Húnavaka - 01.05.2016, Blaðsíða 182
H Ú N A V A K A 180
Árið 1970 fékk Robert vinnu hjá Nato á Íslandi og þangað flutti fjölskyldan.
Á Íslandi bjó Aase í nokkur ár en hún flutti síðan aftur til Færeyja. Aase lærði
að verða áfengisráðgjafi, þ.e. að hjálpa fólki í áfengis- og vímuefnavanda og
það nám stundaði hún bæði í Danmörku og Englandi. Hún vann við
áfengisráðgjöf í Færeyjum til ársins 2001 en þá hætti hún vinnu vegna aldurs.
Í kjölfarið ákvað hún að flytja til Íslands, til Blönduóss þar sem dóttir hennar
Charlotta bjó með eiginmanni og börnum þeirra. Hún var þá orðin ein, hún
og Robert voru skilin og hann flutti til Bandaríkjanna en þar bjó einnig dóttir
þeirra, Elisabeth.
Aase lifði viðburðaríku lífi, hún hafði alltaf gaman af leiklist, það var
hennar áhugasvið. Hún hafði líka mikla ánægju af tónlist.
Á Blönduósi bjó Aase í um 14 ár og lengst af að Hnjúkabyggð 27. Á þeim
tíma var hún í fimm ár kirkjuvörður í Blönduóskirkju á sumrin og átti það vel
við hana að hitta ferðamenn og tala við þá. Hún kunni mörg tungumál, eins
og færeysku, dönsku, sænsku, þýsku, ensku og íslensku. Hún var heimsborgari
og hafði góða og fágaða framkomu. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á
Blönduósi, þar hafði hún dvalið í stuttan tíma.
Útför Aase Vilborg Madelaire Dunn fór fram frá Fossvogskapellu í
Reykjavík 18. maí og hlaut hún grafarstað í Þórshöfn í Færeyjum.
Sr. Sveinbjörn Einarsson.
Guðfinna Pálsdóttir,
Blönduósi
Fædd 21. september 1930 – Dáin 27. apríl 2015
Guðfinna var fædd á Hofi á Skagaströnd. Foreldrar hennar voru hjónin Sig-
ríður Guðnadóttir, f. 1900, d. 1964, frá Hvammi
í Holtum og Páll Jónsson, f. 1899, d. 1979,
fæddur á Balaskarði. Börn þeirra Páls og Sigríðar
eru í aldursröð: Kristinn, f. 1927, d. 2008, Guðný
Málfríður, f. 1929, d. 2005, þá Guðfinna, Jón
Sveinn, f. 1933, Ingveldur Anna, f. 1935, Ásdís,
f. 1936 og Edda, f. 1939, d. 2016.
Guðfinna eða Finna, eins og systkini hennar
kölluðu hana, ólst upp á Hofi til fermingaraldurs.
Á Hofi var mannmargt, þar bjuggu afi og amma
Guðfinnu, Jón og Guðný og föðursystkini hennar,
þau Vilhelmína og Pétur. Frá Hofi flutti fjölskyldan
þegar faðir hennar, sem var kennari, gerðist
skóla stjóri við Barnaskóla Höfðakaupstaðar og
bjó fjölskyldan eftir það á Breiða bliki í Höfða kaup stað.
Hún varð gagnfræðingur frá Gagnfræðaskóla Akureyrar og fór síðan í lýð-
háskólann Jakobsberg í Svíþjóð. Guðfinna vann ýmis störf þau þrjú ár sem