Húnavaka - 01.05.2016, Síða 185
H Ú N A V A K A 183
fór fram frá Hólaneskirkju þann 16. maí. Jarðsett var í Höskuldsstaðakirkju-
garði.
Sr. Bryndís Valbjarnardóttir.
Matthildur Hall Jónsdóttir,
Skagaströnd
Fædd 11. júlí 1942 – Dáin 5. júní 2015
Matthildur fæddist á Akranesi. Foreldrar hennar voru Jón Hall Magnússon,
f. 1910, d. 2000, vörubílstjóri frá Broddadalsá í Fellshreppi, Strandasýslu og
Guðrún Bjarnadóttir, f. 1920, d. 2003, húsfreyja frá Akranesi. Matthildur var
elst fimm systkina en þau eru í aldursröð: Magnús, f. 1945, Guðbjörg Birna,
f. 1947, Gunnar Norðqvist, f. 1950 og drengur er lést nokkurra daga gamall.
Matthildur (Maddý) ólst upp ásamt systkinum
sínum, hún hóf ung að starfa hjá fiskverkun
Haraldar Böðvarssonar á Akranesi. Þar kynntist
hún Björgvini Hanssyni, f. 1937 og eignaðist með
honum tvö börn sem eru: Sigurbjörn f. 1960,
kvæntur Þóreyju Jónsdóttur og eiga þau tvö börn.
Guðrún Jóna f. 1963, maður hennar er Hallgrímur
Karl Hjaltason og eiga þau sjö börn. Fyrir á
Hallgrímur þrjú börn. Maddý og Björgvin slitu
samvistum.
Leið Maddýjar lá að Brekku á Djúpavogi sem
ráðskona, þar hitti hún lífsförunaut sinn, Ottó
Ákason, f. 1921, d. 2005, sem þar var fæddur.
Maddý og Ottó hófu búskap á Brekku en þar
bjuggu einnig tengdaforeldrar hennar, þau Áki
Kristjánsson og Áslaug Jónsdóttir. Síðar byggðu þau sér á sömu jörð sitt eigið
hús, Sólbrekku.
Matthildur og Ottó eignuðust fimm börn sem eru: Rögnvaldur f. 1965, kona
hans er Guðrún Halldóra Björnsdóttir og eiga þau eitt barn, fyrir á Rögnvaldur
annað barn. Guðfinnur Bjarni f. 1966, kvæntur Jensínu Lýðsdóttur og eiga þau
þrjú börn. Ársæll Anton f. 1968, kvæntur Jóhönnu Guðrúnu Guð björnsdóttur
og eiga þau tvö börn og þrjú börn sem eru látin. Erlingur Sigurjón f. 1971,
kvæntur Oddnýju Ösp Gísladóttur og eiga þau þrjú börn. Áslaug f. 1981, gift
Sigurði Sverri Ólafi Hallgrímssyni og eiga þau tvö börn og barn sem er látið.
Árið 1974 fluttu Maddý og Ottó til Skagastrandar og störfuðu hjá
Hólanesi hf. allt til ársins 1989 er þau fluttu aftur austur á Djúpavog. Þrjú
yngstu börnin fylgdu þeim en þau eldri voru flutt að heiman. Þar starfaði
Maddý hjá Búlandstindi við síldarsöltun og önnur fiskvinnslustörf. Eftir 9 ára
dvöl á Djúpavogi sneru Maddý og Ottó aftur til Skagastrandar og fluttu þau í
Réttarholt þar sem þau bjuggu til æviloka.