Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 20
Flott föt,
fyrir flottar konur
stærðir 38 - 58
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Kaliber KG-1301 gasgrill
3+1 brennarar/hliðarhella
grillflötur 2520 cm2, 11,5KW
Kailber KG-1503
Gasgrill 3x3KW
brennarar, grillflötur
2520 cm2, 9KW
39.900
43.400
Kailber KG-KG-2
Gasgrill 4x3,5KW brennarar,
grillflötur 3036 cm2,14KW
52.880
Grillandi gott
20 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017
í leik. Leikskólarnir eru báðir svokall-
aðir Vináttuleikskólar og vinna með
Vináttu, forvarnvarverkefni gegn ein-
elti í leikskólum frá Barnaheillum.
Blaðamaður fékk að heimsækja báða
leikskólana og fylgjast með tveimur
hópum í Vináttustund. Starfsmenn
leikskólanna segja að samskipti barn-
anna hafi tekið miklum og jákvæð-
um breytingum eftir að farið var að
vinna með verkefnið og þeir leik-
skólastarfsmenn og sérfræðingar
sem blaðamaður ræddi við eru sam-
mála um að markvisst forvarnarstarf
gegn einelti skipti miklu máli á þess-
um aldri.
„Fátt er börnum og foreldrum
þeirra mikilvægara en að börnunum
líði vel í skólanum, eigi góða félaga og
vini, hafi sjálfstraust og góða sjálfs-
mynd. „Þú mátt ekki vera með í leikn-
um“ eða „ég vil ekki leiða þig“, eru
orð lítilla leikskólabarna í íslenskum
leikskólum, barna sem eru að fóta sig
í flóknum heimi og læra samskipti við
jafnaldra sína. Svona samskipti virð-
ast sakleysisleg, en ef þau eru endur-
tekin gagnvart sama barninu án þess
að hinir fullorðnu grípi inn í, geta þau
þróast í einelti eða útilokun, sem jafn-
vel getur varað árum saman. Mikil-
vægt er að byrgja brunninn og það
er á ábygð hinna fullorðnu að gera
það,“ segir Margrét Júlía Rafnsdótt-
ir, verkefnastjóri Vináttu hjá Barna-
heillum. Verkefnið er byggt á nýjustu
rannsóknum um einelti, ákveðinni
hugmyndafræði og gildum. Það er
danskt að uppruna og nefnist þar Fri
for mobberi, og hefur gefið góða raun
þar í landi. „Í Danmörku sýna kann-
anir það að Fri for mobberi hefur haft
þau áhrif að einelti hefur minnkað í
grunnskólum, en þau börn sem byrj-
uðu að vinna með verkefnið í leik-
skóla 2007- 2008 eru nú á miðstigi
grunnskóla,“ segir Margrét.
Í viðtali í Fréttatímanum fyr-
ir skömmu benti Vanda Sigurgeirs-
dóttir, lektor í tómstunda- og félags-
málafræði við Menntavísindasvið
Háskóla Íslands, sem hefur sérhæft
sig í forvörnum gegn einelti, bæði í
leik- og grunnskólum, á mikilvægi
þess að hefja markvissar forvarnir
gegn einelti strax í leikskólum. Nú,
aðeins rúmu ári eftir að öllum leik-
skólum landins var boðið að taka þátt
í Vináttuverkefninu hafa 76 tekið á
móti Vináttutöskunni sem hefur að
geyma kennslu- og verkefni handa
börnum, foreldrum og starfsfólki
leikskóla, en það eru um 30 prósent
íslenskra leikskóla. Táknmynd verk-
efnisins er bangsinn Blær sem fylgir
með töskunni og kemur alla leið frá
Ástralíu.
Foreldrar settu reglur um afmæli
Það er mikið fjör á leikskólanum Læk
þar sem Kristín Laufey Guðjónsdóttir
aðstoðarleikskólastjóri tekur á móti
blaðamanni. Hún hefur starfað á
leikskóla í 20 ár og hefur því mikla
reynslu af starfi með börnum. Ýmis
mál hafa komið upp í gegnum tíð-
ina sem hún hefur þurft að taka á og
finnst henni því kærkomið að geta
notað Vináttuverkefnin til að leysa
vanda.
„Það koma upp samskiptaárekstr-
ar í hópunum hjá okkur eins og geng-
ur og gerist. En það er svo magnað
hvað þetta verkfæri gefur okkur. Blær
minnir börnin á að þau þurfa að
vanda sig. Góð og heiðarleg samskipti
skipta máli. Þau lesa ótrúlega vel í
spjöldin og vita þetta allt. Við leið-
um stundina áfram með vangavelt-
um þeirra og spurningunum sem eru
aftan á spjöldunum. Við kennararn-
ir þurfum líka að passa upp á að við
séum góðar fyrirmyndir, hvernig við
tölum við börnin, við hvert annað og
um aðra,“ segir Kristín sem finnur
líka jákvæðar breytingar á starfsfólk-
inu.
„Ég vil nefna eitt dæmi þar sem
ég bauð foreldrum stelpuhóps á fund
þar sem ég sá að samskipti stelpn-
anna voru ferleg. Við ræddum opin-
skátt um framkomu þeirra og líðan í
hópnum. Þetta opnaði augu mæðr-
anna sem áttuðu sig ekki beint á því
sem var að gerast. Þær voru allar
sammála um að samskiptin í hópnum
væru slæm en gerðu sér ekki grein
fyrir því að ein stelpan lenti oft fyrir
utan hópinn. Þetta samtal okkar var
mjög gagnlegt og sýnir glöggt hversu
mikilvægt er að ræða opinskátt um
vandamál og leita lausna.
Kristín segir að foreldrar barn-
anna á Læk séu til fyrirmyndar
þegar kemur að barnahópnum. Það
er passað upp á að enginn sé skil-
inn út undan. Foreldrar eru opnir
og samskiptin hreinskiptin og góð.
Hún upplifir þakk læti foreldra með
forvarnarvinnuna og mikil ánægja
ríkir með vináttuverkefnið. Á kynn-
ingarfundi með foreldrum fengu
foreldrar svo að gera raunhæf verk-
efni þar sem þeir tókust á við raun-
verulegar aðstæður. Allir fengu að
segja sína skoðun og svo var komist
að sameiginlegri niðurstöðu. „For-
eldranir ákváðu meðal annars að
setja reglu varðandi afmælisboð. Ef
okkur tekst að virkja foreldrana þá
kynnast þeir líka sín á milli. Stærstur
hluti þessara barna fer í sama grunn-
skóla og þá er gott fyrir foreldrana
að þekkjast.“
Opna á tilfinningar sínar
Kristín segir börnin miklu tilbúnari
að opna á tilfinningar sínar í vináttu-
stund heldur en til dæmis við matar-
borðið. „Þau hafa meiri styrk. Í hópn-
um ríkir virðing, börnin skipast á að
tjá sig og allir fá tækifæri til að tala því
hóparnir eru litlir og jafnræði ríkir.
Allar skoðanir eru virtar og með því
að kennarinn leiði umræðuna gefst
tækifæri til að kafa dýpra. Vináttu-
stundir eru trúnaðarstundir þar sem
börnunum gefst tækifæri til að opna á
samræður sem snúa að líðan, tilfinn-
ingum og upplifunum, þar skapast
tækifæri til að segja frá því sem þeim
liggur á hjarta. Þessar stundir gefa
okkur kennurunum líka góða sýn
Það er ljótt að skilja út undan
Fjölmargir leikskólar
á Íslandi taka þátt í
forvarnarstarfi gegn
einelti á vegum Barna-
heilla. Mikil ánægja er
með verkefnið hjá öll-
um sem að því koma;
börnum, foreldrum
og starfsfólki leikskól-
anna. Börnin sýna
jákvæðar breytingar
í samskiptum og læra
að þekkja tilfinningar
sínar. Á sama tíma
hefur fullorðna fólkið
orðið meðvitaðra um
framkomu sína í garð
annarra. Reynslan
af verkefninu í Dan-
mörku er að jákvæð
samskipti skila sér inn
í grunnskólanna og
dregið hefur úr einelti.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Börnin á leikskólunum Bæj-arbóli í Garðabæ og Læk í Kópavogi eru alveg sam-mála um að það er ljótt að skilja út undan og að góð-
ur vinur sýnir umhyggju og virðingu
Þau hafa meiri styrk. Í
hópnum ríkir virðing,
börnin skipast á að tjá
sig og allir fá tækifæri til
að tala því hóparnir eru
litlir og jafnræði ríkir. Allar
skoðanir eru virtar og með
því að kennarinn leiði um-
ræðuna gefst tækifæri til að
kafa dýpra. Vináttustundir
eru trúnaðarstundir þar
sem börnunum gefst tæki-
færi til að opna á sam-
ræður sem snúa að líðan,
tilfinningum og upplifun-
um, þar skapast tækifæri til
að segja frá því sem þeim
liggur á hjarta.
Börnin á Bæjarbóli eru alveg með það á hreinu að góður vinur sýnir umhyggju og hugrekki í erfiðum aðstæðum.
Í lok vináttustundarinnar nudda
börnin hvert annað, en biðja fyrst
um leyfi. Ef einhver vill ekki nudd þá
er það í góðu lagi.