Húnavaka - 01.05.2016, Síða 224
H Ú N A V A K A 222
dóttir flutti Gilsbakkaþulu og sungin
voru nokkur þrettánda- og áramótalög
undir stjórn Halldóru Á. Gestsdóttur.
Að því loknu buðum við upp á léttar
veitingar og áttum góða samverustund
með sjúklingum, heimilisfólki og
gestum þeirra.
Á Degi kvenfélagskonunnar, þann
1. febrúar, komu félagskonur saman í
Kvennaskólanum á Blönduósi og
saum uðu í Vatns dælurefilinn undir
leið sögn Jóhönnu Pálmadóttur félags-
konu.
Í byrjun mars bauð Elín Aradóttir
okkur félagssystrum sínum í
Púðahús Lagðs að Hólabaki
og kynnti hún fyrir okkur fyrir-
tæki sitt, tilurð þess, starfsemi
og framleiðsluvörur.
Vonin bauð öllum kvenfé-
lögum í SAHK heim til sín
þann 23. mars en kvenfélögin
skiptast á að bjóða árlega heim
til sín. Kvöldið var tileinkað
100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna á Íslandi. Fyrirlesarar
voru Sólborg Una Pálsdóttir,
héraðs skjalavörður í Skagafirði
(frá Sauða nesi) og Sigrún
Fossberg Arnardóttir. Björg
Bjarnadóttir las upp úr bar-
áttugrein Bríetar Bjarnhéðins dóttur.
Þann 19. júní lögðu Vonarkonur
land undir fót og gerðu sér glaðan dag
í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar
kvenna á Íslandi. Farið var til
Hvammstanga og Selasetur Íslands
heimsótt þar sem Unnur Valborg
Hilm arsdóttir, framkvæmda stjóri og
oddviti Húnaþings vestra, tók á móti
okkur og kynnti starfsemi Selasetursins.
Einnig var farið í Gallerí Bardúsu/
verslunarminjasafn og Verslunina
Hlín. Að lokum var svo borð aður
matur á nýja veitinga staðnum
Sjávarborg.
Jólaball var haldið á Húna-
völlum 27. desember í sam-
starfi við Kvenfélag Svína-
vatns hrepps, var mikið sungið
og dansað og jólasveinarnir
létu sig ekki vanta með sprelli
og glaðning fyrir börnin. Að
lokum var svo drukkið heitt
súkkulaði og meðlæti sem gest-
ir tóku með sér á veisluborðið.
Aðalfundur félagsins var
haldinn að Sauðanesi, þann
27. apríl. Stjórn félagsins skipa
Félagskonur Vonarinnar í heimsókn á Hvammstanga
19. júní. F.v. Elín, Þóra, Pálína, Sigríður, Björg,
Ingibjörg, Halldóra og Sigrún. Ljósm.: Bjarni.
Kvf. Vonin færir Húnavallaskóla grjónahrúgöld á
skólaslitum. F.v. Þóra, Sigríður, Gréta, Elín, Helga,
Bogga og Dagný. Ljósm.: Áslaug Inga Finnsdóttir.