Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 33
Betri borgarar 2. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ
Kröst-hamborgarinn hefur slegið
í gegn og ekki að ástæðulausu
Veitingastaðurinn Kröst í Mathöllinni á Hlemmi hefur vakið mikla lukku og stefna
Böðvars LeMack matreiðslumanns
hittir í mark á gestum Mathallarinnar:
„Við reynum að framreiða heiðar-
legan mat á Kröst og leggjum áherslu
á rétti úr grillinu. Heitt prótein og kalt
meðlæti, ef svo mætti að orði kom-
ast, og eins ferskt hráefni og völ er á
hverju sinni. Við erum með lítinn en
síbreytilegan matseðil enda alltaf að
reyna að finna út hvað virkar best fyrir
þennan matarmarkað,“ segir Böðvar.
Einn af þeim réttum hjá Kröst
sem hafa slegið rækilega í gegn er
Kröst-hamborgarinn. Í Kröst-ham-
borgaranum er kjötið með tveim
mismunandi grófleikum en það gerir
áferðina einstaklega skemmtilega.
Hann er borinn fram á dúnmjúku
kartöflubrauði með Kröst-sósu sem
m.a. inniheldur tómata, perur, púður-
sykur og eplaedik ásamt leynilegri
kryddblöndu. Salatið er úr hvítlauk,
selleríi og sýrðu majónesi. Á ham-
borgarann fer einnig gott franskt
sinnep með hlynsírópi.
Böðvar kann vel við sig í Mathöll-
inni á Hlemmi enda staðurinn hans
fengið afskaplega góðar viðtöku og
stemningin í Mathöllinni þykir vera
afbragð: „Íslendingar eru enn í miklum
meirihluta gesta, sem er gott vegna
þess að það eru fastagestir sem
halda stöðunum uppi á meðan ferða-
mennirnir eru skemmtileg og kærkom-
in viðbót,“ segir Böðvar. Staðurinn er
opinn sunnudaga til fimmtudaga frá
kl. 11 til 22 og laugardaga frá 11 til 23.
KröSt
Eins og heimsókn í sveitina
Ég held að fólk sæki hingað með-al annars til að losna við áreiti og þann stanslausan eril sem
er á flestum stöðum í borginni. Hér
er engin tónlist og engir myndskjáir.
Þetta er dálítið eins og að koma í
heimsókn í sveitina og gæða sér á
einhverju þjóðlegu, brauði með síld,
flatkökum með hangikjöti og svo
framvegis. Við höfum kappkostað
að varðveita þennan heimilislega og
þjóðlega karakter sem ávallt hefur
verið yfir Litlu kaffistofunni,“ segir
Katrín Hjálmarsdóttir sem hefur rekið
Litlu kaffistofuna við Suðurlandsveg
síðan 1. nóvember árið 2016.
„Við höldum í þetta gamla hér og
erum til dæmis með kjötsúpuna og
heimabakað brauð áfram. En við
höfum líka bætt við tertum og kökum
sem eru bakaðar á staðnum og tekið
upp þann sið að vera með heimilis-
mat í hádeginu alla virka daga ásamt
súpu dagsins.“
Hamborgarar skipa veglegan
sess á matseðli Litlu kaffistofunnar
og eru mjög vinsælir og hefur Litla
kaffistofan fengið mjög góða dóma
fyrir þá. Í boði eru ostborgari, grand-
borgari með beikoni og eggi, beikon-
borgari og vegan-borgari.
„Í vondu veðri finnst fólki gott að
gera hlé á ferðinni, setjast hérna og
hvíla sig. Fjölskyldufólki finnst líka
gott að koma hingað og fá sér heitt
súkkulaði og vöfflu eða kaffi og með
því. Þá spillir ekki fyrir að verðið er
hagstætt,“ segir Katrín.
Erlendum ferðamönnum fer
mjög fjölgandi á Litlu kaffistofunni
að hennar sögn en Íslendingar eru
áfram í miklum meirihluta.
Litla kaffistofan er opin frá 7 til 18
virka daga og 8 til 18 um helgar. Sjá
nánar á Facebook-síðunni Litla-Kaffi-
stofan.
LitLa KaFFiStoFan: