Húnavaka - 01.05.2016, Blaðsíða 176
H Ú N A V A K A 174
Lára Sveinbergsdóttir
frá Blönduósi
Fædd 31. október 1956 – Dáin 31. janúar 2015
Lára var fædd að Sæbóli á Blönduósi. Foreldrar hennar voru Lára Guð munds-
dóttir, f. 1912, d. 1997, húsfreyja frá Sólheimum og Sveinberg Jónsson, f. 1910,
d. 1977, fulltrúi frá Stóradal. Þau hjón eignuðust sex börn sem upp kom ust.
Þau eru: Birgir f. 1941, Þórey f. 1942, Gísli f. 1944, Margrét f. 1945, Sigurgeir
f. 1951 og Lára sem var yngst systkinanna. Foreldrar þeirra eignuðust og
stúlku sem lést nokkurra vikna gömul. Auk alsystkinanna átti Lára systurina
Sjöfn Ingólfsdóttur, f. 1939 sammæðra og bræðurna, Brynjólf, f. 1934, Jón
Sveinberg, f. 1936 og Grétar, f. 1938, d. 1992, samfeðra.
Lára átti heima á Blönduósi til ársins 1967 en þá fluttu foreldrar hennar til
Reykjavíkur ásamt yngstu börnum sínum, Sigurgeiri og Láru. Hún átti góð
bernskuár á Blönduósi og henni þótti alla tíð vænt um fæðingarstað sinn. Þar
var hún í skóla fyrstu skólaárin og þar naut hún þess m.a. að hlusta á sjóinn
og horfa á hann. Henni þótti alla tíð gott að vera og búa nálægt sjó.
Eftir að Lára flutti til Reykjavíkur stundaði hún
nám við Vogaskóla og síðar við Iðnskólann í
Reykja vík þar sem hún lagði stund á tannsmíði.
Að námi loknu starfaði hún við fag sitt til ársins
1984.
Hún giftist árið 1986 Örlygi Jónatanssyni
f. 1950 en þau höfðu hafið sambúð þremur árum
áður. Þau hjón eignuðust tvö börn sem eru:
Harpa Lind f. 1984, unnusti hennar er Níels Árni
Árnason og eiga þau eina dóttur. Jónatan Arnar
f. 1988, unn usta hans er María Leifsdóttir og eiga
þau eina dóttur. Fyrir hjónaband átti Lára
dótturina Berg rúnu Brá Kormáksdóttur f. 1977,
hún á eina dóttur.
Lára og Örlygur héldu vel utan um börnin sín og ömmu- og afabörnin.
Lára var heimavinnandi á meðan börnin voru ung. Það var þeim dýrmætt og
einnig að hún gaf þeim alltaf tíma og umvafði þau kærleika. Hún sýndi
viðfangsefnum og verkefnum barnanna alla tíð lifandi áhuga og studdi mjög
við börnin sín í íþróttaiðkun þeirra. Sjálf þjálfaði hún og keppti í sundi.
Árið 1989 stofnuðu þau hjón fyrirtækið Skjámynd og þar starfaði hún af
krafti alla tíð síðan. Árum saman rak hún einnig umboðssöluna Huld s/f og
hún starfaði um skeið með Caron samtökunum.
Lára var skipulögð og hún kunni þá list að hafa allt í röð og reglu. Hjá henni
var fjölskyldan og velferð hennar ávallt í fyrirrúmi. Hún var sérlega barngóð
og hún lét sér afar annt um allt fólkið sitt og vini og talaði vel um fólk. Láru