Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 59
KYNNING
Blómastofa Friðfinns:
Fagleg þjónusta í 50 ár
AlhliðA blómAþjónustA frá vöggu til grAfAr
Blómastofa friðfinns er í senn ein elsta blóma-verslun landsins og ein
sú nútímalegasta. fyrirtækið
var stofnað árið 1968, nafnið
þekkja flestir Íslendingar og
fólk komið fram yfir miðjan
aldur heyrði fyrst af fyrir-
tækinu í barnæsku. Í dag
fara viðskipti og þjónusta
blómastofa friðfinns við
viðskiptavini sína öll í gegnum
internetið eða síma og ná út
um allan heim. blómastofa
friðfinns er því sannarlega
bómabúð 21. aldarinnar.
jenný ragnarsdóttir er
framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins í dag, hún tók við
rekstrinum árið 2006 en
hefur mun lengri reynslu úr
blómabransanum eða frá
1989.
„við erum með vinnu-
stofu þar sem við vinnum
úr pöntunum viðskiptavina
en þær fara fram í gegnum
vefsíðuna okkar, blomabud.is,
sem er jafnframt vefverslun.
við sendum hvert á land sem
er og líka um allan heim, við
höfum jafnvel sent blóm til
Úganda, lengst inni í Afríku.
varðandi pantanir erlendis
förum við inn á heimasíður í
viðkomandi löndum og sjáum
um að koma blómunum alla
leið. við fáum líka pantanir að
utan um blómasendingar hér
innanlands. við tökum myndir
af sendingunum og sendum
kaupandanum svo hann geti
séð með eigin augum hvað
hann var að kaupa. Allur
heimurinn er okkar starfs-
svæði og fólk getur náð í
okkur hvenær sem er,“ segir
jenný.
Traustið mikilvægt
hún segir að hið mikla traust
sem blómastofa friðfinns
njóti hafi verið nauðsynleg
forsenda þess að geta fært
reksturinn yfir á netið: „Ég
hefði ekki getað gert þetta
ef ég væri nýbúin að stofna
fyrirtækið. En fólk vill svona
þjónustu í dag. það hefur ekki
tíma til að fara í blómabúð-
ina og bíða þar í biðröð, auk
þess sem erfitt getur verið
að finna bílastæði. Kúnninn
kallar eftir svona sveigjanlegri
þjónustu.“
blómastofa friðfinns
veitir líka sérhæfða
blómaskreytingaþjónustu
og fylgist vel með straumum
og stefnum í þeim efnum.
„blómaskreytingar eru líka
pantaðar á netinu, þar er
hægt að velja liti og tegundir
eftir óskum. þetta gengur
ávallt vel. hvað varðar útfarir
þá vinnum við skreytingarnar
á vinnustofunni og komum
svo með þær í kirkjuna tveim-
ur klukkustundum fyrir útför.
við fáum upplýsingar um
sérstakar óskir og uppfyllum
þær eftir bestu getu. Ef um
veislur er að ræða þá getum
við bæði unnið á staðnum
eða komið með skreytingarn-
ar tilbúnar. Í þessu sem öðru
er sveigjanleiki í samræmi við
óskir viðskiptavinarins. þetta
er bara alhliða þjónusta frá
vöggu til grafar og nú getum
við breytt slagorðinu í merk-
inu okkar í fagleg þjónusta í
50 ár .“
Að sögn jennýjar eru
starfsmenn mismargir hverju
sinni eftir því hvað mikið er að
gera.
Sjá nánar á blomabud.is.
Símanúmer er 553-1099
netfang:
blomabud@blomabud.is.