Fréttatíminn - 31.03.2017, Qupperneq 63
15 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2017 HLAUPOGCROSSFIT
Spennandi, íslenskt, nýtt
og ferskt íþróttamerki
Brandson er nýtt íslenskt vörumerki á markaðnum með vandaðan æfingafatnað sem er hannaður á Íslandi.
Hann hefur þá sérstöðu að vera íslensk hönnun með tilvísun í íslenska sögu og menningu.
Unnið í samstarfi við Brandson
Dömu vörulínur Brandson heita eftir valkyrjum. Má þar nefna sem dæmi „Brynhildur“, fyrstu vöru
Brandson, sem er nefnd eftir Bryn-
hildi Buðladóttur valkyrju.
Markmið Brandson er að hjálpa
fólki að ná markmiðum sínum og
ýta undir vitundarvakningu, styrkja
ímynd og persónuleika. Brandson
vill geta boðið upp á vandaða vöru
sem hentar öllum, vandaða hönnun
og góðar vörur sem veita þér inn-
spýtingu í þau markmið sem þú
hefur sett þér og hjálpa
þér að ná þeim markmið-
um. Bjarni Kjartansson
Thors er stofnandi
og eigandi Brandson.
Hann er menntaður
grafískur hönnuður, hvernig
leiddist hann inn í þennan heim
æfingafatnaðar?
„Mig hefur alltaf langað til þess
að vera með eigin vöru sem ég
gæti komið á markað, hef próf-
að ýmislegt en svo datt ég inn
á þetta. Hef alltaf haft mikinn
áhuga á fatnaði og tel þetta
mjög góða leið til að fá
útrás fyrir mína
sköpunarþörf
á þeim vett-
vangi. Ég er
mennt-
aður
grafískur
hönnuður og það
hefur hjálpað mér alveg gríðar-
lega mikið í þessu öllu saman.
Sérstaklega við það að koma
vörunni á framfæri ásamt því að
hanna fötin og teikna mynstur og
grafík á fötin. Það er komið rúmt
ár núna síðan við settum fyrstu
vöruna á markað en ferlið fram
að því var stanslaus vinna, þetta
tók um það bil 2 ár, annars hefur
bara gengið mjög vel. Auðvit-
að hefur gengið á ýmsu og þetta
er mikil vinna sem kostar miklar
fórnir. Auðvitað hafa verið nokkur
skakkaföll á leiðinni en maður hef-
ur lært mjög mikið á þessu ferli,“
segir Bjarni.
Hver er það sem hannar
fatnaðinn?
„Ég geri í raun allt saman sjálfur
frá A-Ö. Ég hef þurft að
læra fullt af hlutum svo-
lítið hratt en ég hanna
fötin sjálfur og sendi
snið til Kína þar sem
fötin eru framleidd,
fæ þau svo send
hingað heim
þar sem ég
sé um að
markaðssetja og
koma vörunum til við-
skiptavinanna“ segir
Bjarni.
Hvar er hægt að
nálgast vörurnar?
„Eins og staðan er
í dag, þá er hægt að
nálgast vörurnar
á vefsíðunni
www.brandson.is.
Mjölnir tók inn
vörurnar okkar og
merkir þær með sínu
vörumerki og selur þær
í heilsuræktarstöð
sinni í Öskjuhlíð, það
er mjög spennandi
að vinna með þeim.
Núna nýverið byrj-
uðum við að selja
vörurnar okk-
ar í VBC - MMA
stöðinni sem er á
Smiðjuvegi (græn
gata) í Kópavogi,“
segir Bjarni.
Eru vörurnar fyrir bæði kynin?
„Í dag erum við bara með fatnað
fyrir konur. En ég er að vinna í því
að koma herralínu í framleiðslu.
Ég stefni að því að breikka vöru-
línuna sem ég er með í dag, en
það tekur langan tíma og
krefst ákveðinnar rann-
sóknarvinnu og maður vill
vanda sig og gera þetta vel.
Svo ég taki dæmi um
þetta þá tók það mig um
tvö ár frá því ég byrjaði
vinnuna og þangað
til ég kom fyrstu
vörunni á markað.
Þannig að þetta er
langt og strangt
ferli og margir
þættir sem maður
verður að hugsa út
í,“ segir Bjarni.
Nú er liðið ár
frá því þið settuð
fyrstu vöru ykkar
á markað. Hvernig
hafa viðbrögðin
verið?
„Ég er rosalega
ánægður hvað okkur
hefur verið vel tek-
ið. Við höfum fengið
rosalega góð og já-
kvæð viðbrögð. Fólki
finnst þetta
spennandi, íslenskt,
nýtt og ferskt íþrótta-
merki, það vekur athygli
hjá fólki. Fólk sem hefur
keypt vörurnar hefur
verið rosalega ánægt
og gefið okkur mjög
góð meðmæli sem hjálpar
mikið til,“ segir Bjarni.
Er eitthvað spennandi
framundan hjá Brandson?
„Já, heldur betur, við
erum núna í næsta mánuði
að frumsýna nýjan íþrótta-
topp sem er búið að bíða mikið
eftir. Svo verðum við með þrennar
nýjar buxur í nokkrum mismun-
andi litum. Þannig að apríl verður
mjög skemmtilegur hjá okkur.
Svo í þessum töluðu orðum erum
við að vinna í herralínu sem er
mjög skemmtilegt verkefni,“ segir
Bjarni.
Bjarni Kjartansson Thors er
eigandi og stofnandi Brand-
son og gerir allt saman
sjálfur, hann er Brandson frá
A-Ö. Mynd | Heiða