Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Side 37
Valentínus 9. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Hágæða sængurfatnaður úr náttúrulegum efnum sem sérstaklega miðar að góðum
svefni eru helstu einkennin á vöru-
úrvali í vefversluninni Sofðu rótt.
Verslunin er hluti af fyrirtækinu Vitar
ehf. sem hefur sérhæft sig í sængur-
fatnaði og líni fyrir hótel og gisti-
hús en býður nú almenningi upp á
sængurvörur í gegnum vefverslunina
sofdurott.is.
„Í tengslum við hótelbransann
áttaði ég mig á því að ég var kominn
með framleiðendur í hæsta klassa
og fannst ég verða að bjóða hluta af
þeirra vörum til sölu til einstaklinga.
Sérstaða vöruframboðsins í þessari
vefverslun er sú að almennt eru
þetta vörur úr náttúrulegum efnum,
dún, ull, hör eða bómull. Dúnninn er
flokkaður eftir stærð og gæðum sem
skýrir verðmun á sængum. Við erum
með sængur frá þýska fyrirtækinu
Kauffmann sem er einn af virtari
sængurframleiðendum í heimi og
hefur verið starfandi í tæp 200 ár.
Velferð dýra skiptir Kauffmann miklu
máli og er fyrirtækið með vottun
upp á að allur dúnn sem fer í
sængurnar og koddana
þeirra sé af dauðum
fuglum,“ segir Arnar Þór
Jónsson hjá Vitum ehf.
Mikil áhersla á góðan
svefn einkennir þessar
vörur: „Þegar þú leggst
upp í rúm er mikilvægt að
hitastigið sé rétt. Margir
velja sér mjög hlýja eða
heita sæng þar sem þeim
þykir hún notaleg. En svo
sefurðu kannski ekki nógu
vel undir henni þar sem
þér verður of heitt. Við
bendum fólki á að velja
réttu sængina miðað við
svefnherbergishita og líkamsþyngd,“
segir Arnar en á vefsíðunni sofdurott.
is undir liðnum „Upplýsingar“ er að
finna góðar leiðbeiningar um þetta.
Sængin Climabalance frá Kauff-
mann er sérhönnuð með góðan svefn
í huga. „Kauffmann selur þessa sæng
undir einkaleyfi um allan heim. Svefn-
rannsóknarstöð háskólasjúkrahússins
í Regensburg í Þýskalandi gerði
rannsókn á áhrifum hita á svefngæði
þar sem Climabalance-sængin var
borin saman við hefðbundna, sam-
bærilega sæng. Niðurstöðurnar voru
nokkuð afgerandi: Þú ert fljótari
að sofna undir Climabalance-
sænginni, svefninn verður rólegri,
þú vaknar sjaldnar, REM-svefn-
inn lengist og djúpsvefn lengist
um allt að 50%. Það svitna allir
á næturnar, mismikið þó, og um
leið og þú nærð að losa svitann
betur í gegnum sængina verður
jafnara hitastig undir sænginni.“
Á sofdurott.is er bæði lögð
áhersla á há gæði og hagstætt
verð. „Við erum ekki í verð-
samkeppni við sængur úr gerviefnum
en verðlagið á þessum vörum er það
sama og úr verslun í Þýskalandi eða
annars staðar í Evrópu,“ segir Arnar.
Forvitnilegar nýjungar eru
framundan í versluninni á næstu
vikum og mánuðum. Þannig eru
væntanlegar sængur fyrir þá sem
hafa ofnæmi fyrir dún en vilja samt
sæng úr náttúrulegum efnum. Enn
fremur er væntanlegur vatnsheldur
rúmfatnaður sem andar mjög vel og
hentar því börnum sem væta rúmið
og öðrum með sama vandamál.
Það er því um að gera að fylgjast
reglulega með síðunni sofdurott.is.
SoFDURott.iS: VEFVERSlUN FyRiR ÞÁ SEM VilJA SoFA bEtUR
Hágæðasængur frá þýska
merkinu Kauffmann