Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 4
4 2. mars 2018fréttir
Það er staðreynd að …
Formlegt heiti Íslands er Ísland, en ekki
lýðveldið Ísland.
þú getur lifað án
þess að hafa
maga, milta,
kynfæri, 75
prósent af lif-
ur, 80 prósent
af görnum,
annað nýrað
og annað lungað. En þú værir samt
ekki mjög hraust/ur.
5 prósent
Íslendinga
ferðast
hvorki
innan- né
utanlands
á ári hverju.
117.133.000
einnar
krónu
myntir
eru í
umferð.
23 Íslendingar voru
brenndir á báli fyrir
nornagaldur. Ólíkt
öðrum þjóðum var
meirihlutinn af þeim
karlmenn, 19 talsins.
Hagamýs eru friðaðar úti í náttúrunni en
ekki húsamýs.
BuBBi
falinn
Bubbi meitlaði musterið í
ræktinni fimmtudaginn 1.
mars og skildi eftir sig haf
svita við æfingatækin. „5
lotur púði, 100 hæðir stigi,
35 mín hjólið, tek aldrei
fanga engin miskunn“ skrif-
aði hann á Facebook-síðu
sína. Á berum skallanum
skinu svitaperlur erfiðisins.
„Perlur á graníti.“ Eiturhart.
Í síðustu viku mátti
finna ásjónu Bubba á síðu
62. Bubbi er vitaskuld
falinn í þessu blaði og geta
glöggir lesendur reynt að
finna kappann. Upplýs-
ingar sendist á bubbi@
dv.is. Dregið verður úr inn-
sendum lausnum og fær sá
heppni gjafabréf á veitinga-
stað í höfuð-
borginni í verð-
laun.
Finndu
Bubba í
blaðinu
Minningarorð um Stefán
Kristjánsson stórmeistara
n Stefán lést í vikunni aðeins 35 ára að aldri n fyrsti íslenski stórmeistarinn sem fellur frá
Þ
au hörmulegu tíðindi
bárust í vikunni að Stefán
Kristjánsson, stórmeistari
í skák, er látinn. Stefán
fæddist þann 8. desember árið
1982 og var því aðeins 35 ára gam-
all þegar hann lést. Hann er fyrsti
stórmeistari Íslands sem fellur frá.
Óhætt er að fullyrða að hann var
einn hæfileikaríkasti skákmaður
sem Ísland hefur eignast auk þess
sem hann heillaði flesta sem hon-
um kynntust með persónutöfrum
sínum, greind og kímnigáfu.
Byrjaði að tefla á „gamals
aldri“
Stefán var 11 ára þegar hann byrj-
aði að tefla í Melaskóla. Það má
nánast segja að hann hafi byrjað
að tefla á „gamals aldri“ því yfir-
leitt byrja skákmenn um 5–6 ára
aldur og yngstu stórmeistarar
heims í dag eru 13–14 ára – þraut-
þjálfaðir reynsluboltar. Það kom
strax í ljós að Stefán hafði ótrúlega
hæfileika til skákiðkunar og hann
flaug hratt upp metorðastigann.
Sá er þessi orð ritar var á sínum
tíma í hópi bestu unglinga lands-
ins þegar Stefán hóf taflmennsku.
Sá hópur kunni ákaflega vel við sig
í efstu sætum innlendra skákmóta
og flestum varð ekki um sel þegar
nýliðinn byrjaði að leggja mann og
annan og nálgast þá hratt í getu.
Það var ekki síst vegna þeirrar
staðreyndar að Stefán bar enga
virðingu fyrir sér eldri og reyndari
mönnum. Í stað þess að brosa af
þakklæti yfir að fá að mæta kemp-
um eins og undirrituðum á ung-
lingaskákmótum og leggjast síðan
samviskusamlega á höggstokk-
inn þá barðist hann um á hæl og
hnakka, blés til sóknar eins og
ekkert væri sjálfsagðara og gerðist
meira að segja svo djarfur að pína
andstæðinga í leiðinlegu enda-
tafli í stað þess að sættast á skipt-
an hlut.
Til að bæta gráu ofan á svart
reif hann oft kjaft eftir skákir en
þó alltaf á góðlátlegan hátt og
með húmorinn að vopni. Við,
hinir eldri, vorum sem slegnir yfir
þessum unga nýliða sem virti ekki
þann sjálfsagða skákvaldastrúktúr,
að okkar mati, sem hafði verið
mörg ár að skapast. Þess vegna
fékk Stefán viðurnefnið „Pönkið“
því hann var eins manns uppreisn
í skáksamfélaginu! Kunni hann vel
að meta þetta viðurnefni.
Skapaði ódauðleg listaverk á
skákborðinu
Stefán var með gríðarlega með-
fædda hæfileika sem skákmaður.
Hann hafði frábæra getu til þess
að reikna út leikjaraðir og sjá þær
fyrir sér í huganum. Þá var minni
hans afar öflugt auk þess sem
hann hafði til brunns að bera
mikla þolinmæði. Það gerði að
verkum að hann var afar útsjónar-
samur að bjarga sér úr erfiðum
og leiðinlegum stöðum þar sem
meðal maðurinn bugast.
Einn helsti styrkleiki Stefáns
var sá að hann var með stáltaugar.
Það var á köflum töfrum líkast
að sjá hann halda fullkominni ró
sinni þegar skákklukkan taldi nið-
ur síðustu sekúndurnar í skákinni
og andstæðingurinn taldi að sigur
væri innan seilingar. Þá tók Stef-
án yfirleitt við sér og lék ógnar-
sterkum leikjum af mikilli yfir-
vegun. Í aðstæðum sem þessum
skjálfa reyndir skákmeistarar oft
af stressi en Stefán haggaðist ekki.
Bar hann til dæmis sigurorð af
hinum þekkta bosníska stórmeist-
ara og Íslandsvini, Ivani Sokolov,
í slíkum aðstæðum á Evrópumóti
taflfélaga árið 2007. Skákin var frá-
bærlega tefld af hálfu Stefáns, sér-
staklega þegar haft er í huga að
hann tefldi bróðurpartinn í bull-
andi tímahraki.
Eitt hið skemmtilegasta við
skáklistina er sú staðreynd að
haldið er utan um skákir í helstu
mótum í sérstökum gagnagrunn-
um sem nokkur fyrirtæki gefa út.
Þar eru hundruð listaverka Stefáns
á hinum sextíu og fjórum reitum
varðveitt og munu þau vonandi
ylja vinum hans og ástvinum um
ókomna tíð. Þar reisti Stefán sér
marga glæsilega minnisvarða sem
aldrei munu falla.
Fastamaður í landsliði Íslands
Stefán varð alþjóðlegur meistari í
skák árið 2002, þá nítján ára gam-
all. Hann var á undan flestum
af sinni kynslóð og óumdeilt var
að hann var orðinn sá sterkasti í
hópnum og einn sá allra sterkasti
á Íslandi. Hann hafði stungið okk-
ur alla af. Hann reykspólaði síðan
enn frekar yfir samkeppnina með
því næla sér í þrjá áfanga af stór-
meistaratitli á næstu árum en sá
síðasti kom í hús árið 2006. Með
réttu hefði Stefán átt að verða stór-
meistari þá þegar.
Á þessum árum, 2000–2008, var
Stefán fastamaður í landsliði Ís-
lands. Hann tefldi níu sinnum fyr-
ir Íslands hönd á þessum árum.
Fimm sinnum á Ólympíuskákmóti
og fjórum sinnum á Evrópumóti
landsliða. Árangurinn var iðulega
eftirtektarverður.
Skákin hafði hins vegar vikið
fyrir öðru áhugamáli og því tefldi
Stefán lítið næstu ár. Blessunar-
lega setti hann þó smá kraft í verk-
efnið að lokum og árið 2011 komst
Stefán yfir 2.500 stiga markið og
hafði þar með uppfyllt allar kröf-
ur stórmeistaratitilsins. Hann var
útnefndur stórmeistari á 82. þingi
FIDE – alþjóða skáksambands-
ins sem haldið var dagana 15.–22.
október 2011 í Kraká í Póllandi.
Hann var tólfti íslenski skákmað-
urinn sem hlaut þá tign. Fáa hefði
grunað að Stefán yrði fyrsti ís-
lenski stórmeistarinn til þess að
falla frá.
Fórnarlamb fíknar
Eins og áður segir fékk Stefán mik-
inn áhuga á póker í kjölfar vin-
sælda íþróttarinnar í sjónvarpi. Á
þeim vettvangi nýttust hæfileik-
ar hans afar vel, frábær geta hans
til útreikninga, þolinmæði og stál-
taugar. Á stuttum tíma hagnað-
ist Stefán vel á spilamennskunni
og varð eins konar goðsögn með-
al íslenskra pókeráhugamanna. Sé
leitað eftir notendanöfnum hans
á netinu á Google má sjá umfjöll-
un um viðureignir hans við heims-
þekkta pókerspilara þar sem háar
fjárhæðir voru undir í hvert skipti.
Árið 2010 varð Stefán fyrir
gríðarlegu áfalli þegar móðir
hans, Margrét Stefánsdóttir, lenti
í hræðilegu slysi. Margrét var
að hjóla heim á leið í Vesturbæ
Reykjavíkur þegar hún féll af hjól-
inu og slengdist utan í gangstéttar-
brún. Afleiðingar slyssins urðu
þær að Margrét hefur síðan þurft
hjálp við allar athafnir daglegs
lífs. Systur Stefáns, Lára Kristín og
Anna Margrét, tjáðu sig um þessa
erfiðu lífsreynslu í viðtali við DV
árið 2014 sem vakti mikla athygli.
Í gegnum pókerinn komst
Stefán í kynni við einstaklinga í
undirheimum höfuðborgarinnar
og hóf að fikta við neyslu fíkniefna.
Sá djöfull læsti klóm sínum í hann
og sleppti aldrei takinu. Fallinn er
frá hæfileikamaður sem skaraði
fram úr í öllu því sem hann hafði
áhuga á. Hugur hans var engum
líkur og það mun taka íslenskt
skáklíf langan tíma að jafna sig á
þessu reiðarslagi. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Stefán Kristjánsson Skákmeist-
arinn lést í vikunni, aðeins 35 ára að
aldri. Hann var ókvæntur en lætur
eftir sig fjórtán ára gamlan son.