hægist en hún er
núna í fæðingarorlofi. Þrátt fyrir að
mikið sé að gera eru starfsmenn ekki
ýkja margir, það eru fjórir í eldhúsi á
tvískiptum vöktum og síðan 4–5 að
störfum í sal. Duglegt starfsfólk og
gott skipulag sér til þess að allt geng-
ur hratt og vel fyrir sig. NAT.Kitchen er
opið alla daga vikunnar frá kl. 9–21. Í
boði er morgunmatur, hádegismatur
og kvöldmatur, allt ferskt og heilsu-
samlegt fæði sem unnið er frá grunni
á staðnum.
Margir eru staðráðnir í því að lifa
heilsusamlegu lífi á nýju ári og bæta
mataræði sitt. Ljóst er að maturinn
á NAT.Kitchen er góður kostur fyrir
þetta fólk.
Til að gefa fleirum tækifæri til að
upplifa heilsusamlegan mat á NAT.
Kitchen verður sértakt tilboð í næst-
unni: Dagana 20. til 31. janúar verður
20% afsláttur af öllu á matseðli.