Húnavaka - 01.05.2016, Síða 193
H Ú N A V A K A 191
þeirra bjuggu þau í sambýli við son sinn, Magnús og konu hans, Líneyju
Árnadóttur.
Börn þeirra Jósefs og Guðrúnar urðu þrjú: Vilmundur f. 1949, kona hans
er Þórhildur Lárusdóttir f. 1953 og eiga þau þrjú börn. Magnús f. 1953, kona
hans er Líney Árnadóttir f. 1957 og eru börn þeirra fjögur. Yngst er Sigrún
Lóa f. 1957, maður hennar er Grétar Geirsson f. 1948, hún á tvö börn.
Jósef helgaði jörð sinni líf sitt og krafta. Hann var duglegur bóndi og sífellt
með hugann við búskapinn og skepnurnar. Þrátt fyrir veikindi frá unga aldri
átti hann langa og farsæla ævi sem spannaði 96 ár. Hann andaðist á
Heilbrigðisstofnunni á Blönduósi, þar hafði hann dvalið um skamma stund.
Þingeyraklausturskirkja var honum hugstæð, þaðan var útför hans gerð þann
13. október. Jarðsett var í Þingeyraklausturskirkjugarði.
Sr. Sveinbjörn Einarsson.
Jóninna Guðný Steingrímsdóttir,
Blönduósi
Fædd 8. september 1928 – Dáin 21. október 2015
Ninna, eins og Jóninna Guðný var ávallt kölluð, var fædd á Blönduósi.
Foreldrar hennar voru Helga Dýrleif Jónsdóttir, f. 1895, d. 1995, húsfreyja og
Steingrímur Davíðsson, f. 1891, d. 1981, skólastjóri og vegaverkstjóri. Þau
hjónin eignuðust 14 börn en 12 þeirra komust
upp og þau eru: Anna Sigríður f. 1919, d. 1993,
Aðalheiður Svava, f. 1921, d. 2014, Árdís Olga,
f. 1922, d. 2010, Hólmsteinn Ottó, f. 1923,
Hersteinn Haukur, f. 1925, Brynhildur Fjóla,
f. 1927, d. 1993, þá Jóninna Guðný, Hásteinn
Brynleifur, f. 1929, Sigþór Reynir, f. 1931,
Steingrímur Davíð, f. 1932, Jón Pálmi, f. 1934,
d. 2001 og Sigurgeir, f. 1938.
Ninna ólst upp á Blönduósi, fyrst í hús inu
Pálmalundi fyrir innan á en frá árinu 1938 í Sval-
barði sem er fyrir utan á. Hún átti góð og líf leg
uppvaxtarár á fjölmennu menningar- og at hafna-
heimili. Þar var skáldskapur iðkaður og í há-
vegum hafður enda báðir foreldrar hennar skáld-
mæltir. Á æskuheimili hennar var einnig lif andi þjóðmálaáhugi og þar voru
málin rædd af íþrótt. Ninna lauk heima á Blönduósi hefðbundnu skólanámi
þess tíma og hún stundaði ung nám í Húsmæðraskólanum að Laugalandi í
Eyjafirði.
Hún byrjaði snemma að vinna og var við vinnu á Hvanneyri um tíma. Þar
kynntist hún ungum Austfirðingi og búfræðingi, Þormóði Inga Péturssyni
f. 1929, d. 2007, síðar starfsmanni hjá Kaupfélagi Húnvetninga, Bún-