Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 48
48 fólk - viðtal 2. mars 2018
M
amma var ung þegar hún
eignaðist mig. Hún vissi
að það var betra fyrir mig
að alast upp hjá ömmu.
Fyrstu árin var ég sár og stund-
um reiður því ég taldi að hún hefði
yfir gefið mig. Seinna komst ég
að því að hún hafði tekið erfiða
ákvörðun um að láta frá sér barnið
sitt svo það gæti átt betra líf. Hjá
ömmu ólst ég upp í vernduðu um-
hverfi. Æska mín var góð og mér
leið vel hjá ömmu.“
Þetta segir Karl Bjarni Guð-
mundsson eða Kalli Bjarni eins
og hann er gjarnan kallaður. Kalli
varð fyrst frægur á Íslandi fyrir að
sigra í Idol-stjörnuleit. Kalli starfar
í dag sem sjómaður en hann stefn-
ir á að gefa út nýja tónlist á næstu
misserum. Í kjölfarið sigurs í Idol
voru miklar vonir bundnar við
söngvarann en fram undan voru
öldudalir. Kalli hafði sem ungling-
ur tekist á við fíkn vegna áfengis og
fíkniefna. Þegar álagið eftir keppn-
ina varð sem mest nýtti hann sér
örvandi efni til að halda sér gang-
andi, en þegar mest var spilaði
hann á átta mismunandi stöðum
sama daginn. Þegar hann missti
tökin á neyslunni og var búinn
að koma sér í skuldir tók hann að
sér í eitt skipti að flytja fíkniefni
til landsins. Kalli sagði frá þeirri
sögu í þættinum Burðardýr en þeir
þættir hafa vakið mikla athygli á
Stöð 2 í vetur. Í þættinum rifjaði
Kalli á einlægan hátt upp æsk-
una, samband sitt við ömmu sína,
ástina og framtíðina. Nú eiga Kalli
og unnusta hans von á dreng. Von
er á nýju lagi frá Kalla og stefn-
ir hann á að gefa það út á afmæl-
isdegi ömmu sinnar.
„Amma er algjör nagli,“ segir
Kalli og bætir við að ef til vill hafi
hún verið of góð við hann. „Hún
kenndi mér margt en hún gat líka
verið hörð í horn að taka. Hún
bannaði mér stundum að fara út
á kvöldin og ég fékk ekki leyfi fyrr
en ég hafði sýnt fram á að ég væri
búinn að klára heimalærdóminn
eða að ég kynni að leggja snyrtilega
á borð. Ég er þakklátur fyrir að hafa
alist upp hjá henni í Grundarfirði.“
Læknar vildu eyða Kalla
Þegar Sveinbjörg, móðir Kalla, var
ólétt að honum lenti hún í alvar-
legu umferðarslysi. Þá ók strætó
yfir fótlegg hennar og brotnaði
hún illa. Þegar læknarnir áttuðu
sig á að hún væri ófrísk var lagt
hart að henni að eyða fóstrinu.
Vildu læknarnir meina að ef hún
færi ekki eftir ráðleggingum þeirra
myndi bataferlið taka mun lengri
tíma og hún jafnvel ekki ná full-
um bata. Móðir hans tók það
hins vegar ekki í mál og Kalli kom
í heiminn þann 6. janúar 1976.
Leiðir þeirra Sveinbjargar og Guð-
mundar, föður Kalla, höfðu skilið
á þessum tíma. Guðmundur bjó
og starfaði í Noregi en móðir Kalla
var á Íslandi. Móðir hans taldi
hagsmunum hans betur borgið á
Grundarfirði hjá ömmu hans og
afa og flutti hann til þeirra þegar
hann var um tveggja ára gamall.
Nokkrum árum síðar voru Kalli og
Elna Bárðarson, amma hans, ein
eftir þegar eiginmaður hennar féll
frá. Elna er af finnskum ættum.
Ástfanginn Kalli Bjarni
og sonur á leið í heiminn
n Amma Kalla bjargaði lífi hans n Brást heilli þjóð n Nýtt líf og lag á leiðinni
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
„Það er
enginn
kóngur nema
rétt á meðan
kílóið er að
klárast
Líður vel á sjónum Kalli hefur stundað sjóinn með hléum frá því hann var unglingur.