Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 72
9. febrúar 2018
6. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Enginn er bóndi
nema hann
barmi sér!
„Af hverju ætti ég
að nauðga
kvenmanni?“
n Íslenska klámstjarnan Stef-
án Octavian Gheorge á ekki
sjö dagana sæla um þessar
mundir. Á dögunum var hann
gagnrýndur fyrir að hafa birt
klám á Snapchat-reikningi
sínum. Gekkst hann við mis-
tökum sínum og eyddi færsl-
unni. Nú gengur sá orðrómur
fjöllum hærra að Stefán hafi
nauðgað konu á Íslandi. Hann
ræðir ásakanirnar á Snapchat-
reikningi sínum og furðar sig á
því að nokkur skuli trúa þessu.
Ástæðan er einföld, hann er
samkynhneigður og
hefur engan áhuga á
konum. Segir Stef-
án erfitt að glíma
við slíkan orðróm
á meðan hann
glímir við
bullandi
þung-
lyndi.
Auðvelt að versla á byko.is
Au
glý
sin
gin
er
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g/
eð
a m
yn
da
br
en
gl.
T
ilb
oð
gi
ld
a 8
.-1
4.
fe
br
úa
r o
g á
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
Rjómasprauta
0,5l. hvítt eða króm.
Gashylki fylgir ekki.
4.495
41330943/44
Almennt verð: 5.995
Handþeytari
220W, 5 hraðastillingar
1.995
65103569
Almennt verð: 2.995
FRÁBÆR
BOLLUDAGUR& SPRENGIDAGUR!
HELGAR-
TILBOÐ 8.-14. febrúar
25%
afsláttur
Pottar og
pönnur
25%
afsláttur
Bökunar-
vörur
33%
afsláttur
25%
afsláttur
Sendibílstjóri
móðgaði Dóra
n Halldór Halldórsson, betur
þekktur sem Dóri DNA, grínari
og rappari aðstoðaði félaga
sinn við að flytja búslóð í vik-
unni. Pantaður var sendibíll
og sendibílstjórinn kvartaði í
sífellu yfir stefnu Reykjavíkur-
borgar í samgöngumálum.
Talaði hann um „þessi helvíti
sem eru með bíla-fóbíu“ og
„hræðilega heimsk skipulags-
yfirvöld“ borgarinnar. Þoldi
þá Halldór ekki lengur við og
tjáði honum að eiginkona sín,
Magnea Guðmundsdóttir,
væri varaformaður skipulags-
ráðs og að hann
elskaði hana. Sló
þetta bílstjór-
ann eitthvað út
af laginu. Hall-
dór segir: „Síð-
an héldum við
á ísskáp í
grafar-
þögn.“
„Talað um bændur eins og þeir séu einhverjir dýraníðingar“
Þ
órhildur Sylvía Magnús-
dóttir er kúabóndi ásamt
eiginmanni sínum. Þau eiga
um tvö hundruð nautgripi
og sjötíu mjólkandi kýr. Þórhildi
sárnaði mjög viðtal DV við Vig-
dísi Howser Harðardóttur vegan-
femínista um mjólkuriðnaðinn.
Vigdís sagði nauðgunarmenningu
ríkja innan mjólkuriðnaðarins og
að beljum sé nauðgað. Viðtalið
vakti mikla athygli og skapað-
ist mikil umræða í kjölfarið. Þór-
hildur segir umfjöllunina ósann-
gjarna og vill koma fram með sína
skoðun á málinu.
„Fyrirsögnin beljum er
nauðgað finnst mér mjög ósmekk-
leg og það er talað um bændur
eins og þeir séu einhverjir dýra-
níðingar,“ segir Þórhildur og held-
ur áfram:
„Veganfólk sem hefur verið að
reyna að tjá sig skilur oftast ekki
hvernig dýraumhirða fer fram. Kýr
eru sæddar vegna ræktunarmark-
miða og ræktunarstarfsemi, það
minnkar líkur á skyldleikaræktun
í hverri hjörð.“
Þórhildur segir veganfólk oft og
tíðum sýna vanþekkingu. „Ég bjó
til Snapchat-aðganginn @eldri-
bondi og oftar en einu sinni hafa
veganeinstaklingar skrifað við
snöppin. Einn kvenkyns bóndi,
sem var að sjá um snappið, tók
myndband af nýbornum kálfi og
kúin var að kara kálfinn, sem sagt
sleikja hann. Hún var spurð hvers
konar viðbjóð hún væri að sýna og
ég tók þá við snappinu og útskýrði
af hverju kýr gera þetta. Kýr gera
þetta við kálfana sína til að örva
blóðrásina og auka lífslíkur kálfs-
ins,“ segir Þórhildur.
„Ég knúsa og klappa kúnum og
spjalla mikið við þær. Þegar mér
líður illa er enginn staður betri en
fjósið. Kýrnar eru svo yndislegar.
Það eru forréttindi að fá að um-
gangast dýrin og hugsa um þau og
sjá kálfana verða fullvaxna kvígu
eða naut.“
Að lokum segist Þórhildur ekk-
ert hafa á móti veganfólki. „En
stundum verður maður að passa
hvað maður segir fyrir athyglina.
Ég er ekki að tala um hversu mik-
ið veganfólk er að nauðga græn-
meti, ég meina veganfólk þvær
og stingur grænmetinu upp í sig.
Það má líta á þessa hluti frá mörg-
um áttum. Það skiptir ekki máli
hvort maður sé vegan eða kjötæta,
svartur, gulur eða hvítur, við eigum
að virða hvert annað á allan hátt
og virða störf hvert annars, en ekki
dæma svona harkalega. n
Þórhildur Sylvía
Magnúsdóttir
Kúa bóndinn
Segir engan
stað vera betri
en fjósið þegar
henni líður illa.