Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2017, Page 14

Víkurfréttir - 30.08.2017, Page 14
14 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN Í SÍMA 898 2222 ■Hvert verk er stækkaður rammi af óléttuprófi og stendur fyrir einn mánuð í því 57 mánaða ferli sem það tók mig að verða ófrísk,“ segir söngkonan Fríða Dís Guðmundsdóttir, en hún verður með myndlistarsýningu í Stofunni í Duus Safnahúsum á Ljósanótt. „Ég vissi ekki hvort ég myndi ein- hvern tímann fá að loka þessari sýningu með tveimur strikum. Myndirnar áttu aldrei að verða svona margar, en hugmyndin að sýningunni kom þegar við hjónin vorum búin að reyna í ár,“ segir Fríða Dís en henni finnst mikilvægt að opna umræðuna um þessi mál. „Þegar maður lítur til baka hefði verið auðveldara að geta talað um þetta. Þetta er svo tabú. Ég lærði snemma að láta það ekki fara í taugarnar á mér þegar fólk spurði okkur hjónin hvort við ætluðum ekki að fara að eignast barn. Þá var maður kannski í miðri meðferð, við fórum sex sinnum í glasafrjóvgun. En fólk er bara forvitið og ekkert að reyna að vera leiðinlegt, en það er gott að opna umræðuna um þetta,“ segir hún. Aðspurð hvernig maður haldi ennþá í vonina eftir að hafa fengið 56 neikvæð próf segir Fríða þau ekkert alltaf hafa verið bjartsýn. „Ég veit ekki hvaðan öll þessi von kom. Þegar við vorum búin að reyna í ár kom í ljós að ég var með endómetríósu, sem er legslímu- flakk. Það var svolítill skellur því þá var þetta orðið eitthvað vandamál. Glasafrjóvgun hefur reynst konum með endómetríósu vel, en það að fara fimm sinnum í meðferð og fá nei- kvætt tekur tíma að jafna sig á. Maður er líka í þessu harki bara sjálfur, af því það talar enginn um þetta.“ Dagur Þorsteinsson kom svo í heim- inn fyrir þremur mánuðum síðan og dafnar vel. „Það eru ekkert allir jafn heppnir og ég að fá að enda á tveimur strikum. Ég áttaði mig ekki á því hvað þessi sýning yrði mikil losun. Þegar ég kláraði síðustu myndina í síðustu viku brotnaði ég bara niður og fór að hágráta. Þetta var gleði og sorg í sama pakkanum.“ Fríða segir sýninguna snúast um þá sem geta tengt við sögu þeirra hjóna, en hún mun opna á fimmtu- degi á Ljósanótt, í Duus Safnahúsum. Gleði og sorg í sama pakkanum ●● Listasýning●Fríðu●Dísar● verður●í●Stofunni●í●Duus● Safnahúsum●á●Ljósanótt „Það eru ekkert allir jafn heppnir og ég að fá að enda á tveimur strikum. Ég áttaði mig ekki á því hvað þessi sýning yrði mikil losun. Þegar ég kláraði síðustu myndina í síðustu viku brotnaði ég bara niður og fór að hágráta. Þetta var gleði og sorg í sama pakkanum.“ Myndir: Þorsteinn Surmeli og Sólborg Guðbrandsdóttir.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.