Fréttatíminn - 31.03.2017, Qupperneq 6
6 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017
Samgöngur Það skýtur skökku
við að á sama tíma og Reykja-
víkurborg boðar til í fundar-
ins „Léttari umferð“ sitja sjö
einkabílstjórar ráðherra í tómum
bílum við Stjórnarráðið.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Auglýsingastofan Brandenburg
birti þessa mynd á Instagram-síðu
sinni í vikunni, á sömu mínútunni
og upplýsingafulltrúi Reykjavíkur-
borgar boðaði á Facebook til op-
ins fundar undir yfirskriftinni Létt-
um umferðina. Umræðufundurinn
fer fram í Tjarnarsal Ráðhússins í
dag, föstudag, og meðal framsögu-
manna er borgarstjórinn Dagur B.
Eggertsson sem vill draga úr bíla-
umferð í bænum.
Sjónarspilið á myndinni er ekk-
ert nýtt. Svona hefur ásýnd Stjórn-
arráðsins verið í áraraðir þegar rík-
isstjórnin kemur þar saman. Hver
ráðherra hefur sinn bíl og einka-
bílstjóra til umráða og bíða bíl-
stjórarnir, oft með bílana í gangi,
á meðan fundarhöldin standa.
Lögmaðurinn Helga Vala Helga-
dóttir átti leið framhjá Stjórnarráð-
inu og birti mynd af bílaflotanum
á Facebook-síðu sinni. Hún vakti
athygli á að sumir bílanna voru í
lausagangi og spurði hvort ekki
væri lágmark að bjóða bílstjórun-
um inn í kaffi á meðan fundinum
stæði?
Ráðherrabílar í andstöðu við
„Léttari umferð“ borgarinnar
Sjö einkabíl-
stjórar biðu
fyrir utan
Stjórnarráðið
á meðan á
ríkisstjórnar-
fundi stóð.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Á T T U V O N
Á G E S T U M ?
Ítalskur svefnsófi með góðri
dýnu. Fæst dökkgrár, rauður,
ljósbrúnn og röndóttur.
Dýnust.: 140x200 cm.
Q UA D R O
PA L E R M O
C L I O
Ítalskur svefnsófi frá
Natuzzi Edition með góðri
dýnu. Hvítt eða rautt
vandað leður. Dýnust.:
140x200 cm.
FULLT VERÐ: 289.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
217.425 K R.
FULLT VERÐ: 389.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
292.425 K R.
Svefnsófi með góðri dýnu.
Rautt og dökkgrátt áklæði.
Dýnust.: 140x200 cm.
TILBOÐSVERÐ
277.425 K R. FULLT VERÐ: 369.900 KR.
2 5 % A F S L Á T T U R
A F Ö L L U M S V E F N S Ó F U M
Velferð Aðstandendur nokkurra
íbúa Seljahlíðar segja að eftir að
Félagsbústaðir keyptu þjónustu-
kjarnann hafi virkir fíklar fengið
að flytja þangað inn. Aldraðir íbú-
ar hússins séu mjög hræddir við
þá, þeir mígi í anddyrið og mölvi
diska í matsalnum.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Það eru tveir óreglumenn tiltölu-
lega nýfluttir inn sem valda íbúum í
Seljahlíð miklum ótta. Annar þeirra
er stöðugt að míga í anddyrið. Hinn
gengur um gangana og blótar og
öskrar og á greinilega erfitt. Eitt
skiptið lét hann öllum illum látum
í mötuneytinu og mölvaði diska. Af
þeim sökum þora sumir íbúar ekki
að borða morgunmat í matsalnum
og velja frekar að borða inni á her-
berginu sínu,“ segir Katrín Ósk Jó-
hannsdóttir, aðstandandi íbúa við
Seljahlíð. Hún segir mennina eiga
við fíknivanda að stríða, þeim fylgi
reykingar og ónæði sem geri aldr-
aða íbúa hússins hrædda.
Hún segir starfsfólkið alls ekki
stakk búið til að takast á við fólk
með slíkan vanda. „Auk þess er
þetta heimili gamals fólks og á að
vera þeirra öruggi staður og skjól.
Fíklar fluttir inn í Seljahlíð
– aldraðir íbúar hræddir
Það er óásættanlegt að þau þurfi að
loka sig af ótta við aðra íbúa.“
Seljahlíð í Breiðholti hefur hing-
að til verið þjónustuíbúðakjarni
og hjúkrunarheimili fyrir aldraða.
Nýlega keyptu Félagsbústaðir ehf
heimilið og tilkynntu íbúum að leig-
usamningi þeirra yrði sagt upp frá
1. apríl. Í kjölfarið hækki húsaleigan
í þrepum um 80-100%. Í tilkynn-
ingu Félagsbústaða segir að það
sé gert svo leigan sé í samræmi við
önnur leiguúrræði Félagsbústaða.
Mikil óánægja hefur verið með-
al íbúa Seljahlíðar vegna breyting-
anna og þykir þeim óþægilegt að
vera sagt upp leigusamningunum
og vera gert að greiða miklu dýrari
húsaleigu. Íbúarnir eigi ekki val um
annað en að samþykkja boð Félags-
bústaða.
Fleiri aðstandendur íbúa eru
ósáttir við að inn í húsnæðið séu
fluttir menn með fíknivanda, án
þess að gerðar hafi verið sérstakar
ráðstafanir. Þá herma aðstandend-
ur, sem Fréttatíminn hefur rætt við,
að starfsfólk á staðnum sé einnig
hrætt við mennina. „Það eru allir
sammála um að við þurfum að hlúa
vel að fólki með slík vandamál. Ef
þetta væri amerísk bíómynd, kæmi
ábyggilega eitthvað dásamlegt út úr
svona blöndun, en ég get ekki séð
að það komi neitt annað út úr þessu
en ótti hjá gömlu fólki. Það þyrfti að
fjölga starfsfólki og gera viðeigandi
ráðstafanir til þess að þetta gengi
upp,“ segir aðstandandi íbúa sem
ekki vill láta nafns síns getið. Hún
fullyrðir að íbúar séu hræddir við
að tala við fjölmiðla af ótta við að
baka sér óvinsældir hjá stjórnend-
um heimilisins.
Katrín Ósk segir að skortur á
upplýsingaflæði til íbúanna valdi
hjá þeim kvíða og þeir hafi feng-
ið pata af ýmiskonar hugmyndum
sem mögulega séu yfirvofandi. Hug-
myndum á borð við aukinn kostnað
við læknisþjónustu og sérstakt gjald
fyrir þvagprufur sem íbúum verði
gert að greiða.
Seljahlíð í Breiðholti hefur hingað til
verið þjónustuíbúðakjarni og hjúkr-
unarheimili fyrir aldraða.
Katrín Ósk Jóhannsdóttir segir aldraða íbúa Seljahlíðar hrædda við nýja íbúa sem glími við fíknivanda. Mynd | Heiða
Pítsan þrisvar sinnum dýrari
Neytendur Það kostar 1740 krónur
að kaupa einföldustu pítsuna á
Domino’s í Reykjavík á meðan hún
kostar aðeins 631 krónu í Kaup-
mannahöfn.
Ísland er sem kunnugt er dýrasta
land í heimi. Það sést til dæmis á
Domino’s pítsum. Pítsa Margarita,
pítsa með tómat, osti og basil,
kostar krónur 1.740 í Reykjavík en
1.293 krónur í nágrenni Oslóar. Þótt
Noregur hafi löngum verið dýrasta
land í heimi, ásamt Sviss, þar sem
Margarita kostar kr. 1.461, þá er pítsa
35 prósent dýrari á Íslandi en í Nor-
egi. Og 19 prósent dýrari en í Zürich.
Samanburðurinn verður enn
skelfilegri þegar Reykjavík er bor-
in saman við París, þar sem pítsan
kostar aðeins 520 krónur, eða
Amsterdam, þar sem Margarita
kostar 595 krónur. Þarna
munar næstum 200
prósentum, íslenska
pítsan er næstum
þrisvar sinnum
dýrari. Pælið í
því. | gse
Pítsa Margarita. Íslendingar
borga nær því þrisvar sinnum
meira fyrir þessa pítsu en fólk á
meginlandinu.