Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 7
9. febrúar 2018 fréttir 7 Óvinir fyrri tíma Viktor Kortsnoj Rússneski skákmeistarinn vakti hneykslan margra þegar hann mætti Jóhanni Hjartarsyni í einvígi í undankeppni heimsmeistaramótsins árið 1988. Þar beitti Kortsnoj ýmsum brögðum til þess að koma ungum andstæðingi sínum úr jafnvægi. „Hann truflaði mig með þrennum hætti. Hann ruggaði sér fyrir framan mig, sem var gamalt bragð úr sovéska skákskólanum. Síðan var teflt á lausu sviði og um það þrammaði Kortsnoj á meðan ég hugsaði þannig að sviðið nötraði og skalf. Það sem vakti hins vegar mesta eftirtekt var að Kortsnoj keðjureykti meðan á einvíginu stóð og blés reyknum framan í mig. Íslenska þjóðin varð æf yfir framkomunni en í sannleika sagt truflaði þetta mig minnst,“ sagði Jóhann um atvikið í viðtali við DV í fyrra. Þá var Viktor nýlátinn, 85 ára að aldri. Richard Nixon Richard Nixon, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var ekki mjög hrifinn af Keflavík þegar hann heimsótti landið árið 1956. Þá var Nixon að vísu varaforseti undir Eisenhower og hingað kominn til að hitta bandaríska her- menn í Keflavík og íslenska ráðamenn. Síðar þegar Nixon kom til Íslands, árið 1973, minntist hann þessarar heimsóknar og þeirrar hlýju móttöku sem hann fékk frá hermönnum í Keflavík, „þeim guðsvolaða stað“ eins og hann orðaði það. Þetta vakti ekki beint mikla kátínu hjá Suðurnesjamönnum sem fannst að sinni heimabyggð vegið. Halim Al Þjóðin fylkti sér á bak við Sophiu Hansen í forræðisdeilu hennar og Halims Al, fyrrverandi eiginmanns hennar, þeirri allra þekktustu í Íslandssögunni. Sumarið 1990 fór Halim með dætur þeirra, Rúnu og Dagbjörtu, sem þá voru 7 og 9 ára, í nokkurra daga frí til Tyrklands. Hann sneri ekki aftur. Sophia reyndi hvað hún gat að fá dæturnar aftur en hafði ekki erindi sem erfiði. Tuttugu og þrjú ár liðu þar til Rúna, yngri dóttir Sophiu, kom aftur til Íslands í heimsókn. Það gerðist árið 2013. Staffan Olson Staffan Olson, eða Faxi eins og hann var gjarnan kallaður, var í rauninni Svíagrýlan holdi klædd. Olson gerði íslenska hand- boltalandsliðinu ítrekað lífið leitt á árum áður enda þótti hann frá- bær handboltamaður. Íslendingar hreinlega hötuðu Olson. Í landsleik Íslands og Svíþjóðar í Laugardalshöll, líklega í upphafi tíunda áratugarins, bauluðu áhorfendur í hvert sinn sem hann fékk boltann. Staffan gerði það að leik sínum að glotta og líta upp í stúkuna í hvert sinn sem hann skoraði. Íslendingar fyrirgáfu Staffan að lokum, en það var þó ekki fyrr en hann hætti að spila handbolta. Vladimir Zhirinovsky Rússneski stjórnmálamaðurinn vakti ugg hjá mörgum Íslendingum árið 1992 þegar hann stakk upp á því að Ísland gæti orðið fanganýlenda Rússlands. Á þessum árum var Zhirinovsky í baráttu um að komast til valda í Rússlandi. Ástæðu þess að Zhirinovsky vildi Íslandi þessi örlög má rekja til viðurkenningar Íslands á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja. „Þið hafið kveikt í púðurtunnu. Ísland verður fangelsi fyrir Evrópu,“ sagði hann í samtali við RÚV. Zhirinovsky, sem er 71 árs, er enn í fullu fjöri í rússneskum stjórnmálum. Gordon Brown Af hverju? Setti á okkur hryðjuverkalögin Staða: Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands Íslendingar munu aldrei gleyma þeirri ákvörðun Gordons Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, að setja hryðjuverkalög á Ísland eftir bankahrunið 2008. Setti hann þar með Ísland í hóp með talíbönum og al-Kaída. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, komst ágætlega að orði í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina árið 2013 þegar hann sagði að jafnvel þegar Bretar verði búnir að gleyma Brown muni Íslendingar muna vel eftir honum. Ákvörðunin um að setja Ísland á lista með hryðjuverkasamtökum verði honum og ríkisstjórn hans til skammar um aldur og ævi. Roosh Vorek Af hverju? Skrifaði bók sem fjallaði um hvernig væri auðveldast að komast í rúmið með íslenskum konum Staða: Rithöfundur Bandaríkjamaðurinn Roosh Vorek dvaldi hér á landi í nokkra mánuði árið 2011 þar sem hann rannsakaði meðal annars hvernig væri auðveldast að komast í rúmið með íslenskum konum. Afraksturinn var bók sem heitir Bang Iceland. Roosh, sem er yfirlýstur andfemínisti, er ekki beint vinsæll á Íslandi og í janúar í fyrra boðaði hann fylgismenn sína hér á landi að Skólavörðuholti þar sem markmiðið var að halda einhvers konar samstöðufund. Þessu var mótmælt harðlega hér á landi, meðal annars á Facebook, og fór svo að fundurinn var blásinn af. Cristiano Ronaldo Af hverju? Talaði íslenska landsliðið niður á EM 2016 Staða: Besti fótboltamaður heims Ronaldo vakti reiði margra Íslendinga eftir að Portúgal mætti Íslandi í fyrsta leik okkar í lokakeppni stórmóts. Íslenska liðið náði jafntefli, 1-1, og lék vel. Ronaldo vandaði íslenska liðinu ekki kveðjurnar eftir leik. „Ísland reyndi ekkert. Það var bara vörn, vörn, vörn og skyndisóknir. Þeir fengu færi og skoruðu eitt mark. Þeir voru heppnir í kvöld,“ sagði Ronaldo sem bætti við að það væri erfitt að spila fótboltaleiki þar sem aðeins annað liðið reynir að vinna. Þess má geta að sóknarleikur Íslands var í raun lítið síðri en sóknar- leikur Portúgals á mótinu; Ísland skoraði 8 mörk í 5 leikjum en Portúgal 9 í 7 leikjum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.