Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 28
Helgarblað 5. janúar 2018KYNNINGARBLAÐHollari lífsstíll NAT.KiTcheN Þar sem draumurinn um heilsusamlegan lífsstíl rætist Fyrir tæpum tveimur árum opn-aði Karitas María Lárusdóttir heilsuveitingastaðinn NAT. Kitchen að Laugavegi 85. Karitas, sem að auki starfar sem líkamsrækt- arþjálfari og flugfreyja, átti sér draum um að útbreiða heilsusamlegan lífsstíl og er óhætt að segja að sá draumur hafi ræst því NAT.Kitchen nýtur mikilla vinsælda. „Stór hluti af okkar viðskiptavin- um er vissulega erlendir ferðamenn vegna staðsetningarinnar. en hingað koma líka margir Íslendingar og við eigum marga fastakúnna sem vinna hérna í nágrenninu,“ segir Karitas. enn fremur er NAT.Kitchen vinsælt meðal hlaupara og annars íþrótta- fólks. Áherslan er á ferskan og heilsu- samlegan mat: „hér er flest allt gert alveg frá grunni nema nokkrar samlokur og hveitihorn sem við tókum inn aðallega vegna eftirspurnar frá túristunum,“ segir Karitas. Vinsælustu réttirnir á NAT.Kitchen eru kjúklingarétturinn crispy chicken og grænmetisborgarar sem eru bæði vegan og vegetarian. einnig eru réttir dagsins, fiskur, súpa og kjötréttur, mjög vinsælir líka. Veganréttum hefur verið fjölgað á matseðlinum til að svara aukinni eftirspurn enda fjölgar sífellt þeim sem eru vegan. eitt einkenni á matnum á NAT. Kitchen er það að hægt er að borða sig saddan án þess að innbyrða of margar hitaeiningar, maturinn er vel útilátinn og næringarríkur en ekki hitaeiningaríkur. NAT.Kitchen hefur gengið svo vel að Karitas hugleiðir að opna fleiri staði þegar um hægist en hún er núna í fæðingarorlofi. Þrátt fyrir að mikið sé að gera eru starfsmenn ekki ýkja margir, það eru fjórir í eldhúsi á tvískiptum vöktum og síðan 4–5 að störfum í sal. Duglegt starfsfólk og gott skipulag sér til þess að allt geng- ur hratt og vel fyrir sig. NAT.Kitchen er opið alla daga vikunnar frá kl. 9–21. Í boði er morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur, allt ferskt og heilsu- samlegt fæði sem unnið er frá grunni á staðnum. Margir eru staðráðnir í því að lifa heilsusamlegu lífi á nýju ári og bæta mataræði sitt. Ljóst er að maturinn á NAT.Kitchen er góður kostur fyrir þetta fólk. Til að gefa fleirum tækifæri til að upplifa heilsusamlegan mat á NAT. Kitchen verður sértakt tilboð í næst- unni: Dagana 20. til 31. janúar verður 20% afsláttur af öllu á matseðli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.