Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Side 17
2. mars 2018 fréttir 17
É
g tók þá ákvörðun löngu
áður en ég vissi hvað fíkni-
efni væru að ég ætlaði að
nota þau. Sem var mjög
skrítið þar sem ég hafði grunn-
reglur um að ég ætlaði aldrei
að reykja eða drekka og ég var
mjög virk í félagslífi og íþrótt-
um. En ég tók þessa ákvörðun af
því að mér leið svo ótrúlega illa
sem barn, upplifði mikla vanlíð-
an og vissi aldrei hvað ég ætti að
gera eða segja. Ég bældi allt nið-
ur og brosti. Svo einn daginn var
Marita-fræðsla í skólanum og þá
jókst áhuginn á þessu enn meira.
Í staðinn fyrir að finna fyrir ótta
eða kvíða yfir því að fara þessa
leið þá fann ég fyrir spennu og
tók meðvitaða ákvörðun um að
þetta væri eitthvað sem ég ætlaði
að gera,“ segir Elva sem var mjög
óhamingjusöm á þessum tíma.
Upplifði hamingju
í fyrsta skiptið
„Um leið og ég notaði í fyrsta
skiptið þá fann ég að þetta var
eitthvað sem mér var ætlað. Ég
fann fyrir tilgangi og upplifði
hamingju í fyrsta skiptið, eitt-
hvað sem ég hafði aldrei fund-
ið fyrir sem barn. Þá tók ég
ákvörðun um að þetta væri eitt-
hvað sem ég ætlaði að gera eins
mikið af og ég gæti. Ég var ótrú-
lega fljót að mjólka út alla þessa
inneign og ég lifði í blekkingu
og afneitun í mörg ár þar sem
ég trúði því að ég væri enn að fá
eitthvað út úr þessu líkt og í upp-
hafi neyslunnar. En ég
keyrði mig strax í klessu,
á innan við mánuði var
ég búin að prófa allt sem
þessi markaður hefur
upp á að bjóða.“
Elva hafði áður reynt
að verða edrú en í þau
skipti gerði hún það al-
farið á sínum forsend-
um og það gekk aldrei
upp. „Ég hélt að ef ég
færi inn á Vog í sjö daga
þá myndi það gera mig
edrú, en það gerði það
auðvitað ekki þar sem
ég vann ekkert í því. Það
var svo í lok 2015 sem
ég var alveg búin á því,
líkami minn var að gefast upp og
ég hafði enga orku. Ég fann að
ég gat ekki verið edrú en ég gat
heldur ekki verið undir áhrifum,
ég fór því niður á geðdeild og bað
um hjálp. Þær voru yndislegar og
tóku mig í mörg viðtöl og sóttu
um í allar meðferðir fyrir mig.
Ég fékk svo inni á Hlaðgerðar-
koti eftir tvo mánuði, en ég af-
þakkaði það, því ég upplifði það
sem höfnun að hafa ekki feng-
ið hjálp strax. En þökk sé systur
minni og fjölskyldu sem héldu
fjölskyldufund þá fór ég daginn
eftir inn á Hlaðgerðarkot.“
Meðferðin byrjaði ekki vel
hjá Elvu, en hún hélt áfram að
vera óheiðarleg og gera allt sem
hún mátti ekki.
Dauðadómur að vera edrú
„En þetta er bara þannig að ef
þú vilt þetta ekki þá ferð þú bara
út, en ef þú vilt þetta þá verð-
ur þú að breyta þér og gera það
sem á að gera. Ég get ekki útskýrt
hvað gerðist, en það gerðist eitt-
hvað og mér fór að líða betur. Ég
ætlaði mér aldrei að verða edrú
svona ung, ég var bara tuttugu
og tveggja ára og fyrir mér var
það dauðadómur að vera lifandi
en geta ekki gert neitt. Ég fann
fyrir einhverri ró þarna inni og
ákvað að kýla á þetta, gefa í þetta
allt sem ég gaf áður í neysluna.
Það virkaði.“
Þegar Elva var sautján ára
gömul fór fólkið í kringum hana
að falla frá og það kom henni
mikið á óvart því hún hélt að
fíkniefnin myndu bjarga lífi
hennar.
„Þegar besta vinkona mín lést
vegna neyslu fékk ég mikið áfall.
Ég man eftir því að hafa fengið
símhringingu þar sem mér var
greint frá því að hún væri látin
og ég hrundi í gólfið. En leiðin
mín til þess að tækla þessar að-
stæður var að fara út og nota
fleiri og harðari efni, sem er
ótrúlega sorglegt en algjörlega
lýsandi fyrir þennan sjúkdóm,
hann tekur bara og tekur. Ég
var í svo mikilli afneitun að ég
var blind og ef maður vill ekki
hjálp þá er ekki hægt að hjálpa
manni. Það er líka svo hræði-
legt hve eðlilegt það er talið að
vera undir áhrifum í dag. Eins
og með kannabis, og ég var
mikill kannabisnotandi og var
alveg þeirrar skoðunar að það
ætti að lögleiða það, en þetta
hefur gríðarleg áhrif á mann. Ég
sé krakka reykja þetta fyrir utan
skóla og þeir átta sig ekki á því
að þetta mun leiða til annars, sá
tími mun koma þegar þau leita í
harðari efni, það er ástæða fyrir
því að þetta er kallað „gateway
drugs“, það er ekkert grín.“
Það mun koma skellur
Elva segir að henni hafi ekki
fundist hún eiga neitt gott skil-
ið og að hún hafi verið búin að
sætta sig við að hún yrði á þess-
um stað þar til hún myndi deyja.
„En málið er að öll okkar
markmið og draumar geta ræst,
en við þurfum að hafa fyrir þeim.
Ég veit að það er ekki hægt að
hjálpa þeim sem vilja ekki hjálp,
en málið er að það skiptir ekki
máli hvar eða hvert þú ferð til
þess að verða edrú, það geta all-
ir tekið sig á, en maður þarf að
vilja biðja um hjálpina og vera
fús til þess að taka á móti henni.
Fara nýja leið en ekki aftur á bak
í sömu átt og maður kom úr. Það
tekur tíma og mikla vinnu en það
er samt margfalt minni vinna en
ég lagði nokkurn tímann í neysl-
una sjálfa. Eins svalt og það þykir
að nota eða að vera í dagneyslu
þá er þetta ekkert grín, á endan-
um kemur sá tími þar sem þetta
verður ekki lengur gaman og það
mun koma skellur, spurningin er
bara hversu stór hann verður.“ n
„Ég er búinn að deyja þrisvar“
n Martröðin hófst þegar Birgir byrjaði að sprauta sig n Elva ætlaði sér ekki að verða edrú n Hélt að fíkniefnin myndu bjarga henni n Eru bæði mjög á móti kannabisreykingum
saga
elvu
maður á réttum tíma á réttum stað
og til búinn. Ég var rosalega ör-
væntingarfullur þarna og ég áttaði
mig allt í einu á því að þetta var
ekkert kvef sem ég var að glíma
við, heldur væri ég með sjúkdóm
sem væri að fara að drepa mig.
Ég áttaði mig á því að ég væri ekki
bara að eyðileggja mitt líf heldur
einnig foreldra minna, barnanna
og systkina. Það þyrmdi svo yfir
mig að ég ákvað að hlusta á ráð-
gjafann minn og hlýða einhverjum
sem væri lengra kominn en ég. Það
var svo ótrúlega erfitt fyrir mig að
hlýða einhverjum öðrum af því að
egóið mitt var svo rosalega bólgið
þegar ég var edrú. Þarna ákvað ég
að prófa allt og tók þátt í öllu, þrátt
fyrir að ég væri að deyja úr frá-
hvörfum þá var ég farin að sinna
húsverkum daginn eftir að ég kom,
en margir sofa fyrstu dagana.“
Margt slæmt hefur gerst síð-
an Birgir kom úr meðferð en hann
hefur aldrei fundið þörf fyrir að
nota nokkur efni.
„Það finnst mér magnað því
alltaf ef eitthvað slæmt gerðist í lífi
mínu þá þurfti ég að nota, sama
hvað það var. En núna er ég búinn
að jarða vini mína, vinkonur
mínar og ég hef meira að segja
þurft að jarða barnsmóður mína,
en hún dó úr of stórum skammti
mánuði eftir að ég kom út úr með-
ferð. Þetta er vont en mér má al-
veg þykja eitthvað vont, áður fyrr
mátti ég aldrei finna til án þess að
þurfa að deyfa það. Núna finn ég
til og það er bara allt í lagi. Ég fór
úr því að vera sprautufíkill sem átti
enga von, kom inn í meðferð með
tvo Hagkaupspoka örugglega með
stolnum fötum, í það að vera edrú í
fjögur ár, kominn með íbúð, búinn
að vera í sömu vinnunni í tvö ár,
búinn með ráðgjafarskóla og er
kominn með forræði yfir strákn-
um mínum sem hefur nú búið hjá
mér í tvö og hálft ár. Fólk er farið að
treysta mér og ég er orðin eðlilegur
samfélagsþegn, sem ég var í raun
alltaf að leitast við, þótt það hafi
hrætt mig rosalega mikið. En þetta
er tilgangurinn með lífinu, dóttir
mín, sem er sextán ára, var búin
að skipta um nafn og vildi ekki sjá
mig, en í dag er hún mikið með
mér og hefur breytt nafninu aftur
í Birgisdóttir. Foreldrar mínir eru
farnir að sofa á nóttunni og ég hef
eignast annað líf. Ég er sannfærð-
ur um að ef ég held áfram að gera
það sem ég er að gera í dag til þess
að vera edrú, þá þarf ég aldrei að
nota áfengi eða fíkniefni aftur og
það finnst mér geðveik tilfinning.“
Á að byrja fræðslu í grunnskólum
Birgir segir skuggalegt hversu fólki
sem notar fíkniefni hefur fjölgað á
síðustu árum og hversu mikið af
hörðum efnum séu komin á mark-
aðinn.
„Fólk er bara byrjað að hrynja
niður. Ég veit ekki hversu margir
eru búnir að falla á þessu ári, en
ég þekkti að minnsta kosti þrjá
af þeim. Ég er sannfærður um að
það þarf að byrja fræðslu í grunn-
skólum. Byggja krakkana upp, því
vandamálið byrjar oft löngu áður
en við byrjum að drekka. Það þarf
að finna rótina og byrja þar. Það
er svo mikill þrýstingur á krakka í
dag, að þau séu ekki að gera nóg,
og það sem gerist slæmt í æsku
getur ýtt undir alkóhólisma.“
Birgir segir einnig að það sé
orðið virkilega slæmt hversu al-
gengar kannabisreykingar séu
orðnar.
„Fólk er að deyja út af kanna-
bisreykingum, þótt það sé kannski
ekki að taka
of stóra
skammta
þá er fólk að
hengja sig
í hrönnum
út af kanna-
bisnotkun.
Fólk verður
svo kvíðið
og þung-
lynt, ég not-
aði rosalega
mikið kanna-
bis í tíu ár og
ég fann bara
eftir á hvað
ég var mikið
skemmdur út
af því.“ n
Elva Björk Haraldsdóttir
er fædd árið 1993 og stundar í
dag nám á náttúrufræðibraut í
Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Elva hefur verið edrú í rúm tvö ár
en hún byrjaði mjög ung í neyslu.„Fólk er að
hengja sig
í hrönnum út af
kannabisnotkun
Birgir Rúnar Benediktsson
Birgir þegar hann var í neyslu.
Elva Björk Elva Björk þegar hún
var í neyslu.
Elva Björk
Haraldsdóttir
Elva hefur verið edrú
í rúm tvö ár í dag.
MynD EinaR RagnaR