Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 37
fólk - viðtal 292. mars 2018
sjálfsaga og því hefur það aldrei
verið vandamál fyrir mig að gera
áætlanir fram í tímann og standa
við þær,“ segir Ægir ákveðinn.
Hann byrjaði að fikta við hlaup
árið 2009. Eins og hjá flestum sem
byrja að hlaupa þá gerðist það eig-
inlega óvart. „Vinnufélagi minn,
Einar Guðmundsson, var að fara
að keppa í 10 kílómetra hlaupi og
hvatti mig til þess að koma með.
Ég hafði gaman af áskoruninni og
ákvað síðan að taka þátt að ári og
æfa mig fyrir hlaupið. Þá var ég
kominn á bragðið og síðan hef ég
verið meira og minna hlaupandi,“
segir Ægir.
Myndi míga í sig í hlaupi frekar
en að stoppa
Eftir að hafa „dútlað“ við 10 kíló-
metra hlaup skráði Ægir sig í
Reykjavíkurmaraþon árið 2013
ásamt syni sínum. „Það var mikil
þrekraun. Ég fékk verk í mjöðmina
eftir um 12 kílómetra og því voru
síðustu þrjátíu nokkuð strembnir,“
segir Ægir og brosir þegar blaða-
maður hristir hausinn yfir sjálf-
spíningunni. Þrátt fyrir kvalræðið
hafði Ægir afar gaman af upplifun-
inni og síðan hefur maraþon átt
hug hans allan. „Ég hef í allt hlaup-
ið þrettán maraþon á síðustu fjór-
um og hálfu ári. Það þykir ágætt
en ég er búin að setja stefnuna á
mörg til viðbótar,“ segir Ægir.
Aðspurður hverju sé mikil-
vægast að huga að fyrir mara-
þonhlaup, fyrir utan augljósar æf-
ingar, kemur Ægir blaðamanni
talsvert á óvart. „Klósettferð-
ir fyrir hlaup,“ segir hann bros-
andi, en er þó greinilega fúlasta
alvara. „Það er afar mikilvægt að
tæma sig alveg fyrir hlaup. Ég hef
orðið vitni að mörgum uppákom-
um í hlaupum þar sem hlauparar
hafa gert mistök varðandi það,“
segir Ægir. Í hönd fara epískar lýs-
ingar Ægis af ælandi og mígandi
hlaupurum í maraþonhlaupum
um allan heim sem og þeim hvim-
leiða vanda í stærri maraþon-
hlaupum að klósettpappírinn
klárast strax. „Það er mjög mik-
ilvægt heilræði fyrir hlaupara að
taka alltaf klósettpappír með sér
á vettvang hlaupsins,“ segir Ægir
og deilir með blaðamanni sögu frá
Berlínarhlaupinu þar sem hann
klikkaði á þessu atriði og reif nið-
ur aukabol sem hann var í til þess
að gegna þessu mikilvæga hlut-
verki. Sjálfur hefur hann aldrei
orðið veikur í maga eða þurft að
skvetta úr skinnsokknum í miðju
hlaupi eins og algengt er. Ægir er
þó afdráttarlaus í svörum þegar
hann er spurður um hvernig hann
myndi takast á við slíkar aðstæður.
„Ég myndi míga í mig,“ segir hann
ákveðinn.
Átti ekki að lifa af
Hjartaáfallið alvarlega átti sér stað
föstudagskvöld í febrúar í fyrra.
Eins og áður segir reið það yfir í
svefni og er í raun lygilegt að Ægir
hafi lifað það af. „Ég var ofboðs-
lega heppinn. Ég heyrði einhvers
staðar að aðeins um 20 prósent
þeirra sem fá hjartaáfall í svefni
lifi það af,“ segir Ægir. Hann hafði
ekki kennt sér meins fyrir áfallið,
þvert á móti. „Ég hafði eiginlega
aldrei verið brattari. Ég var í miðj-
um undirbúningi fyrir maraþon-
hlaup í Kaupmannahöfn í maí. Ég
var að hlaupa um 100 kílómetra
á viku og var að bæta mig í hvert
sinn sem ég hljóp. Það er ótrúlegt
í ljósi þess að dælan var höktandi,“
segir Ægir kíminn. Tveimur vikum
síðar hafði Ægir ráðgert að fara
í æfingaferð til Tenerife en hefði
áfallið riðið yfir þar ytra, þar sem
Ægir hefði verið einsamall, hefði
ekki þurft að spyrja að leikslokum.
Sú sem bjargaði honum var eigin-
kona hans, Ragga, en svo ótrúlega
vildi til að hún hafði nýlokið nám-
skeiði í skyndihjálp og brást því
strax hárrétt við. „Það varð mér
lífs,“ segir Ægir.
Þetta örlagaríka föstudags-
kvöld fór hann á undan eiginkonu
sinni í háttinn enda var fram und-
an strembið 35 kílómetra hlaup á
laugardagsmorgni. „Þegar Ragga
kom í háttinn þá var ég sofnaður
en hún heyrði óeðlileg hljóð í mér.
Hún er framhaldsskólakennari og
hafði nýlokið námskeiði í skyndi-
hjálp. Þess vegna skildi hún strax
hvað var að gerast,“ segir Ægir.
Ragga hringdi umsvifalaust í
Neyðarlínuna og byrjaði strax að
hnoða eiginmann sinn. „Það er
betra að hnoða en blása og þetta
hafði Ragga lært.“ Svo heppi-
lega vildi til að þau búa skammt
frá sjúkrahúsinu í Reykjanesbæ
og því voru sjúkraflutningamenn
fljótir á vettvang. Ægir var endur-
lífgaður með hjartastuðtæki og
„Að takast á við áföll er
spurning um hugarfar“
„Ég varð aldrei
var við neitt. Ég
bauð konunni minni bara
góða nótt á föstudegi
og síðan góðan daginn á
mánudegi
Á hlaupum Ægir byrjaði að fikta við hlaup árið 2009 og hefur vart stoppað síðan.