Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 35
Valentínus 9. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Salt Eldhús er kennslueldhús sæl-kerans þar sem fólk lærir að búa til dýrindis krásir og spennandi
mat frá ýmsum heimshornum undir
stjórn frábærra kennara við fullkomn-
ar aðstæður. Í tilefni Valentínusar-
dagsins gæti það verið virkilega fín
hugmynd að gefa ástvini sínum gjafa-
bréf í Salt Eldhús og þið færuð síðan
tvö saman á námskeið.
Eigendur Salt Eldhús eru þau Sigríð-
ur Björk Bragadóttir, matreiðslumaður
og fyrrverandi ritstjóri Gestgjafans, en
hún er jafnframt framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, og Sigurður Grendal
Magnússon viðskiptafræðingur. Þau
hafa rekið fyrirtækið í tvö ár en Salt
Eldhús hefur verið starfandi í alls fimm
ár. Auk þeirra starfar fjölmargt mat-
reiðslufólk við skólann við kennslu.
„Við erum með glæsilegt húsnæði
hér í Þórunnartúni, á efstu hæð, rosa-
lega fallegt útsýni og framúrskarandi
aðstöðu,“ segir Sigríður. Algengt er að
fólk mæti í pörum, litlum hópum eða
sem einstaklingar en námskeiðshópur-
inn hristist alltaf vel saman: „Þegar
fólk er að elda saman þá verða öll
samskipti afskaplega lipur, það kemur
af sjálfu sér, þó að fólk þekki engan á
námskeiðinu. Matur sameinar fólk.
Fólk mætir klukkan fimm og þá er
farið dálítið yfir hvað á að gera og
síðan byrjar fólk að elda. Hér er kokkur
á staðnum sem hjálpar til við elda-
mennskuna, leiðbeinir og sýnir hvað á
að gera. Þetta tekur svona tvo til tvo
og hálfan tíma. Síðan er sest að snæð-
ingi og því verður kvöldið að stefnumóti
ef um par er að ræða, og að góðri
skemmtun fyrir alla sem taka þátt.“
Alls konar spennandi þemu eru í boði
í námskeiðavalinu og óhætt að segja
að alþjóðlegur blær sé yfir því. „Meðal
vinsælustu námskeiðanna, og þau sem
hafa verið lengst, eru tvö námskeið í
indverskri matargerð. Það er indversk
stúlka sem kennir þau, hún starfar sem
arkitekt en hefur brennandi áhuga á
matargerð,“ segir Sigríður.
„Síðan eru alltaf einhverjar nýjungar.
Núna er framundan Ramen-námskeið
þar sem kennt er að elda núðlur frá
grunni og gera ekta Ramen-súpu.
Hingað kemur síðan bráðum írönsk
stúlka til að kenna persneska matar-
gerð og það kemur líka hingað Ítali til
að kenna matargerð með trufflum.
Svo er hér kennd frönsk matargerð og
ýmislegt fleira,“ segir Sigríður.
Það er rómantískt að gefa elskunni
sinni gjafabréf í Salt Eldhús og fara
með henni eða honum á námskeið í
Salt Eldhús. Þá er virkilega skemmtilegt
kvöld framundan. Nánari upplýsingar
og skráning eru vefsíðunni salteldhus.
is eða í síma 551-0171. Salt Eldhús er til
húsa að Þórunnartúni 2, Reykjavík.
Það er
rómantískt að
elda saman
SAlt EldHúS: MAtREiðSluNáMSkEið FyRiR pöR oG AllA AðRA
Framúrskarandi herrailmur úr
jurtum sem vaxa í náttúru Íslands
64° Reykjavik distillery hefur í gegnum árin skapað sér orðspor
fyrir að brugga framúrskarandi
áfenga drykki úr íslenskum berjum og
jurtum, líkjöra og snafsa. Hafa þessar
merku afurðir fyrirtækisins fengið
mörg alþjóðleg verðlaun fyrir hvort
tveggja hönnun og gæði.
64° Reykjavik distillery hefur nú
brotið blað í sögu sinni með því að
setja á markaðinn einstakt íslenskt
ilmvatn fyrir herra. Þessi karlmannlegi
ilmur ber heitið landi og uppistaðan
í honum er olíur úr jurtum sem vaxa
í íslenskri náttúru. Meðal þeirra er
sjálft þjóðarblómið, holtasóley, en auk
þess einir, lúpína, rabarbari, bláber
og kúmenjurt, allt jurtir sem vaxa villt-
ar í íslenskri náttúru og koma saman í
einstökum ilmi í landa.
Glas af herrailminum landa er 50
ml. Í boði eru kassar með sex ilm-
vatnsglösum. ilmvatnið er til sölu í
Herrafataverslun kormáks og Skjald-
ar, laugavegi 59, í gamla kjörgarðs-
húsinu. Verslunin er opin frá 11 til 18.
Nánar má fræðast um framleiðslu
og starfsemi 64° Reykjavik Distillery á
vefsíðunni reykjavikdistillery.is.
lANdi: