Húnavaka - 01.05.2016, Síða 188
H Ú N A V A K A 186
en hann gekk henni í föðurstað. Hún var náin móðurforeldrum sínum, þeim
Sigurlaugu Þóru Hermannsdóttur (Sillu) og Hlyni Tryggvasyni en hjá þeim
átti hún ætíð sitt annað heimili.
Hún var vinamörg og átti auðvelt með að kynnast fólki. Hún eignaðist kær-
asta og sáluvin, hann Ágúst Gest Guðbjargarson f. 1995 í Eyjarkoti. Hanna
Lísa var hvers manns hugljúfi, blíð og góð og stutt í hlátur inn. Ef og þegar
slettist upp á vinskap var hún fyrst til að rétta fram sáttahönd.
Henni var margt til lista lagt, m.a. hafði hún gott auga fyrir ljósmyndun.
Sérstaklega þótti henni gaman að taka myndir af litbrigðum himinsins,
skýjum og sólarlagi. Hún hafði yndi af tónlist og nam við Tónlistarskóla
Austur-Húnavatnssýslu. Hún lærði á píanó, gítar og síðan á klarinett.
Hanna Lísa átti gott með að setja sig í spor annarra, var ræðin, spurul og
hafði skoðanir, sérstaklega minnug á sögur, sem náðu vel til hennar og gat
vitnað í þær. Hún kunni betur en margur að njóta þess sem hún fékk á stuttri
ævi sinni. Að finna fegurð lífsins í leit að samhljómi í tilverunni sem varð til
þess að hún auðgaði líf ástvina og samferðafólks með nærveru sinni.
Hún lést á Landspítalanum í Reykjavík eftir að hafa farið í hjartastopp í
Blönduvirkjun. Útför hennar fór fram frá Hólaneskirkju 24. júlí. Jarðsett var í
Blönduóskirkjugarði
Sr. Bryndís Valbjarnardóttir.
Jóhanna Björnsdóttir
frá Gili
Fædd 26. maí 1940 – Dáin 16. júlí 2015
Jóhanna (Hanna) fæddist á Valabjörgum í Seyluhreppi í Skagafirði, dóttir
hjónanna, Björns Jónssonar, f. 1904, d. 1991 og Sigþrúðar Friðriksdóttur,
f. 1903, d. 2002. Hún átti eldri bróður, Friðrik, f. 1928, d. 2007.
Þegar Hanna var á öðru ári fluttist fjölskyldan að Brún í Svartárdal og árið
1945 í Gil. Hanna gekk í farskóla sveitarinnar í Blöndudal og hún fór einn
vetur til náms við Kvennaskólann á Blönduósi. Þaðan lá leið hennar til Reykja-
víkur þar sem hún starfaði á saumastofu.
Þann 26. maí 1960 gekk Hanna í hjónaband með Sigfúsi Kristmanni
Guðmundssyni, f. 1934, d. 2008, á Eiríksstöðum í Svartárdal. Hjónin hófu
búskap í Félagsheimilinu Húnaveri sem þá var nýbyggt. Þau sáu um húsvörslu
og á vetrum ráku þau skólaeldhús fyrir börnin í sveitinni.
Jóhanna og Sigfús eignuðust fjögur börn. Þau eru: Sigþrúður Guðmunda
f. 1961, gift Skúla Garðarsyni sem lést árið 2005 og eiga þau fjögur börn.
Birna f. 1962, gift Valgeiri M. Valgeirssyni og eiga þau þrjú börn. Guðmundur
f. 1963, kvæntur Vigdísi Eddu Guðbrandsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Sigurbjörg f. 1964, hún á fjögur börn.
Eftir búsetu þeirra Hönnu og Sigfúsar í Svartárdal fluttu þau í Pétursborg
á Blönduósi og síðan á Mýrarbraut 10 sem varð þeirra heimili þaðan í frá.