Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 4
4 2. mars 2018fréttir Það er staðreynd að … Formlegt heiti Íslands er Ísland, en ekki lýðveldið Ísland. þú getur lifað án þess að hafa maga, milta, kynfæri, 75 prósent af lif- ur, 80 prósent af görnum, annað nýrað og annað lungað. En þú værir samt ekki mjög hraust/ur. 5 prósent Íslendinga ferðast hvorki innan- né utanlands á ári hverju. 117.133.000 einnar krónu myntir eru í umferð. 23 Íslendingar voru brenndir á báli fyrir nornagaldur. Ólíkt öðrum þjóðum var meirihlutinn af þeim karlmenn, 19 talsins. Hagamýs eru friðaðar úti í náttúrunni en ekki húsamýs. BuBBi falinn Bubbi meitlaði musterið í ræktinni fimmtudaginn 1. mars og skildi eftir sig haf svita við æfingatækin. „5 lotur púði, 100 hæðir stigi, 35 mín hjólið, tek aldrei fanga engin miskunn“ skrif- aði hann á Facebook-síðu sína. Á berum skallanum skinu svitaperlur erfiðisins. „Perlur á graníti.“ Eiturhart. Í síðustu viku mátti finna ásjónu Bubba á síðu 62. Bubbi er vitaskuld falinn í þessu blaði og geta glöggir lesendur reynt að finna kappann. Upplýs- ingar sendist á bubbi@ dv.is. Dregið verður úr inn- sendum lausnum og fær sá heppni gjafabréf á veitinga- stað í höfuð- borginni í verð- laun. Finndu Bubba í blaðinu Minningarorð um Stefán Kristjánsson stórmeistara n Stefán lést í vikunni aðeins 35 ára að aldri n fyrsti íslenski stórmeistarinn sem fellur frá Þ au hörmulegu tíðindi bárust í vikunni að Stefán Kristjánsson, stórmeistari í skák, er látinn. Stefán fæddist þann 8. desember árið 1982 og var því aðeins 35 ára gam- all þegar hann lést. Hann er fyrsti stórmeistari Íslands sem fellur frá. Óhætt er að fullyrða að hann var einn hæfileikaríkasti skákmaður sem Ísland hefur eignast auk þess sem hann heillaði flesta sem hon- um kynntust með persónutöfrum sínum, greind og kímnigáfu. Byrjaði að tefla á „gamals aldri“ Stefán var 11 ára þegar hann byrj- aði að tefla í Melaskóla. Það má nánast segja að hann hafi byrjað að tefla á „gamals aldri“ því yfir- leitt byrja skákmenn um 5–6 ára aldur og yngstu stórmeistarar heims í dag eru 13–14 ára – þraut- þjálfaðir reynsluboltar. Það kom strax í ljós að Stefán hafði ótrúlega hæfileika til skákiðkunar og hann flaug hratt upp metorðastigann. Sá er þessi orð ritar var á sínum tíma í hópi bestu unglinga lands- ins þegar Stefán hóf taflmennsku. Sá hópur kunni ákaflega vel við sig í efstu sætum innlendra skákmóta og flestum varð ekki um sel þegar nýliðinn byrjaði að leggja mann og annan og nálgast þá hratt í getu. Það var ekki síst vegna þeirrar staðreyndar að Stefán bar enga virðingu fyrir sér eldri og reyndari mönnum. Í stað þess að brosa af þakklæti yfir að fá að mæta kemp- um eins og undirrituðum á ung- lingaskákmótum og leggjast síðan samviskusamlega á höggstokk- inn þá barðist hann um á hæl og hnakka, blés til sóknar eins og ekkert væri sjálfsagðara og gerðist meira að segja svo djarfur að pína andstæðinga í leiðinlegu enda- tafli í stað þess að sættast á skipt- an hlut. Til að bæta gráu ofan á svart reif hann oft kjaft eftir skákir en þó alltaf á góðlátlegan hátt og með húmorinn að vopni. Við, hinir eldri, vorum sem slegnir yfir þessum unga nýliða sem virti ekki þann sjálfsagða skákvaldastrúktúr, að okkar mati, sem hafði verið mörg ár að skapast. Þess vegna fékk Stefán viðurnefnið „Pönkið“ því hann var eins manns uppreisn í skáksamfélaginu! Kunni hann vel að meta þetta viðurnefni. Skapaði ódauðleg listaverk á skákborðinu Stefán var með gríðarlega með- fædda hæfileika sem skákmaður. Hann hafði frábæra getu til þess að reikna út leikjaraðir og sjá þær fyrir sér í huganum. Þá var minni hans afar öflugt auk þess sem hann hafði til brunns að bera mikla þolinmæði. Það gerði að verkum að hann var afar útsjónar- samur að bjarga sér úr erfiðum og leiðinlegum stöðum þar sem meðal maðurinn bugast. Einn helsti styrkleiki Stefáns var sá að hann var með stáltaugar. Það var á köflum töfrum líkast að sjá hann halda fullkominni ró sinni þegar skákklukkan taldi nið- ur síðustu sekúndurnar í skákinni og andstæðingurinn taldi að sigur væri innan seilingar. Þá tók Stef- án yfirleitt við sér og lék ógnar- sterkum leikjum af mikilli yfir- vegun. Í aðstæðum sem þessum skjálfa reyndir skákmeistarar oft af stressi en Stefán haggaðist ekki. Bar hann til dæmis sigurorð af hinum þekkta bosníska stórmeist- ara og Íslandsvini, Ivani Sokolov, í slíkum aðstæðum á Evrópumóti taflfélaga árið 2007. Skákin var frá- bærlega tefld af hálfu Stefáns, sér- staklega þegar haft er í huga að hann tefldi bróðurpartinn í bull- andi tímahraki. Eitt hið skemmtilegasta við skáklistina er sú staðreynd að haldið er utan um skákir í helstu mótum í sérstökum gagnagrunn- um sem nokkur fyrirtæki gefa út. Þar eru hundruð listaverka Stefáns á hinum sextíu og fjórum reitum varðveitt og munu þau vonandi ylja vinum hans og ástvinum um ókomna tíð. Þar reisti Stefán sér marga glæsilega minnisvarða sem aldrei munu falla. Fastamaður í landsliði Íslands Stefán varð alþjóðlegur meistari í skák árið 2002, þá nítján ára gam- all. Hann var á undan flestum af sinni kynslóð og óumdeilt var að hann var orðinn sá sterkasti í hópnum og einn sá allra sterkasti á Íslandi. Hann hafði stungið okk- ur alla af. Hann reykspólaði síðan enn frekar yfir samkeppnina með því næla sér í þrjá áfanga af stór- meistaratitli á næstu árum en sá síðasti kom í hús árið 2006. Með réttu hefði Stefán átt að verða stór- meistari þá þegar. Á þessum árum, 2000–2008, var Stefán fastamaður í landsliði Ís- lands. Hann tefldi níu sinnum fyr- ir Íslands hönd á þessum árum. Fimm sinnum á Ólympíuskákmóti og fjórum sinnum á Evrópumóti landsliða. Árangurinn var iðulega eftirtektarverður. Skákin hafði hins vegar vikið fyrir öðru áhugamáli og því tefldi Stefán lítið næstu ár. Blessunar- lega setti hann þó smá kraft í verk- efnið að lokum og árið 2011 komst Stefán yfir 2.500 stiga markið og hafði þar með uppfyllt allar kröf- ur stórmeistaratitilsins. Hann var útnefndur stórmeistari á 82. þingi FIDE – alþjóða skáksambands- ins sem haldið var dagana 15.–22. október 2011 í Kraká í Póllandi. Hann var tólfti íslenski skákmað- urinn sem hlaut þá tign. Fáa hefði grunað að Stefán yrði fyrsti ís- lenski stórmeistarinn til þess að falla frá. Fórnarlamb fíknar Eins og áður segir fékk Stefán mik- inn áhuga á póker í kjölfar vin- sælda íþróttarinnar í sjónvarpi. Á þeim vettvangi nýttust hæfileik- ar hans afar vel, frábær geta hans til útreikninga, þolinmæði og stál- taugar. Á stuttum tíma hagnað- ist Stefán vel á spilamennskunni og varð eins konar goðsögn með- al íslenskra pókeráhugamanna. Sé leitað eftir notendanöfnum hans á netinu á Google má sjá umfjöll- un um viðureignir hans við heims- þekkta pókerspilara þar sem háar fjárhæðir voru undir í hvert skipti. Árið 2010 varð Stefán fyrir gríðarlegu áfalli þegar móðir hans, Margrét Stefánsdóttir, lenti í hræðilegu slysi. Margrét var að hjóla heim á leið í Vesturbæ Reykjavíkur þegar hún féll af hjól- inu og slengdist utan í gangstéttar- brún. Afleiðingar slyssins urðu þær að Margrét hefur síðan þurft hjálp við allar athafnir daglegs lífs. Systur Stefáns, Lára Kristín og Anna Margrét, tjáðu sig um þessa erfiðu lífsreynslu í viðtali við DV árið 2014 sem vakti mikla athygli. Í gegnum pókerinn komst Stefán í kynni við einstaklinga í undirheimum höfuðborgarinnar og hóf að fikta við neyslu fíkniefna. Sá djöfull læsti klóm sínum í hann og sleppti aldrei takinu. Fallinn er frá hæfileikamaður sem skaraði fram úr í öllu því sem hann hafði áhuga á. Hugur hans var engum líkur og það mun taka íslenskt skáklíf langan tíma að jafna sig á þessu reiðarslagi. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Stefán Kristjánsson Skákmeist- arinn lést í vikunni, aðeins 35 ára að aldri. Hann var ókvæntur en lætur eftir sig fjórtán ára gamlan son.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.