Fréttatíminn - 31.03.2017, Page 60
12 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017HLAUPOGCROSSFIT
Sérþekking, þjónusta
og áratugareynsla
Afreksvörur er sérverslun hlauparans, verslunin er í Glæsibæ. Þar er hægt að fá allar vörur og vörur tengdar hlaupum
og því sem þeim tengjast. Allt frá hlaupaskóm til næringarefna sem tengjast hlaupum og allt þar á milli.
Unnið í samstarfi við Afreksvörur
Þar er einnig hægt að fara í hlaupagreiningu en þar er heildarmynd hlaupa-hreyfinga greind og fólk
fær góð ráð um hvað það þarf að
leggja áherslu á í sínum hlaupum
og hvort það getur breytt ein-
hverju í sínum hlaupastíl. Dan-
íel Smári er stofnandi og eigandi
verslunarinnar og með áratuga-
reynslu í því að ráðleggja fólki
um allt sem við kemur hlaupum.
Þegar Daníel er spurður hver sé
sérstaða verslunarinnar segir
hann:
„Við erum 11 ára gömul verslun,
höfum verið í rekstri frá því 2005.
Við erum fyrsta og eina sérversl-
unin fyrir hlaupara, sérhæfum
okkur í vörum fyrir hlaupara.
Bjóðum upp á mikla sérþekkingu,
þannig að við getum sagt að við
bjóðum upp á þekkingu og ára-
tugareynslu af því að ráðleggja
hlaupafólki. Við sérhæfum okkar
í fatnaði fyrir hlaupara og þá er
alveg sama hvaða hlaup fólk er að
stunda, götuhlaup eða fjallavega-
hlaup. Við erum með mjög vönduð
vörumerki sem eru sérvalin inn
í verslunina okkar og við erum í
nánu og góða samstarfi við fram-
leiðendurna af þeim vörum sem
við seljum. Við höfum líka verið að
bjóða upp á hlaupastílsnámskeið.
Fyrir þá sem koma og kaupa skó
hjá okkur er innifalin hlaupagrein-
ing, hvort heldur sem það er áður
en fólk kaupir skóna eða eftir á,“
segir Daníel.
Hefur þú fundið fyrir auknum
áhuga fólks á utanvegahlaupum?
„Já, ekki spurning, alveg frá
árinu 2010 hefur verið ört vaxandi
áhugi á þessum hlaupum. Síðustu
2-3 árin hefur þetta alveg sprung-
ið út. Fjallahlaup eru eiginlega fyr-
ir mér að verða önnur íþrótt því
þau eru svo gjörólík götuhlaupun-
um,“ segir Daníel.
Hvaða ráð getur þú gefið fólki
sem er að taka sín fyrstu skref í
hlaupunum?
„Það sem er númer 1, 2 og 3 eru
góðir hlaupaskór og þá þarf að
vanda valið og finna réttu hlaupa-
skóna. Þeir sem ætla virkilega að
koma sér af stað og halda sér í
þessu þeir þurfa að fara af stað
rólega og hóflega. Ekki ætla sér
of mikið til þess að byrja með.
Sérstaklega ef fólk er komið yfir
fertugsaldurinn, þá er ekki nóg
að reima á sig skóna og hlaupa af
stað. Það verður að vera ákveðin
grunnur til þess að geta hlaupið.
Fólk þarf að búa yfir ákveðnum
styrkleika og liðleika og það þarf
að byggja upp og vera til staðar.
Margir falla í þá gryfju að hlaupa
af stað og lenda þá á vegg og gef-
ast þá strax upp. Fólk er líka farið
að hugsa meira út í styrktarþjálf-
un og svo er jóga líka komið inn í
þetta,“ segir Daníel.
Hvað þarf fólk að hafa í huga
þegar það er að kaupa sér
hlaupaskó?
„Það er þrennt sem þarf að
hafa í huga þegar fólk er að fara
kaupa sér hlaupaskó. Í fyrsta lagi
ertu að kaupa þér hlaupaskó fyrir
götuhlaup eða ertu að kaupa þér
skó fyrir fjallahlaup? Þetta er al-
veg tvennt ólíkt. Annað atriði er
að þú átt að kaupa þér létta skó.
Það er vegna þess að það hefur
orðið gjörbylting í framleiðslunni.
Skórnir eru orðnir miklu léttari
en samt að veita betri dempun.
Konur eiga ekki að kaupa sér
þyngri skó heldur en 230 grömm
og karlar eiga ekki að kaupa sér
þyngri skó en 280 grömm. Svo
þarf sólinn að vera 20-28 mm
þykkur til að gera veitt þér þá
dempun sem þú þarft til þess að
hlaupa á hörðu undirlagi. Svo þarf
dropið að vera undir 8 mm. Drop
þýðir munur á þykkt sóla frá hæl
að tábergi og best ef dropið er
undir 4 mm. Allt er þetta hugsað
til þess að minnka líkur á álags-
meiðslum. Hlaupin verða náttúru-
legri og eins og þú sért að hlaupa
berfættur í sandi eða grasi. Ut-
anvegaskórnir, hins vegar, þurfa
að vera stöðugir með góðu gripi,“
segir Daníel.
Frekari upplýsingar um vörur
og þjónustu er hægt að nálgast
á www.afrek.is
Brot af glæsilegu úrvali sem fæst í versluninni í
Glæsibæ Mynd | Heiða Helgadóttir