Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Side 36
Valentínus 9. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ Skeggjadur.is er sérhæfð netversl- un með áherslu á snyrtivörur fyrir herramenn. Eftirspurn eftir slíkum vörum hefur aukist gífurlega, segir annar eigandi síðunnar, Egill Jóhannsson, en hann og eiginkona hans, Margrét Ólöf, hafa rekið verslun- ina síðan um mitt síðasta ár. Þarna spilar inn í að skegg er mjög í tísku nú um stundir og eins og Egill segir: „Menn eru orðnir meðvitaðir um að snyrtilegt skegg er flottara skegg.“ Að sögn Egils eru þrír meginflokkar í skegg vörum: olíur, skegg næring/ vax og áhöld. „Olían kemur í veg fyrir húðþurrk með því að næra húðina og fyrir vikið losna menn yfirleitt við kláðann sem getur fylgt því að byrja að safna skeggi.“ Skeggjadur.is býður upp á vel á annan tug mismunandi skeggolía, allt frá lyktarlausri upp í mjög afgerandi lykt. „Smekkur manna er mjög mismunandi, sumir vilja sterka lykt í skeggið en aðrir vilja alls enga lykt – oft eru það þó konurnar sem velja lyktina handa þeim. Vinsælustu gerðirnar eru Gentleman's Blend og Bay Rum hjá þeim sem vilja lykt en Viking Blend olían hjá þeim sem vilja ekki mikla lykt. Svo eru olíurnar með viðar- og sítrus- lyktinni alltaf klassískar.“ En hvað gera menn þegar skegg- ið hefur fengið að vaxa í töluverðan tíma? „Við fáum mjög oft fyrirspurnir um hvað sé best að nota til að halda skegginu mótuðu. Þá bendum við á balmið, það er algjör snilld bæði sem skeggnæring og til að halda því í horfinu. Skeggið verður mýkra og við stingum víst minna,“ segir Egill og hlær. Þriðji flokkurinn er áhöld. „Ef ég ætti að mæla með einu góðu áhaldi til að hafa í baðskápnum hjá skeggjaða herranum, þá er það þéttur og góður skeggbursti. Hann bæði hálpar til við að dreifa olíu og næringu ásamt því að það verður auðveldara að móta skeggið þegar búið er að bursta það.“ Allar nánari upplýsingar á skeggjadur.is. Verslunin sendir hvert á land sem er. Framúrskarandi skeggsnyrtivörur á Valentínusartilboði Í tilefni Valentínusardagsins býður skeggjadur.is upp á þrjú frábær tilboð og er 25% afsláttur af eftirfarandi pökkum. Sjá nánar á skeggjadur.is/sett Tilboð 1: Mjög góður skeggbursti með villisvínahárum – handgerður. Með fylgir skeggsjampó með frábærri lykt. Sjampóið þurrkar ekki húðina. Tilboð 2: Vörur frá Kent, burstafram- leiðanda sem hefur starfað frá árinu 1777: Raksápuskál úr viði með raksápu, raksápubursti og lítil greiða í vasann. Tilboð 3: Greiða sem hægt er að leggja saman, tilvalin í vasann. Gentleman's Blend olía og næring – vinsælasta lyktin frá GBS. SKEGGJAduR.iS Valentínusargjafirnar handa herramanninum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.