Húnavaka - 01.05.2016, Blaðsíða 186
H Ú N A V A K A 184
Maddý var harðdugleg kona. Jafnhliða húsmóðurstarfi á stóru og gestkvæmu
heimili var hún útivinnandi. Hugulsemi hennar var skilyrðislaus. Hún var
matmóðir margra og nutu bæði skyldir og vandalausir að þiggja af henni,
hvort heldur var prjónaða skjólflík eða krásir af borðum.
Hún hafði ástríðu fyrir kökuuppskriftum. Með léttum og hraðvirkum hand-
tökum var hver sortin bökuð á eftir annarri og seiðmagnandi ilmurinn af ný-
bökuðu bakkelsi dró vinkonur iðulega í morgunkaffi í Réttarholt.
Maddý var brosmild kona, þolinmóð, umburðarlynd og æðrulaus. Hún var
næm á líðan samferðafólks síns og bar sálarheill þess fyrir brjósti. Var góður
vinur og trygglynd þeim sem hún myndaði náið samband við og ávallt til
þjónustu reiðubúin. Hún var heimakær, hennar gæðastundir voru að njóta
einveru og kyrrðar með prjónana eða bók í hönd.
Í júlímánuði árið 2009 greindist Maddý með krabbamein. Þolgæði, seigla
og þrek einkenndi baráttu hennar við sjúkdóminn allt þar til yfir lauk. Hún lést
á Sæborg, dvalarheimili aldraðra á Skagaströnd.
Útför hennar var gerð frá Hólaneskirkju þann 13. júní. Jarðsett var í
Spákonufellskirkjugarði.
Sr. Bryndís Valbjarnardóttir.
Stefán Björn Steingrímsson
frá Móbergi
Fæddur 11. janúar 1938 – Dáinn 10. júlí 2015
Stefán fæddist í Reykjavík. Foreldrar hans voru Steingrímur Björnsson
vörubílstjóri, f. 1913, d. 2002 og María Valdimarsdóttir húsmóðir, f. 1915,
d. 1992. Alsystkini Stefáns eru tvíburasystir hans, Guðlaug Sigurbjörg, f. 1938
og Valdimar Ágúst, f. 1939. Hálfsystkini sammæðra eru Anna Sigurbjörg Sig-
urð ardóttir, f. 1932, Emil Pétur Ágústsson,
f. 1944, d. 2015 og Björgvin Alexander Gíslason,
f. 1947, d. 2009.
Hinn 8. ágúst 1967 kvæntist Stefán eftirlifandi
eiginkonu sinni, Ernu Svavarsdóttur, f. 1945, frá
Blönduósi. Dóttir þeirra er Þóra, f. 1968. Börn
hennar og Inga Guðjónssonar, fyrr verandi
sambýlismanns, eru tvö.
Stefán sleit barnsskónum á Móbergi í Langadal
ásamt systkinum sínum, Guðlaugu og Valdimari,
þar sem þau ólust upp hjá föðursystkinum sínum.
Hann fór ungur til náms í rafvirkjun og lauk
rafvirkjameistaraprófi frá Iðnskólanum í Reykja-
vík. Hann vann sem rafvirki við byggingu Sogs-
virkjana og síðar við Búrfellsvirkjun. Stefán var einnig til sjós um árabil og þá
á úthafstogurum þeirra tíma sem sigldu jafnan með aflann til erlendra hafna.