Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 29
2. mars 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Ég á 40 ára steikingarafmæli og allt hvílir þetta á nokkrum hamborgararéttum sem eru í uppá
haldi hjá mér sjálfum,“ segir Magnús
Garðarsson veitingamaður sem rekur
staðina Burgers í Kringlunni og Firði
Hafnarfirði.
Burgers hefur verið starfandi á
Stjörnutorgi í Kringlunni í þrjú ár og í
Firði í Hafnarfirði frá því í maí í fyrra.
Nýja staðnum í Hafnarfirði hefur verið
afskaplega vel tekið og segist Magnús
telja að þetta hafi einmitt verið það
sem vantaði í Hafnarfjörð; fjölskyldu
vænan skyndibitastað með gæða
mat á hagstæðu verði.
„Það fer nokkuð eftir því í hvernig
skapi maður hver uppáhaldsborgar
inn er hverju sinni. Stundum vill
maður bara grípa með sér einfaldan
ostborgara. Stundum vill maður hafa
á honum beikon og egg, en stundum
vil ég laukhringi, bbqsósu og brædd
an ost. En á mínum 40 ára ferli hafa
þessir borgarar alltaf staðið upp úr
hjá mér: Béarnaiseborgari, beikon
& eggborgari og bbqborgari, en
sá síðastnefndi er til í útfærslu með
bæði nautakjöti og kjúklingi,“ segir
Magnús.
Hamborgarar eru uppistaðan á
Burgers en aðrir réttir njóta þar líka
vinsælda. „Ég lét undan þrýstingi og
byrjaði með djúpsteiktan fisk sem
hefur mælst mjög vel fyrir. Lamba
kóteletturnar okkar eru síðan heims
frægar og útlendingarnir sem hingað
koma elska þær, besta lamb sem þeir
hafa fengið.“
Elda frá hjartanu og nota besta
hráefnið
Opið er á Burgers í Kringlunni á
afgreiðslutíma Kringlunnar en stað
urinn í Firði er opinn frá 11.30 til 20.00
alla daga vikunnar nema sunnu
dag þegar er lokað. Vinnandi fólk í
Firði og skólanemar sækja staðinn
stíft í hádeginu en í eftirmiðdaginn
koma þangað margir erlendir ferða
menn með flugrútunni frá Keflavík.
Á kvöldin, að sögn Magnúsar, er
fjölskyldufólk áberandi. „Það kemur
til dæmis fjöldi fólks hingað úr
Vallahverfinu og sækir sér kvöld
mat heim eða borðar á staðnum.
Barnaboxin hérna kosta 950 kr.
Þau innihalda 115 g hamborgara,
franskar og djús og síðan er leir og
leikföng. Börnin eru róleg hérna
með matinn sinn og leikföngin
og fjölskyldan nýtur þess snæða
góðan mat á viðráðanlegu verði.
Stöðluð stærð á hamborgurum
er alltaf 115 g og tilboð með gosi
og frönskum er 1.550 kr. sem er
ódýrt miðað við stærðina á borg
urunum,“ segir Magnús.
Natni við matreiðslu og gott
hráefni eru lykillinn að velgengni,
að sögn Magnúsar: „Það verður
að kaupa besta hráefnið, það er
lykillinn að því að fólk komi aftur
og aftur. Góður matreiðslu
maður getur ekki eldað góðan
mat úr vondu hráefni. Ég er
með franskar frá Garra, Butler,
og kjötið kemur frá Kjöthúsinu,
framúrskarandi nautakjöt, frá
bært beikon og meiriháttar kótel
ettur,“ segir Magnús.
„Síðan er það stórt atriði að elda
frá hjartanu, setja sálina í þetta. Gera
þetta eins og þú sért að elda handa
sjálfum þér. Þetta eru atriði sem ég
reyni að kenna starfsfólkinu. Ég hef
líka verið heppinn með starfsfólk og
er stoltur af því að geta miðlað til
þess minni þekkingu og reynslu.“
Betri borgarar
Lykilatriði að elda frá hjartanu
og nota bara úrvals hráefni
BurGErS, Firði OG KriNGLuNNi