Fréttatíminn - 31.03.2017, Qupperneq 30
30 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017
THE FULL RAY-BAN EXPERIENCE
NÝTT!
RAY-BAN - nú með styrkleikaglerjum framleidd af RAY-BAN. Styrkleika-
glerin eru með RAY-BAN merkingum. Fást bæði ólituð eða sem sólgler.
unum sem stóðu fyrir sex daga
stríðið árið 1967, var Austur-Jer-
úsalem í raun skilgreint palestínskt
landsvæði.
Skortur á öryggi
Samkvæmt Sólrúnu skortir palest-
ínskra borgara öryggið, en Palest-
ínumenn í Jerúsalem hafa í raun-
inni ekki örugg dvalarleyfi. „Síðan
1967 hafa 14 þúsund Palestínumenn
misst dvalarleyfi sín og 2000 palest-
ínsk heimili verið rifin. Árið 2014
var 35% lands í Austur-Jerúsalem
frátekið fyrir landtökubyggðir en
aðeins 13% af Austur-Jerúsalem
var fyrir palestínska uppbyggingu,
og stór hluti þess svæðis hefur nú
þegar verið nýttur,“ tekur Sólrún
sem dæmi. En fyrir blaðamann
hefur hún prentað út ýmis skjöl
frá Sameinuðu þjóðunum, Unicef
og öðrum stofnunum, máli sínu til
stuðnings. Sólrún minnir blaða-
mann á að árið 2014 hafi um 2200
kennslustofur vantaði fyrir palest-
ínsk börn í Austur-Jerúsalem.
Sumarið stormasama
„Maður finnur bara fyrir hernám-
inu, það voru róleg tímabil þar
sem maður gat betur notið alls
hins áhugaverða í Palestínu,“ seg-
ir hún en sumarið 2014, þegar Sól-
rún hafði búið í Jerúsalem í rúmt ár,
varð ástandið á Gaza vægast sagt
slæmt og yfir 2000 manns létust í
árásum Ísraelshers á svæðið, þar
af yfir 500 börn. Vesturbakkinn,
þar með talin Austur-Jerúsalem,
logaði af mótmælum sem áttu sér
stundum jafnvel stað fyrir utan hús
Sólrúnar. „Þetta sumar var palest-
ínskur strákur, sem bjó handan við
hornið við mig, myrtur þannig það
brutust út mikil mótmæli og óeirð-
ir, mest í kringum heimilið hans.“
Sólrún lýsir ástandinu sem
slæmu enda var hún sjálf hálf rugl-
uð af því að horfa á þetta úr fjar-
lægð. En starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna, þar á meðal Unicef sem
bjuggu á svæðinu, urðu að halda sig
heima. Þegar Sólrún rifjar upp at-
burði sumarsins myndast áhyggju-
hrukka á enni hennar en í minn-
ingunni eru atburðirnir vægast sagt
súrrealískir. Enda er ruglingslegt að
sjá sömu atburðina af svölunum og
á sjónvarpsskjánum. „Ég veit ekki
hvort ég var bara rugluð af reyk og
táragasi,“ segir Sólrún og hlær, en
verður svo alvarleg á ný. „Ég veit
ekki hvernig ég á að lýsa þessu
öðruvísi en þetta var bara súrreal-
ískt á köflum. Ég sá flugelda fara lá-
rétt og eitthvern tímann fannst mér
ég heyra kvennakór marsera upp
og niður götuna, en ég sá ekkert.“
Brynvarðir bílar í Betlehem
Vegna starfs síns ferðaðist Sólrún
víða og fór þar á meðal inn á Gaza-
-svæðið þar sem eftirlit er gífurlegt
og fáir komast inn og út. Þegar Sól-
rún fór yfir til þess að sinna vinnu
þar þurfti hún að vera í brynvörð-
um bíl og gat ekki farið hvert sem
er. En henni þótti það alltaf mjög
sérstakt að vera þar og gott að geta
hitt vinnufélaga og góða vini þar,
enda voru móttökurnar alltaf inni-
legar. Sólrún ferðaðist líka oft inn
á Vesturbakkann og átti vini bæði
í borgunum Ramallah og Hebron.
„Það var alveg vesen að fara yfir til
Ramallah,“ segir Sólrún og vísar í
eftirlitstöðvar líkt og eftirlitsstöðina
Qalandya sem aðskilur Jerúsalem
og borgina Ramallah. „Það gat tek-
ið langan tíma og var oft mikil um-
ferðarteppa. Mig langaði alveg að
vera meira í borginni en ég nennti
ekki alltaf að standa í þessu.“ Sól-
rún fór líka til borgarinnar frægu,
Betlehem, sem er á Vesturbakkan-
um. Þar hljóp hún tvisvar í mara-
þoninu Right to movement, eða
Réttur til ferðafrelsis, sem haldið
er ár hvert. Í lok síðasta árs var Sól-
rún þó loksins komin með nóg af
margra ára útlegð í fjarlægum lönd-
um og flutti heim til Íslands þar sem
hún starfar nú fyrir Rauða kross-
inn. Hún hugsar til borgarinnar í
austri með söknuði og sér fyrir sér
að snúa aftur áður en langt um líð-
ur.
„Árið 2014 var 35% lands í
Austur-Jerúsalem frátekið
fyrir landtökubyggðir en
aðeins 13% af Austur-Jer-
úsalem var fyrir palest-
ínska uppbyggingu, og
stór hluti þess svæðis hef-
ur nú þegar verið nýttur.“
Sólrún ferðaðist stundum um Vesturbakkann, m.a. til borgarinnar Hebron sem
stendur sunnarlega á Vesturbakkanum. Hér má sjá börn úr hverfinu ganga í
gegnum eftirlitsstöð, eflaust á leið heim úr skólanum.
„Það er bara ekki hægt að tala um Jerúsalem án þess að tala um hvað fólk er gestrisið og hjálpsamt. Maður þarf bara að vera
eins og sauður úti á götu í smá stund til að fólk komi og hjálpi manni. Það eru svo margir sem eru búnir að gera hluti fyrir
mig sem ég vil varla viðurkenna því það skemmir ímynd mína sem sjálfstæð kona.“