Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 2
2 2. mars 2018fréttir
Lof & Last
– Vigdís Hauksdóttir
„Ég lofa formann Miðflokksins,
Sigmund Davíð Gunnlaugsson,
fyrir að standa eins og klettur
með íslensku þjóðinni
varðandi bankamálin og
nú síðast söluna á Arion.“
„Ég lasta íslensku ríkisstjórnina
fyrir að láta tækifæri þjóðarinnar
renna sér úr höndum og gera ekk-
ert í því að ná meirihluta sem
nemur einum Landspítala
út úr samningunum við
kröfuhafana.“
Á þessum degi,
2. mars
1561 – Spánski landvinningamaður-
inn Pedro del Castillo stofnar borgina
Mendoza í Argentínu. Borgin er í dag
höfuðborg samnefnds héraðs.
1797 – Englandsbanki gefur út fyrstu
eins punds og tveggja punda seðlana.
1969 – Fyrsta tilraunaflug á Concorde-
þotu fer fram í Toulouse í Frakklandi.
Concorde-þotan var samvinnuverkefni
Breta og Frakka og söng sinn svanasöng
í slysi í flugtaki á Charles de Gaulle-
flugvellinum í París, 25 júlí. árið 2000.
Áfangastaðurinn var New York-borg. Allir
farþegar, 100 að tölu, og níu manna áhöfn
létu lífið. Að auki létust fjórir á jörðu niðri.
1983 – Fyrstu geislaspilararnir og -disk-
arnir koma á markað í Bandaríkjunum og
öðrum löndum. Fram til þessa dags hafði
þessi nýjung einungis verið fáanleg í Japan.
1990 – Nelson Mandela er kjörinn í
embætti aðstoðarformanns Afríska þjóð-
arráðsins. Þann 11. febrúar hafði Mandela
verið sleppt úr Victor verster-fangelsinu
þar sme hann hafði verið í prísund síðan
1988. Þar áður hafði hann verið fangi í
Pollsmoor-fangelsi og Robben Island-
fangelsinu – í samtals 27 ár.
Í
september árið 2015 ákvað
stjórn Íslenskrar erfðagrein-
ingar að færa íslensku þjóðinni
jáeindaskanna að gjöf og átti
að byggja utan um hann og fleira
sem honum fylgdi á lóð Landspít-
alans við Hringbraut. Skanninn er
PET/CT-myndgreiningartæki sem
finnur æxli í mannslíkamanum og
greinir þau. Samkvæmt áætlun átti
skanninn að vera kominn í gagnið
sléttu ári síðar. Nú eru liðin tvö og
hálft ár og sjúklingar þurfa enn að
leita til Danmerkur eða Svíþjóðar
til að komast í slíkan skanna og
kostnaðurinn rýkur upp.
Tafir á tafir ofan
Jáeindaskanni er mjög flókið tæki
sem smíða þarf sérstök hús utan um
og tengja þau við spítalann. Byggja
þarf biðstofu inni í spítalanum
sjálfum, undirbúningsrými, og
hringhraðal þar sem nauðsynleg
geislavirk efni eru búin til.
Áætlað var að skanninn
yrði tekinn í notkun um
miðjan september árið 2016 og
framkvæmdin gekk vel framan af.
En síðan var opnun aðstöðunn-
ar frestað fram á haustið 2017, síð-
an janúar 2018, svo febrúar og nú
er búið að fresta henni fram í miðj-
an mars og óvíst hvort það standist.
Takmarkalaus drullusokksháttur
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, er ósáttur við þær
tafir sem orðið hafa á verkefninu.
Í samtali við DV segir hann: „Mér
finnst það bölvað. Mér finnst þetta
bera merki um takmarkalausan
drullusokkshátt af spítalanum. „So
what else is fucking new?““
Hverju er um að kenna?
„Nú verð ég að vera sanngjarn.
Það er ýmislegt sem getur gerst. Það
þurfti að reisa hús utan um skannann
og staðla aðferðir við að búa til
ísótópana. Einhverjir verktakar fóru
yfir tímann og það er alveg ofboðs-
lega pirrandi, en svona gerist. Ég get
lofað þér því að það er hægt að koma
svona löguðu hraðar í gegn. Eins og
er get ég lítið sagt um þetta mál ann-
að en að það pirrar mig.“
Fylgist þú náið með
framkvæmdinni?
„Nei. Við erum búin að gefa
þennan skanna og nú er þetta
ekki í okkar höndum og hefur ekki
verið frá því að hafist var handa
við bygginguna. Af og til spyr ég
um þetta, því mér finnst þetta vera
orðinn mjög langur tími. Eigin-
lega alveg ótrúlega langur og mér
finnst þetta með algjörum ólíkind-
um. Ég hélt að þetta yrði komið í
notkun fyrir ári eða um það bil.“
Segja framkvæmda
tímann viðunandi
Húsin eru komin
upp og sjúklingar
hafa farið í hefð-
bundinn mynd-
greiningarhluta já-
eindaskannans. Slík
tæki eru þó til víða
í heilbrigðiskerf-
inu og enn bólar
ekki á að aðalhluti
skannans komist í
notkun. Stefán Hagalín,
deildarstjóri samskipta-
deildar spítalans, segir það
viðbúið að dagsetn-
ingar varðandi svo
flókna fram-
kvæmd
standist ekki. Helstu tafirnar hafa
verið vegna vottana húsnæðisins
og leyfum frá Lyfjastofnun. Í byrjun
febrúar sagði hann við við DV að
tveggja ára framkvæmdatími væri
mjög viðunandi.
Pétur Hannesson, yfirlæknir
á röntgendeild, sagði um miðjan
febrúar verkefnið hafa tekið
skemmri tíma en sambærileg verk-
efni erlendis. „Það er reynslan að
utan að mjög erfitt er að gera ná-
kvæmar áætlanir vegna þess hve
flókið það er að hefja starf-
semi sem þessa, sem
er tæknilega flókin
og með marga
óvissuþætti. Hér
er um að ræða
framleiðslu
geislavirkra
innrennslis-
lyfja sem lúta
ströngustu
kröfum lyfja-
framleiðslu.
Metnaður fyrir
að koma starf-
seminni af
stað
hefur einnig valdið því að áætlað-
ur tímarammi hefur verið þröng-
ur.“
Jafnframt segir hann að Lyfja-
stofnun hafi ekki enn tekið út
starfsemina og að tafirnar hafi
verið vegna vottaðs húsnæðis og
bilana sem komu upp í einstökum
hluta tækjabúnaðarins.
Dýrt að senda sjúklinga utan
Tafir á uppsetningu jáeindaskannans
hafa í för með sér mikið óhag-
ræði fyrir sjúklinga og kostnað fyrir
Sjúkratryggingar Íslands. Metfjöldi
sjúklinga hefur verið sendur í PET-
rannsóknir á Ríkisspítalann í Kaup-
mannahöfn og Háskólasjúkrahúsið
í Lundi undanfarin tvö ár. Árið 2012
voru 29 sjúklingar sendir í rannsókn-
ir. Heildarkostnaður Sjúkratrygginga
var þá fjórtán og hálf milljón króna.
Á síðasta ári voru 216 sjúk-
lingar sendir út en kostnaðurinn
var aðeins lægri vegna hagstæðara
gengis, 92,5 milljónir. Þetta ger-
ir um 400 þúsund krónur á hvern
sjúkling sem sendur er út og tæp-
lega helmingur upphæðarinnar er
ferðakostnaður.
Kostnaður spítalans
vegna tafa 113 milljónir
Líkt og vegna annarra verkefna
sem tefjast hefur kostnaður við
byggingu og uppsetningu já-
eindaskannans aukist verulega. Sá
kostnaður leggst hins vegar alfarið
á Landspítalann enda var gjöf Ís-
lenskrar erfðagreiningar bundin
við ákveðna tölu í upphafi. Gjöf-
in var 6,5 milljónir Bandaríkja-
dala, um 850 milljóna króna á
þávirði fyrir skannann sjálfan og
hluta af húsunum og aðlögun eldri
byggingar spítalans.
Samkvæmt bókhaldi Landspít-
alans er heildarkostnaður við verk-
ið nú kominn upp í 1.038 milljón-
ir og hlutur spítalans 188 milljónir.
Hækkanir vegna tafa í eitt og hálft
ár hafa því kostað spítalann
um 113 milljónir. Um er
að ræða bráðabirgðaút-
reikninga og enn gætu
borist reikningar,
til dæmis vegna
frekari tafa á
verkinu. n
„Merki um takmarka-
lausan drullusokkshátt“
n Jáeindaskanninn tafist um 18 mánuði n Hundruð milljóna kostnaður
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Jáeindaskanni Finnur og greinir krabbameinsæxli.
Kári Stefánsson „Eins og er
get ég lítið sagt um þetta mál
annað en að það pirrar mig.“
Síðustu orðin
„Síðustu orðin eru fyrir flón
sem hafa ekki sagt nóg.“
– Heimspekingurinn Karl Marx
(5. maí 1818–14. mars 1883)
sem geta tekið við sem talsmaður Sunnu Elviru
Stjórnmála-
fræðingur-
inn og
sjónvarps-
maðurinn
skeleggi Jón
Kristinn Snæhólm hefur látið af
störfum sem talsmaður Sunnu
Elviru Þorkelsdóttur og fjölskyldu
hennar. Vill hann því ekki svara
fyrir nýjar vendingar í málinu á
borð við fíkniefnamálið og týnda
bílaleigubílinn. Fyrst Jón Kristinn
treystir sér ekki þá gætu þessir
tekið við sem talsmenn Sunnu.
Björn Steinbekk
Björn er vanur
viðskiptum á erlendri
grundu og hefur
reynslu þegar kemur
að dómskerfinu.
Ásmundur
Friðriksson
Ásmundur er duglegur
að keyra og getur keyrt
allan Íberíuskagann
til að finna týnda
bílaleigubílinn.
Hallur Hallsson
Hallur er reynslumikill
maður þegar kemur
að því að fá Íslendinga
heim en hann bar
hitann og þungann
af heimkomu Keikó á
sínum tíma.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún er
með góð tengsl inn í
utanríkisþjónustuna
og þekkir vel inn á
hjálparstarf á alþjóða-
vettvangi.
Ingvi Hrafn
Jónsson
Ingvi Hrafn er sann-
færandi maður eins
og aðdáendur hins
sáluga Hrafnaþings
geta vitnað um. Ingvi
er einnig duglegur við
að vinna í sól.