Fréttatíminn - 31.03.2017, Page 44
Það getur verið mjög notalegt að grípa í
einfaldan leik í símanum sem samt krefst
smá heilaleikfimi. Sérstaklega
þegar þú ert að bíða eftir ein-
hverju, eða bara þegar þig langar
að gleyma þér í smá stund. Leiki
eins og Candy Chrush og Two
Dots er hægt að sækja í flesta
snjallsíma og henta þeir sérlega
vel fyrir áðurnefndar aðstæður.
Ef þú vilt drepa tímann en fyllast inn-
blæstri á sama tíma er tilvalið að skoða
fasteignaauglýsingar. Það er svo
gaman að sjá hvað aðrir velja
eða hvernig þeir raða hlutum
heima hjá sér. Í fasteignaaug-
lýsingum sjáum við venjuleg
heimili sem sjaldan eru of
stíliseruð. Svo skaltu bara viður-
kenna að þú elskar að hnýsast.
Að geta hlustað á hljóð-
bók í símanum er algjör
snilld. Flestir eru alltaf með
símann á sér og því auðvelt að
hlusta stutta stund í einu. Sér-
staklega þægilegt ef þú þarft að
bíða eftir einhverju og vilt gera
eitthvað uppbyggilegt á meðan.
Smáforritið Audible kostar 1500
krónur og ein bók fylgir með.
ÞRJÁR
LEIÐIR TIL
AÐ DREPA
TÍMANN
Náttúrulegt
Þörungamagnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Mikil virkni
Bragðlaust duft í kalt vatn
5 mán. skammtur
Nýjar
umbúðir
Segðu frá góðri
æskuminningu
Ingibjörg Björnsdóttir
„Ég flutti til Danmerk-
ur í febrúar á 14.
aldursári og átti af-
mæli í maí. Ég var
mjög einmana í Dan-
mörku, var nýflutt og
þekkti ekki marga en átti stóran
vinkvennahóp á Íslandi. Þær tóku
sig saman allar og komu og heim-
sóttu mig í tilefni afmælisins. Við
skemmtum okkur konunglega í
Tívolí og á Bakkanum, jeminn hvað
það var mikið hlegið en á þessu lifði
ég lengi.“
Óskar Páll Elfarsson
Eitt það allra skemmti-
legasta sem ég gerði
sem barn var að
dunda í sveitinni
með afa. Hann hafði
alltaf tíma fyrir mig og
við áttum heiminn í sam- ein-
ingu. Hann bjó við Þingvallavatn
þannig ég var vanur að fara út á
bát með honum að veiða frá því ég
man eftir mér. Ómetanlegar stundir
sem ég mun aldrei gleyma, ég man
eins og það hafði gerst í gær þegar
afi sagði mér að nú væri ég orðinn
nógu stór til þess að stjórna mót-
ornum og stýra, ég hef sjaldan verið
jafn montinn.
Hreindís Ylva
Garðarsdóttir Holm
Ég er í rauninni ekki
mjög skörp að muna
hluti frá barnæsku
og það sem ég man
eru ekkert alltaf
merkilegir hlutir, en
mjög ljúfir. En ég er alin upp
í Mosfellsdal og á afmæli að vetri
til og man hvað það var ótrúlega
mikið sport þegar allar stelpurnar í
bekknum fengu að koma með mér
heim með skólarútunni og við rölt-
um í halarófu heim afleggjarann
í snjónum, allar dúðaðar í kraft-
galla og „moonboots“. Það mátti
ekki alltaf á milli sjá hvort mér
fannst meira gaman að taka þær
(sem bjuggu allar í göngufjarlægð
við skólann) með mér í ævintýrið
sem skólarútan var eða fyrir þær
að koma með.