Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 54
AMINO POWER PRE WORKOUT
BLANDA MEÐ KOFFÍNI EYKUR ORKU OG EINBEITINGU Á ÆFINGU
FÆST Í NETTÓ, H VERSLUN OG CROSSFIT GRANDA
takast á við nýja áskorun; fjall-
vegahlaup. Hann ákvað að fjall-
vegirnir þyrftu að vera níu kíló-
metrar eða lengri, ná að minnsta
kosti 160 metra hæð yfir sjó og
tengja saman tvö byggðarlög eða
áhugaverða staði. Leiðirnar gátu
verið fornar göngu- eða reiðleiðir
eða fáfarnir bílvegir.
Meira en bara að hlaupa
„Það sem er kannski áhugaverð-
ast í þessu er að setja sér mark-
mið og hvika ekki frá því. Þetta
var auðvitað margþætt; að halda
sér í formi, að kynnast landinu
sínu betur og sameina þetta
grúskáhuganum. Að læra um
þessar leiðir og skrifa fróðleik
og punkta um söguna. Þetta var
miklu meira en bara að hlaupa, ég
vildi kynnast landinu og miðla því
til annarra.“
Og það gerir hann í nýút-
kominni bók sinni, Fjallvega-
hlaup. Bókin inniheldur ítarlegar
og lifandi leiðarlýsingar fjallveg-
anna fimmtíu, urmul af ljósmynd-
um, kort og GPS-hnit, upplýsingar
um staðhætti og aðstæður auk
margs konar fróðleiks um sögu
og landafræði leiðanna. Þá er þar
að finna fjölda góðra ráða fyrir þá
sem hafa hug á slíkum ferðum.
Færist nær upprunanum
Hvað fer í gegnum hugann á manni
þegar maður hleypur um fjöll og
firnindi?
„Það er nú bara misjafnt. Já,
maður getur verið í hálfgerðu
zen-ástandi en ef ég á að nefna
eitt orð þá er það frelsi. Það að
geta verið þarna úti og hafa tíma
og tækifæri, og líkamlega burði,
til að geta upplifað náttúruna
er ótrúlegt. Maður færist aðeins
nær upprunanum. Svo ekki sé
minnst á íslenska náttúrufegurð,
fuglasöng og lykt af lyngi sem fólk
þekkir auðvitað þó það hafi aldri
hlaupið.“
Þú ert semsagt ekki með beljandi
þungarokk eða aríur í eyrunum til
að hvetja þig áfram?
„Nei, hlaupin nota ég til að fara
úr skarkalanum. Þegar ég á ekki
aðra kosti en að æfa á bretti þá
er ég með tónlist í eyrunum en
þegar ég hleyp úti þá er ég bara
að upplifa lífið.“
Fjölskyldan mikilvæg
Stefán segir að honum hefði aldrei
auðnast að standa við þetta fyr-
irheit sitt um fimmtíu fjallvega-
hlaup ef ekki væri fyrir stuðning
fjölskyldunnar. „Þetta er miklu
meira en bara ég einn að gera
eitthvað. Það þarf umburðarlyndi
og stuðning frá fólkinu á bak við
mann til að geta átt eins tímafrek
áhugamál.“
Hvað tekur svo við eftir að þess-
um áfanga er náð?
„Það hefur engin ákvörðun ver-
ið tekin um það ennþá. Ég ætla að
hlaupa einhverja fjallvegi í sumar
og halda áfram að skemmta mér
og gleðjast með öðrum. Ég fer til
að mynda Laugaveginn í sumar og
maraþon í útlöndum í haust. Svo
mun ég skrifa eitthvað og miðla
reynslu minni og upplifun. Þú
hættir ekki að hlaupa þó þú verðir
gamall – þú verður gamall þegar
þú hættir að hlaupa.“
Stefán Gíslason hefur farið víða á liðnum árum og hann er raunar hvergi nærri hættur.
Í tilefni afmælis síns hyggst hann standa fyrir fjórum fjallvegahlaupum í sumar.
Hægt er að kynna sér þau á heimasíðunni, fjallvegahlaup.com.
6 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017HLAUPOGCROSSFIT