Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 38
30 fólk - viðtal 2. mars 2018
„hrökk í gang við fyrstu tilraun“
eins og hann orðar það sjálfur. Það
var afar mikilvægt enda aukast lík
ur á varanlegum skaða ef tilraun
irnar eru fleiri.
Í ljós kom að alvarleg kransæða
stífla hrjáði Ægi. Alls fannst stífla
á sex stöðum í hjarta hans. Hann
var fluttur til Reykjavíkur og þar
undirgekkst hann þegar hjarta
þræðingu. Þegar henni var lokið
var honum haldið sofandi fram á
mánudag. „Ég varð aldrei var við
neitt. Ég bauð konunni minni bara
góða nótt á föstudegi og síðan
góðan daginn á mánudegi,“ segir
Ægir og brosir.
Falskt öryggi af eftirliti
Það er auðheyrt að Ægir er afar
þakklátur eiginkonu sinni fyr
ir lífgjöfina og hann talar hlýlega
um hana. Það er þó ekki langt í
gaman semina. „Við skiptum með
okkur heimilisverkum þannig að
ég hef tekið að mér bróðurpartinn
af heimilisþrifunum. Þegar ég var
úr hættu grínaðist Ragga mín með
að hún hefði hnoðað mig svona
vel því að hún vildi alls ekki missa
þrifin,“ segir Ægir og hlær dátt.
Í fjölskyldu Ægis er saga um
hjartaáföll. „Faðir minn fékk
kransæðastíflu og lést úr hjarta
áfalli rúmlega sjötugur. Í ljósi þess
var ég mjög meðvitaður um að ég
var í áhættuhópi og því hafði ég
sinnt því mjög vel að mæta í reglu
legt eftirlit hjá Hjartavernd. Allar
þær rannsóknir komu mjög vel út
og ég taldi mig því vera alveg heil
brigðan. Þessar rannsóknir veittu
mér í raun falskt öryggi,“ segir
Ægir og setur spurningarmerki við
tilgang slíks eftirlits ef það grein
ir ekki svo alvarlega kransæða
vandamál og hann þurfti að tak
ast á við. „Ég veit ekki alveg hvað
ég gat gert meira til þess að fyrir
byggja þetta hjartaáfall. Það er í
sjálfu sér ansi óhuggulegt og von
andi koma betri greiningaraðferð
ir fljótlega fram á sjónarsviðið,“
segir Ægir.
Eins og áður segir var fyrsti
hjartalæknirinn sem Ægir ráð
færði sig við eftir áfallið afdráttar
laus í þeirri skoðun sinni að Ægir
mætti ekki hlaupa aftur. „Það stóð
bara skýrum stöfum á blaði sem
ég fékk. Þrátt fyrir þær úrtölur þá
var ég harðákveðinn í að sætta
mig ekki við þann dóm,“ segir
Ægir. Aðeins viku eftir hjartaáfall
ið steig Ægir fyrst á hlaupabretti
heima hjá sér og síðan hefur
hann ekki stoppað. „Ég var aldrei
hræddur við að fara af stað. Ég
trúi því að hver og einn sé ábyrgur
fyrir sinni endurhæfingu. Hugar
farið er lykilatriði í því. Ég fann
strax að mér leið ágætlega og ég
ákvað að vera ekki hræddur held
ur halda ótrauður áfram. Hlaup
in gefa mér mikið og ég vildi gera
allt til þess að halda þeim áfram,“
segir hann. Hann hafði ekki trú
á því að batinn yrði svo snögg
ur og því afbókaði hann ferðina á
maraþonhlaupið í Kaupmanna
höfn í maí. „Það voru mikil mis
tök því ég var mjög fljótlega kom
inn á sama stað og ég var fyrir
hjarta áfallið,“ segir Ægir. Svo fór
að hann hljóp maraþon í Kópa
vogi í byrjun apríl, tæpum þrem
ur mánuðum eftir hjartaáfallið
og nú, ári síðar, hefur hann lokið
fimm slíkum þrekraunum.
Hefði ekki getað
orðið kyrrsetumaður
Það er auðheyrt að Ægir er ósáttur
við þau skilaboð hjartalæknisins
að hann mætti ekki hlaupa aft
ur. „Ég held að læknar verði líka
stundum að taka lífsgæði sjúk
linga inn í myndina. Ég var þarna
að jafna mig eftir alvarlegt áfall
og það gerir manni ekkert gott að
heyra að maður hafi verið svipt
ur aðaláhugamáli sínu og ástríðu.
Það hefði ekki hentað mínum lífs
stíl að verða kyrrsetumaður og
því var ég ákveðinn í að ég skyldi
hlaupa aftur,“ segir Ægir. Síðan
þá hefur hann fengið sér nýjan
hjartalækni sem er mun jákvæðari
gagnvart hlaupunum. „Sá sagði
mér bara að drulla mér af stað.
Hreyfing væri það besta sem ég
gæti gert fyrir mig,“ segir Ægir.
Þetta baráttuhugarfar hefur
áður komið Ægi vel. Fyrri eigin
kona hans lést í byrjun aldarinnar
eftir erfið veikindi og þá stóð hann
uppi einsamall með þrjú börn.
„Ég var þá fjörtíu og fimm ára en
konan mín var fertug. Hún veikt
ist af krabbameini og því var tals
verður aðdragandi að því að hún
kvaddi,“ segir Ægir. Eins og eðli
legt er þá upplifði hann mikla sorg
við missinn en hann segist hafa
ákveðið með sjálfum sér að hann
skyldi ekki festast í sjálfsvorkunn
yfir hlutskipti sínu. „Ég þurfti að
sjá um þrjú börn og og ég gat ein
faldlega ekki farið að dvelja við
hvað þetta væri ósanngjarnt og
erfitt. Lífið varð að halda áfram,“
segir Ægir. n
„Það hefði
ekki hentað
mínum lífsstíl að verða
kyrrsetumaður og því
var ég ákveðinn í að ég
skyldi hlaupa aftur
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu þjónustu
okkar á Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS