Fréttatíminn - 31.03.2017, Side 58
Balsam styrkir rannsóknir á krabbameini
Blái naglinn fagnar fimm ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni af því hefur sérstakur Samfélagssjóður Bláa naglans
verið stofnaður með það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á krabbameini Íslandi.
Unnið í samstarfi við Balsam ehf.
Einstaklingar og fyrir-tæki geta lagt sjóðnum lið og er Balsam ehf. eitt þeirra fyrirtækja sem
hefur svarað kallinu.
„Eitt helsta baráttumálið
verður að auka möguleika á
snemmgreiningu sem gengur
út á að taka reglulega blóðsýni
hjá fólki, yfir tvítugt, til að leita
eftir vísbendingum um mein
í blóði. Pælingin er sem sagt
sú að ná að grípa inn í áður en
mein kemst í líffæri, en eftir að
það gerist er miklu erfiðara að
höndla það,“ útskýrir Jóhannes
Reynisson, forsvarsmaður Bláa
naglans, þegar hann er spurður
út í hlutverk sjóðsins.
Brýnt mál fyrir
okkar samfélag
Með öðrum orðum þá ertu að
segja að snemmgreining auki
líkur á því að krabbamein grein-
ist á grunnstigi?
„Já og það yrði ekki eini
ávinningurinn. Því snemm-
greining gæti mögulega dreg-
ið úr lyfjanotkun og ýmsum
óþægilegum hliðarverkunum,
sem henni kunna að fylgja, og
minnkað lyfjakostnað að auki.“
Jóhannes segir baráttumál-
ið vera í takt við þá stefnu sem
læknavísindin séu að taka.
„Þau eru farin að skoða hvern-
ig megi drepa krabbameins-
frumur „nánast í fæðingu“, ef
svo má að orði komast, og mér
finnst brýnt að við sem samfé-
lag leggjum því mikilvæga starfi
lið. Það getur skipt sköpum
fyrir komandi kynslóðir, fyrir
börnin okkar, að þessir hlutir
séu í lagi,“ segir hann og bætir
við að ef að allt gangi að óskum
þá muni Samfélagssjóður Bláa
naglans hafa aðsetur í húsa-
kynnum Íslenskrar erfðagrein-
ingar.
Og á hverju veltur það? „Þátt-
töku samfélagsins,“ segir hann.
„Við stefnum á að fá 365 fyrir-
tæki á jafn mörgum dögum til
að gerast bakhjarlar sjóðsins
með því að styrkja hann um 10
þúsund krónur á mánuði, eða
sem samsvarar samanlagt 43,8
milljónum á ári. Auk þess sem
einstaklingar geta lagt sjóðnum
lið með því að gefa tvö þúsund
krónur á mánuði. En allir pen-
ingar sem safnast fara beint í
rannsóknir.“
Mikilvægt að styrkja
gott málefni
Balsam er eitt þeirra fyrirtækja
sem styrkja Samfélagssjóð Bláa
naglans. Sölu- og markaðsstjóri
þess, Margrét Rós Einarsdótt-
ir, segir brýnt að leggja sitt af
mörkum til krabbameinsrann-
sókna á Íslandi.
„Krabbamein er eitthvað sem
snertir okkur öll og þess vegna
fannst okkur mikilvægt að
styrkja sjóðinn með einhverjum
hætti. Úr varð að láta hluta af
sölu á Curcumin, sem er okkar
vinsælasta vara, fara í hann,“
segir hún en í apríl munu 100
krónur af hverri seldri dós af
Curcumin renna í sjóðinn.
„Allir okkar söluaðilar ætla að
hafa Curcumin sýnilegt og hvar
sem þú kaupir það, þá ertu að
styrkja krabbameinsrannsóknir
á Íslandi,“ útskýrir Margrét og
segist vona að sem flestir leggi
sjóðnum lið.
Nánari upplýsingar má finna
á Facebook-síðu Bláa naglans.
10 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017HLAUPOGCROSSFIT
Hristingar –
fljótleg og góð leið
til að endurheimta
jafnvægi eftir hlaup
Hvort sem þú ert að leita þér að fljótlegum morgunverði eða
góðri næringu til að byggja upp líkamann eftir hlaup þá eru safar og
hristingar frábær kostur í mataræði hlaupara.
Unnið í samstarfi við
Floridana og Weetabix
Það er hlaupurum mikilvægt að borða fljótlega eftir hlaupa-æfingu til að hjálpa
líkamanum að byggja upp
vöðva og
endurnæra lík-
amann. Margir
hafa hins
vegar ekki
lyst á þungri
máltíð eftir
æfingu. Safar
og hristingar
eru góður valkostur
til að líkaminn öðlist jafnvægi
eftir hlaup. Hristingar eru ferskir
og auðmeltanlegir og innihalda
þau kolvetni, prótein og vítamín
sem líkaminn þarf á að halda eft-
ir lengri æfingar.
Hér eru nokkrar uppskriftir að
næringarríkum hristingum sem
hjálpa hlaupurum að nærast vel
og jafna sig hratt eftir hlaup:
Floridana Weetabixhristingur
220 ml Floridana Goji (1glas)
1 kaka af Weetabix Original eða
Weetabix Protein
70 g frosnir ávextir
Sett í blandara í 1 mínútu
Weetabix er trefjaríkt, eykur daglega
trefjainntöku og stuðlar með því að
betri meltingu. Weetabix Protein inni-
heldur 19 g af próteinum í 100 g.
Goji hristingur
1 banani
1 dl jarðarber ( 4-6 stk.)
4-6 myntulauf
1 msk chia-fræ ( ef vill )
2dl Floridana Goji
vatn og klakar
eftir þörfum
Öllu blandað vel saman
þar til verður silkimjúkt.
Goji er eru rík af
C- vítamíni og karótenóið-
um sem eru andoxunarrík.
Heilsusafahristingur
1-2 dl ananas
½ banani
1-3 cm fersk, rifin engiferrót
örlítið af rauðum chili-pipar
1-2 dl Floridana Heilsusafi
klakar eftir þörfum
Öllu blandað vel saman þar til
verður silkimjúkt.
Heilsusafi inniheldur eingöngu
náttúruleg C-vítamín, sem eru
talin efla ónæmiskerfi líkamans
og tryggja að það starfi eðlilega
við áreynslu.
eru bragðgóðir og stút-
fullir af vítamínum sem
eru nauðsynleg í dags-
ins önn. Floridana
safar innihalda aldrei
viðbættan sykur,
rotvarnarefni eða
litarefni.
Floridana safar
Weetabix
Curcumin er virka innihaldsefnið
í túrmerik og hefur lengi
verið notað í matargerð og
lækningaskyni í Asíu með góðum
árangri, að sögn Margrétar, sem
sést hér ásamt Jóhannesi. Í apríl
renna 100 krónur af hverri seldri
dós af Curcumin til styrktar
samfélagssjóði Bláa naglans, en
Curcumin fæst í öllum apótekum,
heilsuverslunum og heilsuhillum
stórmarkaða.
Mynd | Heiða Helgadóttir
Weetabix er gert úr 95% heilkorn-
um og er með lágt sykur-, salt- og
fituinnihald. Weetabix inniheldur
einnig mikilvæg vítamín, steinefni
og járn, sem eru nauðsynleg fyrir
vöxt og viðhald heilbrigðs líkama.