Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 39
Valentínus 9. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Nudd er afskaplega kærleiks-rík og heilsusamleg gjöf, til dæmis á Valentínusardaginn,
en núna eru í boði hagstæð gjafabréf
hjá nuddstofunni Nudd og vellíðan.
Gjafabréfin er hægt að panta á vef-
síðu nuddstofunnar, nuddogvellidan.
is/kaupa-gjafabref, og eru þau yfir-
leitt tilbúin til afgreiðslu samdægurs.
Nudd er áhrifarík leið til að draga
úr streitu, spennu og verkjum í
vöðvum og beinum. Nudd dregur
jafnframt úr andlegri streitu og kvíða
og vinnur gegn þunglyndi. Nudd og
vellíðan býður upp á nokkrar tegundir
af hágæðanuddi á sanngjörnu veðri.
Slökunarnudd er meðal þess sem
í boði er, en það er endurnærandi
og slakandi nudd
sem mýkir vöðva og
dregur úr spennu í
líkamanum. Í parta-
nuddi er lögð áhersla
á ákveðin svæði og
líkamshluta eftir
þörfum hvers og
eins. Íþróttanudd
miðar að því að
auka blóðflæði og
flýta endurbata
eftir erfið líkamleg
átök. Í steinanuddi
eru sérstakir steinar
notaðir til að hitta á
lykilpunkta á líkam-
anum til að slaka á vöðvum og auka
blóðflæði.
Sérstakri nuddtækni er beitt sam-
hliða þessu. Steinanudd er gott fyrir
þá sem vilja fá djúpa vöðvaslökun án
þess að föstum strokum sé beitt.
Í svæðanuddi er fótanudd þar sem
punktar sem hafa áhrif á ákveðin
svæði á líkamanum eru örvaðir til að
ná fram slökun og vellíðan.
Nýjung: Paranudd!
Paranudd er rómantísk nýjung í boði
hjá Nudd og vellíðan. Paranudd hjá
Nudd og vellíðan er einstakt að því
leyti að stofan býr yfir sérhannaðri
aðstöðu sem leyfir pörum að njóta
nuddsins saman og spjalla meðan á
nuddinu stendur, í stað þess að vera
lokuð af hvort í sínu herberginu.
Gjafabréf í Nudd og vellíðan eru
frábær gjöf handa elskunni þinni á
Valentínusardaginn. Nudd og vellíð-
an er til til húsa að Hlíðasmára 2,
Kópavogi. Nánari upplýsingar, tíma-
bókanir og gjafakort eru á vefsíðunni
nuddogvellidan.is. Einnig er hægt að
panta með tölvupósti á netfangið
nudd@nuddogvellidan.is og fá nánari
upplýsingar í síma 788-0070.
Nudd er rómantísk gjöf
handa þeim sem þú elskar
Nudd oG VEllÍðaN